05.03.1929
Neðri deild: 14. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Sigurjón Á. Ólafsson:
Það mun engum hafa blandast hugur um, þegar frv. þetta kom fram, að hverjum því væri stefnt. Enda kom það beint fram í ræðu hv. flm. (JÓl), að því væri stefnt að Sjómannafjelagi Reykjavíkur, eins og öllum var ljóst í upphafi.
Þar sem rætur þessa máls liggja alldjúpt, er jeg neyddur til að fara nokkuð langt aftur í tímann til þess að skýra mál mitt. Vinnudeilur eru ekkert nýmæli í heiminum, því að þær eru jafngamlar stóriðjurekstrinum. Hvað okkur snertir, þá höfum við 13 ára reynslu í þessum efnum. Fyrstu vinnudeilurnar, sem nokkuð kvað að, voru háðar 1916. Undirrótin undir vinnudeilunum er í raun og veru öllum landslýð kunn. Hún er eins og hv. þm. Ísaf. tók fram, deilan um skiftingu af arði framleiðslunnar, hve mikið af honum eigi að fara í vasa þeirra, sem að framleiðslunni vinna, og hve mikið í vasa þeirra, sem hafa umráð framleiðslutækjanna. Eins og eðlilegt var, varð sjómannastjettin íslenska fyrst fyrir barðinu á stóriðjurekstrinum hjer. Laun íslenskra háseta 1915 voru ekki ýkja mikil, og allir þekkja við hvaða kjör þeir áttu þá að búa, og skal jeg ekki fara að ræða um þau hjer, því að þau eru kunn af umræðunum um vökulögin, sem nú hefir verið siglt í höfn. Er deilan því nú aðallega um það, að skapa hásetum viðunandi kjör, hvað kaupið snertir og önnur þægindi, er samrýmast við vinnuna. Árið 1916 stóð deilan um þann hluta kaupsins, sem hásetar fengu goldinn í lifrarhlut. Var lifrin þá samkvæmt samningi milli sjómanna og útgerðarmanna metin á 35 kr. fatið, en alkunnugt var, að hvert fat var að verðmæti 70 kr. Snerist því deilan um það, hvort sjómenn fengju að njóta hins raunverulega verðs eða ekki, eða öllu heldur um eignarrjett lifrarinnar, sem allmargir útgerðarmenn höfðu þá afhent hásetum sínum, á tímum, sem verðmæti hennar var mjög lítið. Endirinn varð svo sá, að hásetar fengu 60 kr. fyrir tunnuna, en eignarrjettinn á lifrinni fengu þeir ekki.
Það kom oft fram í ræðu hv. flm., að yfirleitt væri ekki nema um verkfall að ræða milli tveggja aðilja, þegar vinnustöðvun væri. En þetta er hinn mesti misskilningur, því að þau eru fleiri tilfellin, þar sem beinlínis hefir verið um verkbann að ræða, en verkbann er það, þegar atvinnurekendurnir stöðva
framleiðslutækin. Það vill nú einmitt svo vel til, að jeg hefi hjer skrá yfir deilur þær, sem háðar hafa verið um launakjör milli sjómannastjettarinnar og atvinnurekenda hjer í Reykjavík á síðastliðnum 13 árum, og þau eru fleiri tilfellin, þar sem um hefir verið að ræða verkbann af hálfu atvinnurekenda, þar sem þeir hafa stöðvað atvinnutækin til þess að koma fram kauplækkun. Við það hefir ekkert þótt að athuga, en hitt hefir aftur talist óttalegt, ef verkamenn hafa stöðvað vinnu sína, eða með öðrum orðum, gert verkfall, til þess að reyna að fá kjör sín bætt. Fyrsta verkbannið í stærri stíl var hjer árið 1921. En þá stóð svo á, að samningar höfðu nýlega verið gerðir (17. des. 1920) milli sjómanna og útgerðarmanna, en þrátt fyrir það segja útgerðarmenn í byrjun febrúar 1921, að annað tveggja verði að gera, að lækka kaup sjómannanna, eða leggja skipunum upp. Að sjálfsögðu gengu sjómenn ekki inn á kauplækkunina, og var skipunum því lagt upp, og lágu þau þá inni í 1½ mánuð.
Vildi jeg nú gjarnan við þetta tækifæri fá upplýst hjá hv. flm. (JÓl), hve mörgum miljónum landið hafi tapað við það verkbann. Deila þessi endaði þannig, að sjómenn hjeldu samningum sínum, og störfuðu eftir sem áður á flotanum með óbreyttu kaupi, að deilunni lokinni. Næsta deilan er 1923. Þá stendur í þófi á milli útgerðarmanna og sjómanna fram á mitt árið. Var deila þessi háð af hálfu útgerðarmanna og er því annað verkbannið á þessu tímabili.
Þriðja verkbannið er svo aftur haustið 1925. Þá er togaraflotanum lagt upp nokkru eftir að ísfiskiveiðarnar byrjuðu, og látinn liggja inni í mánuð, aðeins til þess að knýja fram launalækkun við hásetana. Hve mörgum miljónum tapaði þjóðin þá, hv. flm.?
Annað verkfallið á þessum 13 árum er verkfall það eða vinnustöðvun, sem háð var um fyrstu mánuði þessa árs, og eins og kunnugt er verður það álitamál, hvort orsökin til þeirrar vinnustöðvunar er ekki frekar frá útgerðarmönnum runnin.
Jeg hefi nú sýnt og sannað, að í þessum 5 tilfellum, sem jeg hefi nefnt, eru það útgerðarmenn, sem í 3 tilfellunum hefja verkbann, með því að knýja fram kauplækkun. En í tveimur tilfellunum eru það sjómennirnir, sem ákveða vinnustöðvun, þegar engir samningar voru til um fyrir hvað unnið skyldi. Jeg get nú ekki gengið fram hjá því hjer, að gera grein fyrir hverjar kröfur sjómenn og útgerðarmenn hafa borið fram í hverju einstöku af þessum tilfellum. 1916 er krafa sjómanna sú, að þeir fái að halda eignarrjettinum á lifrinni. En 1921 fara svo útgerðarmenn fram á það, að fastakaup háseta lækki um þriðjung, en lifrarhluturinn um helming. Úr þeirri kröfu varð ekkert. Hinn 11. sept. sama ár fara þeir svo enn fram á, að fastakaup háseta lækki úr 275 kr. ofan í 200 kr. og lifrartunnan, sem var 52 kr., ofan í 16 kr. Endir þeirrar deilu varð sá, að fastakaupið varð 240 kr., en lifrarfatið lækkaði niður í 25 kr. Á þessu má sjá, að kröfur útgerðarmanna hafa ekki altaf verið sem hógværastar. Árið 1922 gera útgerðarmenn svo aftur þá kröfu, að fastakaup háseta lækki úr 240 kr. niður í 170 kr., og lifrarfatið úr 25 kr. niður í 20 kr. Þessi krafa þeirra var svo langt fyrir neðan alla sanngirni, að öllum sanngjörnum mönnum blöskraði ósvífni útgerðarmanna. Stóð svo deila um þetta fram til haustsins 1923, og lauk þá á þann hátt, að fastakaupið var fært niður í kr. 220 á mánuði, en verði lifrarinnar var ekkert breytt. Í sambandi við þessa deilu stóð verkbannið á fjórða mánuð.
1925 standa þessi mál þannig, að þá er kaup háseta orðið 260 kr. á mánuði og lifrarfatið 30 kr. Hafði sú kauphækkun náðst, án þess að til deilu kæmi, í lok ársins 1921, því að þá var sjerstakt góðæri og dýrtíðin hafði vaxið að miklum mun, en aftur á móti varð afli óvenjumikill og fiskverð ágætt. En um haustið gera útgerðarmenn hvorki meira eða minna en þá kröfu, að fastakaup háseta lækki um 25% og lifrin sömuleiðis um 25%. Endir þeirrar deilu varð svo sá, að fastakaupið var lækkað um 10% og lifrarverðið um 2 kr. á fati.
Jeg tek þetta fram hjer sökum þess, að hv. flm. (JÓl) sagði, að kaupdeilur þessar hefðu verið svo harðar, af því að kröfur sjómanna hefðu altaf verið svo ósvífnar. Allar hafa deilur þessar verið háðar á friðsamlegan hátt, nema ef vera kynni, þegar slegist var á hafnarbakkanum 1923, sem kom til af því, að útgerðarmenn voru að reyna að teyma út á skipin menn, sem ekki voru í Sjómannafjelaginu. Var þeim því einum um þær óspektir að kenna.
Ávöxturinn af þessum deilum hefir yfirleitt orðið sá, að sjómenn hafa altaf borið meira úr býtum fyrir samtök sín en ella myndi hafa orðið. Og jeg vil meina, að þó að dómstóll hefði átt í þessum tilfellum að fjalla um deilumálin, þá mundi meira hafa hallað á sjómannastjettina en raun varð á. Það mun engum blandast hugur um, að kaup sjómanna hefir síst verið of hátt öll þessi ár, en þó mundi það hafa orðið lægra, ef samtök þeirra hefðu ekki verið eins öflug og raun ber vitni um. Það eru einmitt þessi samtök sjómannanna, sem útgerðarmenn vilja gera máttlaus, eða hættulaus eins og þeir kalla það, með frv. þessu. Eins og jeg tók fram áðan, hafa kaupdeilurnar yfirleitt farið friðsamlega fram, enda vita sjómenn hvað í húfi er, ef þeim væri hægt um að kenna óspektir o. þ. h. Þó eru ekki fá dæmi þess, að þeir menn úr sjómannastjettinni, sem staðið hafa framarlega og haft orð fyrir mönnunum, hafa mátt kenna þess hjá útgerðarmönnum með því að tapa atvinnu sinni, fyrir það eitt, að mótmæla kúgunartilraunum þeirra og hvetja fjelaga sína til samheldni. Þannig var ákveðið af útgerðarmönnum 1916, að þeir menn úr Sjómannafjelaginu, sem stýrimannapróf höfðu, skyldu ekki fá hærri stöður en hásetastörf vegna þátttöku sinnar í verkfallinu.
Þá vil jeg nefna 2. atr., sem ekki er allóverulegt í sambandi við þetta mál, en það er deilan um, hvernig kaupgreiðslunum skuli varið, þ. e. a. s., að hve mikluleyti sjómennirnir njóta góðra aflabragða í tekjum sínum. Fyrst þegar togararnir komu og tekið var upp fast kaup á þeim, þá var það algerð stefnubreyting frá því, sem áður hafði tíðkast. Hin ævagamla venja um greiðslu kaupsins í hlut, hafði verið notuð á þilskipunum. En þá hefð skar togaraútgerðin niður, en tók upp kaupgjaldsvenjur verksmiðjuiðnaðarins, að greiða föst laun. Þessi venja hjá útgerðarfjelögunum, að greiða föst laun, skorin við neglur sjer, kann að vera áhætta fyrir þá, þegar mjög illa gengur, en er líka stórgróði, þegar vel gengur. En þessi rangláta undirstaða kaupgreiðslunnar er mjög mikill þáttur í því, sem deilum veldur.
Jeg er máske ekki nógu kunnugur hvernig þessu háttar með öðrum þjóðum. En jeg þekki enga aðra þjóð en okkar, þar sem enginn hluti vinnulauna á útgerð er greiddur með hluta úr afla, annaðhvort að magni eða verði aflans. Á Englandi er hásetum greiddur hluti af nettóverði aflans. Dregin frá 100 stpd. af verði aflans úr ferð, að öðru leyti en því, að hásetar fá af „brúttó“ í raun og veru. Og svipað er það hjá Þjóðverjum, Hollendingum, Belgum og Frökkum. Í kröfum þeim, sem hásetar gerðu síðast, var farið fram á, að þeir fengju ½% af söluverði aflans þann tíma, sem togararnir væru á ísfiskveiðum, til að bæta hásetum upp það tap, sem þeir bíða við þær veiðar, miðað við þau skip, sem á sama tíma stunda saltfiskiveiðar. En það var eins og að stinga hníf í hjarta útgerðarmannanna að nefna þetta. Skipstjórar, stýrimenn og vjelstjórar hafa þó % af afla. En að hásetar nytu hins sama, var eins og að nefna snöru í hengds manns húsi. Nú væru þó engir erfiðleikar þessu samfara, því fiskurinn er seldur jafnskjótt og honum er skipað á land í Englandi. Verðið kemur strax í ljós, svo enginn misskilningur getur um það orðið, hverja upphæð ber að borga.
Nú geri jeg ráð fyrir, að útgerðarmenn svari því, að þessi sala sje venjulega svo lág, að ekki sje hægt að greiða af henni. Er því rjett að líta á það, hver salan hefir verið.
1925 var meðalsala á togurunum 1320£. 1926 1153£, 1927 1144£ og 1028 1176£. Meðalsala hefir því verið um 1200£, og hluti háseta því um 60£ að meðaltali úr ferð. Um það, hvað hver ferð kostar útgerðina, ætla jeg ekki að ræða. En kunnugir telja, að meðaltalskostnaður muni vera um 700–800£ á skip. Hjer er því um verulegan gróða að ræða hjá útgerðinni, sem að meinfangalausu gæti greitt þessa uppbót. Kaupgjaldið undanfarin árhefir núverið mismunandi, þar sem það fór eftir vísitölu. Þessi 3 síðustu ár „vinnufriðarárin“, sem hv. þm. sumir kalla svo, fór kaupið hraðlækkandi og var komið niður í kr. 196,70 á mán., fasta kaupið, og í kr. 23,50 þóknun af hverju lifrarfati. Og þótt hv. flm. og fleiri vilji kenna forgöngumönnum verkamanna um verkfall þetta, þá er þó sannleikurinn sá, að þetta er alda, sem skapast hefir af hinum þröngu kjörum, sem sjómenn hafa átt við að búa. Og þá bylgju var ekki hægt að lægja á annan hátt en þann, að bætt yrðu kjör þessara manna.
Besta ráðið til að forðast þetta væri vitanlega það, að hásetar hefðu rjettlátan hluta af afla togaranna. En slíkt rjettlæti hefir ekki átt upp á háborðið hjá útgerðarmönnum hjer. — — Það hefir verið bent á það af öðrum hjer. að þegar þessi samtök verkamanna eru orðin svo sterk, að útgerðarmenn þykjast ekki geta við þau ráðið, þá heimti þeir lög til þess að tryggja sjer meiri hl. vald og geta ráðið kjörum háseta. Þetta frv. er því vopn, sem leggja á í hönd atvinnurekenda gegn þeim mönnum, sem fyrir ári síðan voru nefndir hermenn drottins, og íhaldsblöðin töluðu þá um, að væru víkingar, sem bæru höfuðin hátt. Það verður ljóst, hver hræsni þetta var, þegar sömu aðiljar berjast fyrir því, að slá þau einu vopn úr höndum þeirra, sem þeir eiga í lífsbaráttunni. Það er margt, sem þurft hefði að taka til athugunar í ræðu hv. flm. Hann var að benda til atburða, sem skeðu fyrir nokkrum árum. Er því rjett að skýra þá nokkru nánar.
Á þingi 1925 voru samþykt ný lög um sáttatilraunir í vinnudeilum, þar sem sáttasemjari, skipaður af ríkinu, skyldi ganga milli aðilja, er um vinnudeilur væri að ræða. Þetta frv. var samþykt umræðulítið og ágreiningslaust, enda gott og sjálfsagt, og hefir líka borið allgóðan árangur og mun gera enn. Slík tilhögun þekkist og hjá nágrannaþjóðunum og hefir reynst vel. Reynsla sú, er hjer hefir fengist, sýnir, að af 3 deilum, sem upp hafa komið, hefir sáttasemjara tekist að jafna 2. Jeg skal nú ekki leggja dóm á það, af hvaða orsökum þetta tókst ekki nú. Máske hafa útgerðarmenn haldið, að sáttasemjara tækist að vinna háseta til fylgis við tillögur sínar og þeir því verið harðari gagnvart honum ef ske kynni, að þeir á þann hátt gætu haft áhrif á, að tillögur hans gengju ekki eins langt í þeirra garð. Að minsta kosti reyndust útgerðarmenn mjög harðir samningsaðiljar gagnvart sáttasemjara, harðsnúnari en nokkur ástæða var til, og það er grunur minn, að þeir hafi ekki kept svo mjög að því, að vera búnir að semja fyrir áramót. Jeg hygg, að þeir hafi gjarna viljað láta það dragast til þings, í þeirri von, að þeir hefðu á einhvern hátt gott af því, eins og líka kom á daginn. En þótt svo tækist til, að sáttasemjari rjeði ekki við þessa deilu í þetta sinn, af ástæðum, sem öllum, er til þekkja, eru kunnar, þá verður þó ávalt besta lausnin, að óhlutdrægur 3. maður gangi á milli aðilja og leiði til sátta. Það er því bæði óheppilegt og óþarft að setja á stofn dómstól til þess að þvinga fram verkalaun og kaupkjör í fullri óþökk sjómanna og verkamanna. Mjer skildist á hv. flm., að verkamenn hefðu svelt sig til þess að ná þessari kauphækkun. Jeg veit nú ekki hvort hv. þm. er svo kunnugur, að hann geti fullyrt neitt um þetta. En hafi svo verið, þá sýnir það það eitt, að hásetar hafa heldur viljað svelta en láta kúga sig. Það sýnir, að þeir vilja vera frjálsir menn í frjálsu landi, sem hafi full ráð yfir lífi sínu og athöfnum.
Þótt sá tími, sem útgerðin var stöðvuð, sje yfirleitt rýr fyrir útgerðina, að jafnaði stundaðar ísfiskveiðar, og skipin hreinsuð og undirbúin undir vetrarvertíðina, þá var þó í þetta sinn nægur fiskur — og veðrátta sjerlega hagstæð. — Hafa því útgerðarmenn fleygt frá sjer arði, sem tvímælalaust hefði runnið þeim í skaut. En þetta verða þeir fyrst og fremst að kenna sjálfum sjer um.
Þá vil jeg næst minnast á samninginn frá 1925. (Rödd: Hann var frá 1926!). Nei, hann var frá 2. desember 1925 og gilti til síðustu áramóta. — Það er mjög vel skiljanlegt, að útgerðarmenn væru vel ánægðir með þann samning, því hann bygðist á vísitölu, sem viðurkent er af útgerðarmönnum, að hafi verið sjómönnum óhagstæð, og eftir henni hefir kaup háseta og lifrarþóknun lækkað miklu meira en lífsnauðsynjarnar.
Því atriði, hve hátt sjómenn settu kröfur sínar, hefir hv. þm. Ísaf. svarað. Samkvæmt þeim hefðu laun háseta orðið hæst 5000 kr., og þar sem embættismenn hafa sýnt fram á það, að slík laun nægja ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum þeirra, miðað við þarfir fimm manna fjölskyldu hjer í bæ, þá er sýnt, að hjer var ekki farið fram á meira en minst mátti vera til þess að lifa heilbrigðu og sómasamlegu lífi. Sjómenn hafa því ekki verið neitt óforskammaðir í kröfum sínum, eins og útgerðarmenn orða það, heldur þvert á móti. Það var nú ýmislegt fleira í ræðum hv. flm., sem gaman væri að athuga, en slíkt má gera við 2. umr., ef málið á annað borð fær þá náð að komast svo langt. Í þetta sinn mun jeg aðeins stikla á nokkrum punktum.
Hv. flm. sagði, að hjer væri ekkert auðvald, aðeins bjargálnamenn. Jeg veit nú varla, hvað hv. þm. á við. Ef litið er til hv. þm. og stjettarbræðra hans, útgerðarmannanna, þá er ljóst, að margir þeirra eru miklu meira en bjargálnamenn. Sumir geta kallast vel fjáðir og sumir auðmenn á íslenskan mælikvarða. Þessi auður er afrakstur útgerðarinnar, þrátt fyrir harmagrát útgerðarmanna um tap á tap ofan. Nei, hjer er um auðmenn að ræða, sem sjá má á öllum lifnaðarháttum þeirra. Hv. flm. talaði ennfremur um það, að fáeinir æstir menn rjeðu þessum málum. En því hefir verið svarað áður, að það eru engir 1, 2 eða 3 menn, sem með forystu sinni skapa þessar deilur. Og það er rjett. Deilurnar eru knúðar fram af atvinnurekendum sjálfum með svo lágum launum, að þau skapa þá ólgu, sem brýst fram í vinnudeilunum. Þá sagði hv. flm., að þeir menn töluðu mest á móti frv., sem ekkert hefðu til brunns að bera um þetta mál. Jeg skal nú ekki leggja dóm á, hvor rjettara hefir fyrir sjer í þessu máli. En það hygg jeg, að hv. þdm. viðurkenni, að rökin í þessu máli sjeu a. m. k. ekki hans megin. Og þetta mál er þess eðlis, að um það getur hver meðalgreindur maður myndað sjer skoðun og talað, þótt þekkingu hans á útgerðarmálum kunni í einhverju að vera ábótavant. En þarfir og launakröfur sjómanna þekkjum við fulltrúar verkamanna miklu betur en hv. flm. og hans fjelagar.
Þá vildi hv. flm. telja, að frv. þetta væri vel sjeð í herbúðum verkamanna og sjómanna. Jeg veit nú ekki, hvort hv. flm. hefir litið upp á pallana, þegar frv. þetta var fyrst á dagskrá. En hafi hann gert það, þá er víst, að hann hefir ekki mætt þar neinum ástaraugum. Nei, þeir horfðu áreiðanlega með þungum huga til þessa frv. og flm. þess. — Það er víst, að sjómenn skilja það, að hjer er ekki um mál að ræða þeim til hagsbóta, heldur er þetta mál útgerðarmanna. Og jeg hefi engan sjómann fundið, sem óskar eftir því, að frv. þetta nái fram að ganga. Og hafi einhver sagt hv. flm. annað, þá hygg jeg, að honum hafi verið sagt ósatt.
Þá staðhæfði hv. flm., að kröfur verkamanna væru að kyrkja atvinnureksturinn hjer á landi. Jeg skil nú ekki á hverju hv. flm. byggir þessa staðhæfingu. Kröfur háseta hafa aðeins numið lágmarkslaunum til lífsframfæris, sem vitanlegt er, að útgerðin getur vel borgað. Ef alt það væri ljóst, sem nú er í myrkrunum hulið, um hag útgerðarinnar, þá sæist hvort hún gæti borið þetta og meira. Og það eitt er víst, að ávalt hefir þetta sama vígorð verið notað í öllum kaupdeilum, og altaf eykst skipastóllinn Hallir útgerðarmanna stækka og veita meiri lífsþægindi, m. ö. o., útgerðin yfirleitt virðist standa með blóma. — Reynsla þjóðanna er líka sú, að eftir því sem launin hækka, eykst geta fyrirtækjanna, því hærra kaupgjald hvetur til meiri hagsýni á rekstrinum.
Þá kom hv. flm. að því, að við vildum þjóðnýta útgerðina og stefndum að því. Jeg játa það, að með jafnstóran atvinnurekstur, sem togaraútgerðin er orðin, væri hún eflaust betur rekin á þann hátt fyrir hagsmuni fjöldans í landinu. Og þótt tími sje máske ekki kominn til þess ennþá, þá er það þó framtíðarmarkið, sem keppa ber að.
Þá þótti hv. flm. það undarlegt, að jafnaðarmenn væru á móti ófriði en styddu þá styrjöld, sem verkföll hafa í för með sjer. Það er nú svo, að styrjaldir milli þjóða eru mannvíg. En í verkföllunum hjer á landi hafa engin mannvíg orðið hingað til, og jeg vona að þau verði eigi heldur hjer eftir. Þetta tvent er því alls ekki sambærilegt. Verkföll og verkbönn eru ekkert annað en harðsnúinn verslunarbarátta um kaup og kjör. Jeg veit heldur ekki til þess, að jafnaðarmenn sjeu nokkursstaðar í heiminum á móti því, að verkamenn leggi niður vinnu til þess að knýja fram betri lífskjör, en vitanlegt er það, að þeir vinna manna mest á móti stríði og styrjöldum í heiminum.
Hv. flm. viðurkennir nauðsyn samtakanna. En til hvers eru samtök, ef aldrei má beita þeim. Og nái þetta frv. fram að ganga og verði því fylgt fram, þá geta verkamenn engin not haft af samtökum sínum, og því síður beitt þeim í kaupdeilum. Þetta veit hv. flm. ofur vel. Hann veit, að með slíkum dómstóli, sem hjer ræðir um, er alveg skorið fyrir æð samtakanna. Hv. flm. játaði það eftir ítrekaðar fyrirspurnir, að eftir þessu frv. eru verkföll ekki leyfileg nema einstökum mönnum En það er ekki á venjulegu máli kallað verkfall, þó að einn og einn maður leggi niður vinnu. Verkfall er ekki fyr en fleiri menn hætta vinnu í sameiningu.
En hvað er þá verkbann? Í augum hv. flm. er víst ekki annað verkbann en þegar hann segir beinlínis: Nú stöðva jeg vinnuna til þess að lækka laun verkamannanna. Hitt nefnir hann áreiðanlega alls ekki verkbann, þó að útvegurinn stöðvist eins og t. d. árið 1926, af ástæðum, sem útgerðarmenn telja óviðráðanlegar, en jeg tel að hægt sje að ráða við. Og það er einmitt einn megin gallinn á því, að atvinnutækin sjeu í höndum einstakra manna, að þeir hugsa eingöngu um sinn eiginn hag. Gangi reksturinn af einhverjum ástæðum svo erfiðlega, að eigi sje von hagnaðar, þá stöðva þeir atvinnuna, og verkalýðurinn stendur uppi með tvær hendur tómar. En þetta kalla útgerðarmenn ekki verkbann.
Hv. flm. sagði, að síðasta verkfall mundi hafa opnað augu verkamannanna fyrir því, að verkföll væru þeim eigi til hagnaðar. Jeg skil það vel, að hv. flm. muni vera það ljóst, að verkfallið hafi eigi orðið honum eða öðrum útvegsmönnum til hagnaðar. En jeg get fullvissað hv. flm. um það, að sjómenn líta svo á, hvað sem tekjum þessa árs líður, að tími komi eftir þennan tíma, og þeir muni hafa drjúgan hagnað af verkfallinu í framtíðinni. Hv. flm. sjer það líka. Því aðeins er þetta frv. fram komið. En svo segir hv. flm.: „Jeg efast um, að sjómenn vilji leggja út í annan bardaga.“ Það er ekki okkar að svara því. Það fer eftir ástæðum. Haldist verðlag óbreytt og verði atvinna stöðug, tel jeg ekki líklegt, að sjómenn muni gera kröfur til mikilla breytinga á næstunni. En breytist aðstaðan þeim í óhag, fara þeir vafalaust fram á leiðrjettingu á launum sínum, og þá veltur alt á því, hvernig hv. flm. og hans fjelagar taka í það mál, hvort vinnustöðvun verður eða ekki.
Hv. flm. kallar verkföllin brjálæði og segir, að Alþingi verði að hafa vit fyrir verkamönnum. Jeg hefi nú hvergi sjeð það, að menn, sem leggja niður vinnu í þeim tilgangi að fá hagkvæma samninga, væru álitnir brjálaðir. Engum nema hv. flm. er það samboðið, að mæla þessi orð til þeirrar stjettar, sem fært hefir honum stórtekjur árum saman.
Hv. flm. heldur, að lögunum muni verða hlýtt. En reynslan annarstaðar er sú, að slíkum lögum hefir ekki verið hlýtt. Og svo mundi einnig fara hjer. Og það er háskalegt fyrir Alþingi að samþykkja þau lög, sem vita má fyrirfram, að eigi muni verða hlýtt. Því sú sterka andúð, sem þegar er fram komin gegn þessu frv., gefur manni fulla ástæðu til að álykta, að ef slíkt yrði að lögum, þá yrði þeim ekki hlýtt. Og það er ómögulegt annað, en að önnur eins þvingunarlög og hjer er um að ræða, yrðu þverbrotin.
Jeg ætla eigi að svara nú þeirri staðhæfingu hv. flm., að útgerðin hafi eigi safnað auði. Gefst ef til vill tækifæri til þess síðar. En hann var að drótta því að sjómönnunum, að þeir mundu skemma fiskinn viljandi fyrir útgerðarmönnum. Jeg hefi aldrei heyrt meira vanþakklæti fyrir dyggilega unnin störf. (ÓTh: Það var hv. þm. Ísaf. (HG), sem færði þetta dæmi.) Já, en hann tók það upp eftir hv. flm.
Það er annars merkilegt, hve útvegsmenn eru oft og tíðum óglöggir á sinn eiginn hag. Þeir slógust af lífi og sál gegn vökulögunum, en nú er það sýnt og sannað, að þau lög hafa engum fært meiri gróða en einmitt útgerðarmönnunum sjálfum. Jeg skal nefna annað dæmi. Útgerðarmenn voru á móti fríi í höfn. En þegar það komst á, reyndist það stórhagur fyrir útgerðina. Svona eru þeir nú vitrir, togaraútgerðarmennirnir okkar. Þeir fást jafnvel ekki til þess að festa augu á sínum eigin hagsmunum, nema sjómennirnir knýi þá til þess með öflugum samtökum og vinnustöðvunum og tíðast með tilslökunum á kaupi sínu.
Jeg hefi nú í stórum dráttum gagnrýnt meginhlutann af ræðu hv. flm. Það, sem eftir er, mun eigi vera svo veigamikið, að eigi sje skaðlaust að láta því ósvarað.
Þá kem jeg að hv. þm. Borgf. (PO). Mjer er næst að halda, að hann hafi talað af tómri þægð í þessu máli, þægð við flokksbræður sína, togaraútgerðarmennina hjer. Ekkert á hann í togaraútgerð, og í kjördæmi hans er enginn togari. Þar tíðkast hlutaskifti og launafyrirkomulag alt öðruvísi en hjer í Reykjavík. Jeg held þess vegna, að þessi hv. þm. hafi ekki talað út frá sínum innra manni, þegar hann var að bisa við að að verja þetta frv.
Hv. þm. vildi sýna fram á það, að þetta frv., sem hjer hefir nú verið svo rækilega gagnrýnt í þessari hv. deild, færi ekki fram á neina þvingun. Það væri óþörf endurtekning hjá mjer að telja upp þau ágætu rök, sem hjer hafa verið flutt gegn þessari staðhæfingu, og hv. þm. Borgf. (PO) hefir enn eigi tekist að hrekja. (PO: Jeg á nú eftir að tala.) En jeg hjó eftir einu, sem hv. þm. sagði í þessu sambandi. Hann sagði: „Það er ekkert í þessu frv., sem skyldar útgerðarmenn til þess að gera út.“ (PO: Jeg sagði meira.) Já, en þessi orð hv. þm. vil jeg undirstrika. Jeg vil biðja hv. þdm. að taka vel eftir því, að hv. þm. Borgf. hefir viðurkent það, að í frv. sje ekkert, sem skyldi útgerðarmenn til að gera út.
Hv. þm. Borgf. er þeirrar trúar, að þetta fyrirkomulag muni reynast vel. Hann og aðrir dýrkendur þessa frv. eru altaf að vitna í Noreg og reynsluna þar. En sannleikurinn er sá, að gerðardómslögin í Noregi hafa reynst svo illa, að engum lifandi manni dettur nú í hug að fara eftir þeim, nema íhaldinu hjer uppi á Íslandi.
„Öll verkföll hafa endað með samkomulagi“, segir hv þm. Borgf. Samt telur hann þörf á þvingunardómi. Hann þykist vilja binda enda á togstreituna milli sjómanna og útgerðarmanna. En það verður ekki gert með þvingun. Og úr því að frv. girðir eigi fyrir það, að hægt sje að gera verkbönn, sje jeg ekki, að neitt sje við það unnið, jafnvel frá sjónarmiði hv. þm. Borgf.
Jeg undraðist mjög yfir ummælum hv. þm. Borgf., þegar hann, svo skýr maður, var að tala um bróðurlega úrlausn þessa máls. Hann veit það vel, að við, sem deilum um kaup sjómannanna á togurunum, erum engir óvinir. Hjer er aðeins um hreint fjárhagsmál að ræða, sem báðum aðiljum er viðkvæmt. Og í slíkum málum er erfitt að dæma. Það veit hv. þm. Borgf.
Hv. þm. Borgf. sagði ýmislegt fleira, sem vert væri athugunar. En jeg vil að síðustu aðeins segja það, að aðferðin til að ná friðsamlegri lausn þessa máls er eigi sú, að búa til lög, sem gera það að verkum, að annar aðilinn hlýtur að fyllast heift og gremju yfir því, að vera sviftur frelsi til að selja vinnu sína því verði, sem honum þóknast. Það er alveg sama og að dæma kaupmann til að selja vöru sína ákveðnu verði. Jeg geri raunar ekki ráð fyrir, að þessi dómstóll mundi dæma aðra en þá, sem eiga í launadeilum við togaraútgerðina, og þá lægst launuðu stjettirnar, sjómenn og daglaunamenn, t. d. ekki iðaðarmenn, sem margir hverjir hafa hátt kaup. Hann á aðeins að dæma þá, sem lægst eru launaðir. Er þetta ekki hróplegt misrjetti? Jeg veit, að jafnvel á togaraflotanum eru menn, sem enga togstreitu þurfa til að fá laun sín hækkuð. T. d. fá loftskeytamenn umyrðalaust 20% hækkun um leið og kaup sjómannanna hækkar um 15–16%. Reynslan sýnir, að útgerðarmenn virðast jafnan hafa fullar hendur fjár til að greiða þeim mönnum, sem þeir þykjast geta, ef svo mætti að orði kveða, kallað sína menn, menn, sem þeir geta haft til eins og annars. Jeg skal eigi tala um fleiri. Hv. þm. Borgf. veit þetta eins vel og jeg. Hann þekkir það misrjetti, sem á sjer stað á skipunum. Heldur hann e. t. v., að dóminum myndi verða beitt á skipstjóra og stýrimenn á togurum? Ó-nei.
Jeg ætla að treysta því, að hv. þdm. láti sjer skiljast það, að samþykt þessa dóms yrði aldrei til þess að auka frið í landi hjer. Það traust mun jeg bera til hv. deildar, uns annað verður uppi á teningnum, að hún samþykki aldrei dóm, sem dæmir bitann og sopann í munn barna og kvenna lægst launuðu stjettanna í landinu, hversu stór hann skuli vera. Hjeðan úr deildinni ætti þetta frv. aldrei að fara og ekki lengra en til þessarar umr. Þess mundi minst hjá komandi kynslóð.