05.03.1929
Neðri deild: 14. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Hjeðinn Valdimarsson:
Það er ekki ofmælt, að fá mál, sem komið hafa fram á síðari árum, hafa mætt eins mikilli andúð frá verkalýðnum eins og þetta frv., sem hjer liggur fyrir. Nú drífa að Alþingi mótmæli víðsvegar af landinu, og þarf ekki að tala lengi við verkafólkið hjer í bænum, til að komast að raun um, hvern hug það ber til þessa máls og flutningsmanna þess. Það er líka skiljanlegt, þegar athugað er það þjóðskipulag, sem við höfum við að búa, það þjóðskipulag, sem grundvallast á eignarrjetti einstaklinga yfir framleiðslutækjunum og hinni svokölluðu frjálsu samkepni. Þessu þjóðskipulagi og því atvinnufyrirkomulagi, sem af því leiðir, hafa hinar ráðandi stjettir komið á á síðustu áratugum. Og þetta skipulag hefir klofið þjóðina í tvær stjettir: Atvinnurekendur og verkalýð, yfir og undirstjett. Þessi skifting kemur greinilegast fram í kaupstöðunum, þar eru andstæðurnar skarpastar; bændur eru bil beggja, því að þeir eru að sumu leyti atvinnurekendur og að öðru leyti verkamenn.
Hv. flm. (JÓl) sagði það, sem margir hafa áður haldið fram, að hjer á landi væri ekkert auðvald til. En það liggur þó í augum uppi, að það er eitthvert vald, sem ræður yfir þeim auði, er hjer hefir legið ónotaður í höfn undanfarinn mánuð; og það eru fáir menn, sem hafa þetta vald í sínum höndum, og hefir ráðið stöðvun flotans. Hinsvegar er verkalýðurinn, sem ekkert á nema hendur og höfuð. Hann á alla sína afkomu undir högg að sækja þeirra manna, sem atvinnutækjunum ráða. Í þessari baráttu á hann eitt vopn. Ef hann hefði ekki þetta vopn, væri auðvelt fyrir þá, sem ráðin hafa, að segja við verkamanninn: Þú færð ekki atvinnu hjá mjer, nema þú viljir vinna fyrir minstu laun, sem óhjákvæmileg eru til naumasta lífs í fátækt og basli, fyrir þig og heimili þitt, svo að börn þín erfi sömu aðstöðuna og þú hefir nú sjálfur, að minsta kosti ekki betri.
En það vill svo vel til eins og jeg tók fram áðan, að verkalýðurinn hefir í sínum höndum beitt vopn, og það er vopn samtakanna. Verkfallsmöguleikinn er þeirra bitrasta vopn og helgasti rjettur. Þetta er auðvaldinu ljóst, og þetta vopn óttast það mest af öllu. Það er óratími síðan verkfallsvopninu var fyrst beitt. Því var beitt í Rómaveldi hinu forna, þegar alþýðan, Plebejarnir, gengu á brott úr borginni og kváðust eigi mundu aftur snúa, nema að ráðin yrði bót á kjörum þeirra, sem og varð.
Þegar vinna er stöðvuð, geta þeir, sem ráða yfir atvinnutækjunum, ekki notað þau og engan hagnað haft af þeim. Þá kemur í ljós, að vinnan er sterkasti þáttur framleiðslunnar. Án hennar verður ekkert auðsafn. Án valdsins yfir vinnunni, eru hinir einstöku eigendur atvinnutækjanna, auðsins, máttlausir. Verkfallsvopninu er nú beitt um allan heim, þegar á liggur, og samtök verkalýðsins eflast ár frá ári út í löndum. Hvernig mundi þeim samtökum hafa farnast, ef þau hefðu vopnlaus orðið að berjast við ofurefli auðs og stjórnarvalda yfirstjettarinnar?
Það er ekki langt síðan verkalýðshreyfingin hófst hjer á landi, og þó hefir hún borið mikinn sýnilegan árangur. Það kemur glögt í ljós við athugun, að því sterkari sem samtökin eru á hverjum stað á landinu, því betur líður verkafólkinu þar, en því veikari sem þau eru, því lægra kaup fá verkamennirnir og því ver er að þeim búið. Og hvernig notar verkalýðurinn þetta vopn. Hann segir: Við vinnum ekki nema launin, sem við fáum, sjeu lífvænleg. Verkalýðurinn notar ekki þetta vopn nema tilneyddur sem vörn á móti sultarhótun atvinnurekenda, en baráttan fyrir síbættum kjörum verkalýðsins verður ekki stöðvuð á miðri leið. Verkalýðurinn krefst þess, að börn alþýðunnar fái betri kjör en fullorðna fólkið fjekk. Ef kaupkröfurnar þykja of háar, þá segja atvinnurekendur: Við ráðum aðra til að vinna þessi störf fyrir lægra kaup. Gegn því segir verkalýðurinn: Við stöndum öll saman, við erum öll ein samtaka stjett. Eins og allir hljóta að sjá, þá eru samtök verkalýðsins því víðtækari sem þau eru það vopn í launabaráttunni, sem sigrar allar hindranir.
Hv. flm. var að tala um hið fjárhagslega tjón, sem leitt hefði af vinnustöðvuninni nú í sjómannadeilunum, einkum fyrir verkamenn, og vildi gera mikið úr því. Það skal játað, að æskilegt hefði verið að þurfa ekki að grípa til þess úrræðis, svo framarlega, að skipin hefðu getað gengið alt árið og atvinna verið viss. En þessi verkatöf er verkafólki yfirleitt lítils virði borið saman við þann hagnað, sem verkalýðurinn hefir af verkfallinu á ýmsan hátt. Það er líka alkunnugt, að verkamenn beita ekki þessu vopni nema þegar neyðin knýr þá til þess. En hitt veldur verkalýðnum langmestu tjóni, hvað þessi atvinnuvegur — togaraútgerðin — er rekinn skipulagslaust. Þegar togararnir eru stöðvaðir og látnir liggja í höfn mánuðum saman, af því að útgerðarmenn telja, að það svari ekki kostnaði að gera þá út, þá er það verkalýðurinn einn, sem tapar á því. Hvaða gagn gætu samtökin unnið verkalýðnum, ef ekki væri hægt með þeim að stofna til verkfalla? Jeg tel vafasamt, að þau gætu þá nokkuð áorkað til gagns. Sem pólitískur flokkur, stjórnmálasamtök, gætu þau að vísu haft talsverða þýðingu. En sem atvinnusamtök biðu fjelög verkamanna mjög alvarlegan hnekki, því að sterkasta vopn samtakanna er einmitt verkföllin. Þegar samtökin eru svo öflug, að atvinnurekendum stendur mikill stuggur af, hyggja að verkafólkið geti staðist í baráttunni við þá um arðinn af atvinnuveginum, eins og kom glögt í ljós hjer í bænum í síðustu kaupstreitu, þá þurfa atvinnurekendur að finna einhver góð ráð gegn samtökunum. En því heimskari sem stjórnir atvinnufyrirtækjanna eru, því fólskulegri og verri reynast ráð þeirra.
Í Ítalíu og Póllandi hefir verið farin sama leið og hjer á að fara, eftir þessu frv. En í þeim löndum, sem atvinnutækjunum er skynsamlegar stjórnað, detta engum slík ráð í hug. Í fyrra var t. d. haldinn fundur meðal fulltrúa atvinnurekenda og verkamanna í Bretlandi. Skýrsla frá störfum þeirrar nefndar er dagsett 4. júlí 1928. Þar eru tekin til meðferðar ýms atriði, sem til álita koma við úrlausn kaupgjaldsmála. Þar sem nefndin minnist á gerðardóma lætur hún svo um mælt í skýrslunni:
„Báðir aðiljar fjellust á það ágreiningslaust, að engin tegund þvingaðra gerðardóma gæti komið til mála.“ Ennfremur viðurkennir nefndin, að verkalýðsfjelögin sjeu hinn rjetti aðilji til samninga af hálfu verkamanna og enginn annar. Atvinnurekendur í Englandi sáu það og skildu, að ekkert þýðir að stemma stigu fyrir verkalýðssamtökunum eða stöðva verkföllin, á þann hátt að koma á einskonar þrælahaldi eins og hjer er ætlast til með þessu frv. Englendingar eru það skynsamari, þó að þar sje öflugt auðvald, að þeir viðurkenna fullkomlega verkalýðsfjelögin, og atvinnurekendunum þykir best að semja við þau sem jafnrjettháa aðilja. — En það sem aftur á móti vakir fyrir fulltrúum atvinnurekenda hjer á landi: hv. flm. þessa frv. (JÓl) og háttv. 2. þm. G.-K. (ÓTh), er blátt áfram að eyðilegga verkalýðssamtökin. Þeir hafa helst aldrei viljað tala við þau, nema þeir væru til þess neyddir. Fyrir nokkrum árum kom fram hjer á Alþingi frv. um gerðardóm í vinnudeilum, flutt af Bjarna frá Vogi. Það fjekk þá megna andúð og mótspyrnu í þinginu og þó var það hátíð hjá því frv., sem hv. flm. dirfast að leggja hjer fram nú. Það á í stuttu máli að ráða með allsherjardómi yfir lífi og velferð verkalýðsins og grípa inn í öll deiluatriði hans við atvinnurekendur. Með þessu frv. á aðeins að ákveða um tekjur verkalýðsins. En allar aðrar stjettir þjóðfjelagsins, verslunarmenn, framkvæmdastjórar, atvinnurekendur og aðrir, eiga eftir sem áður að fá kaup sitt ákveðið í frjálsri samkepni. Og hvaða dómstóll á svo að skamta verkalýðnum launin? Eins og fyrri hluti 4. gr. frv. kveður á um, þá verður þetta eingöngu stjettardómstóll yfirstjettarinnar. Menn þekkja hvernig hæstirjettur hefir dæmt í málum, þar sem rekast á hagsmunir verkalýðsins og atvinnurekenda. Og hvernig halda menn t. d., að hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) mundi hafa skipað í slíkan dóm, en hann var hjeraðsdómari hjer í bænum fram í síðastliðin árslok. Ef nokkur snefill af rjettlæti á að sýnast vera í þessu máli, verða aðiljarnir að velja mennina dóminn.
Þá kem jeg að aðalatriðinu. Hver getur sagt um það, hvað er rjettlæti í þessu máli? Getur t. d. nokkur sagt með sanngirni, að hann eigi rjett á meira kaupi en algengur verkamaður? Nei, verkamaðurinn hefir eins mikinn rjett til launa og hver annar, og verkalýðurinn vill ekki láta sníða sjer stakkinn og skamta sjer lífsviðurværi úr hnefa. Hann vill sjálfur ráða í landinu, og að því kemur líka fyr eða síðar að hann fær að ráða. Hann trúir á mátt sinn og megin og rjett til þess að ákveða sjálfur lífskjör sín og stjórna vinnu sinni. Löggjafarvaldið setur lög um ýms smáatriði, en þess þykir eigi þurfa, að það setji ákvæði um, eftir hvaða reglum kaupgjald verkalýðsstjettanna ætti að greiðast, meiri hluta vinnandi manna í landinu. En hv. flm. þessa frv. vilja skipa svo fyrir, að dómurinn skamti kaupið handa verkamönnum, án þess að hann þurfi að fylgja neinum ákveðnum reglum í því efni, einungis skoðunum þessara yfirstjettarmanna á kröfum verkalýðsins, sem eins og allir vita eru litaðar af stjettabaráttunni. Og það er ekki nóg með það, að þessi dómstóll eigi að koma fram með álit og dæma málin, hann á líka að leggja á menn sektir, ef út af er brugðið, og jafnvel skaðabætur. Ef verkamenn vilja ekki hlýða því, að vinna fyrir 1–2 kr. lægra dagkaup en áður, þá er hægt að ganga viðstöðulaust að hverjum einasta verkamanni, eða sjóðum verkalýðsfjelaganna, og taka fjármuni þeirra í sektir og skaðabætur. En þegar atvinnurekendur vilja stöðva vinnu, verður annað uppi á teningnum. Atvinnurekandinn gerir það ekki opinbert, að hann stöðvi vinnuna til að lækka kaupið. Hann segir að eins, að fiskverðið suður á Spáni og Ítalíu sje svo óhagstætt, að reksturinn geti ekki borið sig, eða rekstrarkostnaður útgerðarinnar sje of mikill. Því verði að stöðva skipin, og það varðar hvorki sektum nje skaðabótum fyrir atvinnurekendurna.
Svo segir í aths. þessa frv. að tilgangur þess sje að afstýra verkföllum og verkbönnum. Um afstöðu hv. 1. flm. (JÓl) til þeirra mála, er auðvitað enginn vafi. Hann vill vitanlega hafa verkbönn, því að þau gefa honum von um að fá verkafólk fyrir lægra kaup. Um hina tvo íhaldsm., sem eru meðflm. að frv., skal jeg vera fáorður; þeir hafa vilst með flokksbróður sínum og munu vafalaust fylgja honum. En um hv. þm. V.-Sk. (LH) vil jeg fara nokkrum orðum. Hann var eins og kunnugt er kosinn á þing við síðustu kosningar með örfárra atkv. meiri hl. Það sem úrslitunum rjeð, voru atkv. sjómanna í V.-Skaftafellssýslu, og sjómennirnir fylgdu honum af því, að þeir hjeldu að hann mundi fylgja sömu stefnu og Framsóknarflokkurinn hefir yfirleitt gert í mannúðarmálum, sjerstaklega vera hlyntur vökulögunum. — Þegar á síðasta þingi brást hv. þm. trausti þessara manna. Einn sinna flokksbræðra greiddi hann atkv. gegn togaravökulögunum. Nú bregst hann þeim í annað sinn, með því að gerast flm. þessa frv., sem er jafn andstætt sjómönnum úr V-Skaftafellssýslu eins og afstaða hans gagnvart vökulögunum. Þeir mega iðrast eftir fylgi sitt við hv. þm. og fyrir að hafa komið honum á þing.
Um hv. 1. þm. Árn. (JörB) er ekki mörgum orðum eyðandi. Hann gerðist, eins og kunnugt er, fyrir nokkrum árum liðhlaupi úr Alþýðuflokknum yfir til Framsóknarflokksins. Hafði hann þá verið kosinn á þing í Reykjavík fyrstur þingmanna Alþýðuflokksins og treyst af verkalýð hjer í bæ. Engan þarf að undra, þó að hann sje nú á leið yfir til Íhaldsmanna. Sá, sem einu sinni hefir svikið, getur altaf gert það aftur.
Ef þetta frv. verður nokkurn tíma að lögum, sem jeg vona að aldrei verði, verða það sannkölluð þrælalög. Þau skapa verkalýðnum annan rjett en öðrum borgurum í þessu landi. Slíkum lögum er ekki hægt að framfylgja á Íslandi, og verður aldrei hægt. Verklýðssamtökin munu ekki láta kúgast af slíkum þrælatökum.