05.03.1929
Neðri deild: 14. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í C-deild Alþingistíðinda. (2890)

33. mál, dómur í vinnudeilum

Forseti (Jörundur Brynjólfsson):

Út af nokkrum orðum í ræðu hv. 2. þm. Reykv. vil jeg beina því til hv. deildarmanna, að þeir gæti þess að viðhafa ekki í ummælum sínum ásakanir eða orð til áfellis þeim mönnum, er ekki eiga sæti hjer í hv. deild og geta þess vegna ekki hjer borið hönd fyrir höfuð sjer.