07.03.1929
Neðri deild: 16. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í C-deild Alþingistíðinda. (2903)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Jón A. Jónsson:
Jeg hefi einkum heyrt það haft á móti þessu frv., að í því fælist þvingun. En nú hefir verið sýnt fram á það í þessari hv. d., að svo. er eigi. En það skal játað, að í því felst takmörkun á athafnafrelsi um ákveðinn tíma. Samkv. frv. er óheimilt að gera verkfall eða verkbann meðan sáttatilraunir og dómsmeðferð stendur yfir. Jeg skil frv. svo, og sá skilningur er í samræmi við yfirlýsta skoðun flm. sjálfra, að eftir þann tíma sje hvorki verkfall eða verkbann ólöglegt. Hjer er aðeins um tímabundna takmörkun að ræða og dómur sá, sem frv. gerir ráð fyrir, er enginn fullnaðardómur, sem aðiljar verði að hlíta, að viðlögðum sektum eða fangelsi. En að einu leyti er athafnafrelsi verkkaupa eða atvinnurekenda takmarkað, eftir að dómur er fallinn. Þeim er, að mínu áliti, óheimilt að ráða verkamenn fyrir lægra kaup en dómurinn ákveður. Mjer er satt að segja óskiljanlegt, hversvegna hv. fulltrúar jafnaðarmanna, eða rjettara sagt verkalýðsfjelaganna, skuli vera á móti þessari ráðstöfun, því að frv. er verkamönnum talsvert hagstæðara en atvinnurekendum. Hindrunin á athafnafrelsi verkamanna er aðeins tímabundin, en hún er meira að því, er til atvinnurekenda kemur, a. m. k. að einu leyti, eins og jeg hefi berlega sýnt. Verkamönnum standa þrjár leiðir opnar. Þeir geta í fyrsta lagi hætt að vinna, ef þeim sýnist svo, og þeir telja ákvörðun dómsins um kaupgjaldið ekki viðunandi. Í öðru lagi geta þeir leitað sjer nýrrar. atvinnu. Og loks er þeim heimilt að vinna fyrir hærra kaup en dómurinn ákveður, ef það býðst. En atvinnurekendur eiga aðeins um tvent að velja, að ganga að því, sem verkalýðurinn sættir sig við eða hætta atvinnurekstrinum.
Það, sem aðallega hefir verið talið frv. til gildis, er það, að það fyrirkomulag, sem það gerir ráð fyrir, muni gefa mönnum lengri tíma og betra næði til að athuga þessi deilumál. Og það hefir líka reynst svo í öllum deilum, að rannsókn og róleg yfirvegun leiðir til heppilegastrar lausnar, þar sem ofurkapp aftur á móti aldrei leiðir til farsællegra lykta málanna. Mjer virðast fulltrúar verkalýðsfjelaganna líta svo á, að eina leiðin til þess að gera þetta land byggilegt sje sú, að verkalýðurinn fái sem hæst kaup. Jeg held, að í togaraverkfallinu nýafstaðna hafi verið byrjað á skökkum enda. Það er mála sannast, að kaupið á togurunum er hærra en við nokkra aðra líkamlega vinnu hjer á landi. Ekki geta bændur greitt svo hátt kaup, eins og ástand landbúnaðarins er nú. Smábátaútvegurinn er eigi heldur fær um það, enda gerir hann það ekki.
Það sje fjarri mjer að neita því, að stjettarfjelög vinnandi stjetta sjeu til nokkurs gagns. Þeim hefir orðið mikið ágengt í því að gera meðlimi sína færari til samstarfs og gæta rjettar þeirra. Sum þeirra, eins og iðnaðarmannafjelög, hafa stórum aukið verklega þekkingu meðlima sinna. En það er ákaflega óheppilegt, þegar foringjar verkamannanna eru að prédika það fyrir þeim, að þeir megi aldrei hugsa til annars en að verða verkamenn alla æfi. Slíkur hugsunarháttur er skaðlegur og órjettmætur, því að hjer í okkar landi eru miklir möguleikar fyrir duglega menn að komast áfram. (HV: Á þá enginn að vera verkamaður?) Jú, auðvitað, en verkamenn mega ekki missa sjónar á því, að þeir geta með dugnaði orðið sjálfum sjer nógir og eignast aðstöðu til að reka sjálfstæða atvinnu. En nú mun það vera svo, að menn, sem hverfa úr verkamannastjett og gerast sjálfstæðir atvinnurekendur, eiga á hættu að verða fyrir aðkasti og hnjóðsyrðum. Þetta er háskalegt ástand og drepur úr verkamönnum alla framfaraviðleitni. En dæmin eru deginum ljósari. Það eru ekki nema 2 dagar síðan hv. 2. þm. Reykv. (HV) rjeðist á hv. 1. þm. Árn. (JörB) með ókvæðisorðum og kallaði hann svikara, af því að þessi hv. þm. (JörB), sem einu sinni var verkamaður hjer í Reykjavík, hefir nú gerst bóndi í sveit. Annað eins og þetta nær vitanlega engri átt. Jeg þekki annað dæmi. Það er frá Vestfjörðum. Maður, sem hafði verið í verkalýðsfjelagi, eignaðist hluta í mótorbót og tók sjálfur að sjer formensku á bátnum. En hvað skeður? Þessi maður er ofsóttur og hrakyrtur fyrir þessa sjálfsbjargarviðleitni sína, honum brugðið um fjelagssvik o. s. frv. Hve langt geta þessi ósköp gengið?
Jeg held, að lítið verði úr bjartsýni og framsóknarhug hinnar íslensku þjóðar, ef verkamennirnir, fjölmennasta stjettin, ætlar sjer að skerast þar úr leik. Haldi slíku fram, fer eigi hjá því, að svartsýni, tortrygni og öfund gegnsýri þjóðfjelagið.
Hv. 2. þm. Reykv. (HV) sagði, að verkalýðurinn vildi einn öllu ráða og ætti öllu að ráða. Þessi ummæli þykja mjer óviðkunnanleg í meira lagi. Alveg eins og mjer er það óljúft, að t. d. embættismenn einir ráði lögum og lofum í landinu, eins er mjer það óljúft, að verkamannastjettin sje einráð í öllu. Af því mundi auðvitað leiða einlita löggjöf, sem eingöngu miðaðist við hag þeirrar stjettar. Nei, hver stjett verður að hafa nokkur ráð, svo að engra hagur sje fyrir borð borinn og hver stjett komi nokkru fram af sínum málum.
Því hefir verið mótmælt í þessari hv. d. að kúgun eigi sjer stað í verkalýðsfjelögunum, og það er svo sem auðvitað, að takmarkið með verkalýðssamtökunum er alt annað en kúgun. En jeg skal nefna dæmi, sem sýnir að þetta er nú svo, kúguninni er beitt. Þetta dæmi er úr síðasta verkfalli. Á Vestfjörðum eru, eins og kunnugt er, þrjú togarafjelög. Tvö þeirra ákváðu að gera hásetunum kost á að halda áfram veiðum með því skilyrði, að þeir fengju sama kaup og endanlega yrði ákveðið við samninga hjer í Rvík. Fjelag það, sem jeg veiti forstöðu, er raunar ekki í fjelagi reykvíkskra útgerðarmanna, en við höfum þó altaf fylgt þeim taxta, sem um hefir samist hjer í Rvík. Hásetarnir vildu gjarnan ganga að tilboði okkar. En svo stóð á, að meðal þeirra voru fjórir menn úr Sjómannafjel. Rvíkur. Þessir menn vildu fá leyfi hjá fjelagi sínu til að halda áfram vinnu með þessum kjörum. En þeim var synjað um það leyfi. Þegar svo var komið, sögðust hásetar heldur vilja fara úr skiprúminu, þótt þeim væri það nauðugt, því að við munduni eflaust geta fengið aðra menn á skipið. Fann jeg það á öllu, að þeir vildu á engan hátt skaða útgerðina. En daginn eftir fáum við tilkynningu um það, að ef við gerðum togarann út áfram og rjeðum á hann aðra menn, yrði lagt afgreiðsubann á skipið. Finst mjer það hart, að vegna þessara fjögra sjómanna, er voru í Sjómannafjelagi Reykjavíkur, er öllum hinum meinað að vinna, en afgreiðslubann lagt á skipið, ef menn eru ráðnir í þeirra stað.
Er þetta ekki kúgun?
Þegar kaupkrafan kom fram í haust játuðu hásetar yfirleitt, að þeim hefði aldrei dottið í hug, að krafan yrði svona há, enda mundi það gert til þess, að geta slegið af henni. — Það kom líka á daginn, því að krafan var færð niður um %. Jeg álít, að það sje alls ekki rjett að setja kröfurnar svona langt fyrir ofan þá samninga, er menn hugsa sjer að ná. Hefði krafa Sjómannafjelagsins verið sett t. d. 25% hækkun í upphafi, er jeg sannfærður um það, að sjómenn hefðu gengið að tillögum sáttasemjara við nýár. Það verður að virða sjómönnum það til vorkunnar, að þeir hafa ekki aðstöðu til þess að gera sjer fulla grein fyrir því, hve hátt kaup útgerðin er fær um að borga. Þegar krafan er sett svo hátt sem á síðasta hausti, er sjómönnum um leið gefið í skyn, að eitthvað nálægt þessu muni verða samið, og það nái ekki nokkurri átt að slaka til um 2/3.
Margir munu hafa undrast þær undirtektir, er till. sáttasemjara fekk hjá hásetum um síðustu áramót. — Og ekki var nóg með það, heldur fekk sáttasemjari alvarlegar ákúrur fyrir það, að bera fram sömu till. í febrúarmánuði og hann hafði borið fram í janúar. Nú er það viðurkent, að kauphækkunarkrafan í okt. var bygð á því, að verð á fiski hækkaði mjög á síðasta fjórðungi ársins sem leið, og útlit var fyrir, að gott verð hjeldist framvegis. Finst mjer eðlilegt að miða kaupgjald að einhverju leyti við sölu afurðanna, því að þegar vel árar, er útgerðin færari um að greiða hátt kaup. Þegar sáttasemjari bar fram miðlunartill. sína í árslokin, var verð á fiski enn þá hátt, eða um 55 au. ½ kg. af fullsöltuðum þorski flutt um borð. Þegar sáttasemjari bar fram sömu till. í febrúarmánuði var svo um breytt, að fiskverðið var komið niður í 44 aura kg. Var fiskurinn þá ekki í hærra verði en á sama tíma árið 1928, en lýsisverð hafði fallið mjög mikið, eða var rúmum 30% lægra en um þetta leyti árs í fyrra.
Finst mjer því, að sáttasemjari hafi gengið mjög langt til móts við kröfu Sjómannafjelagsins með því, að bera fram till. sömu krónuhæðar í febr. Tel jeg víst, að ef dómstóll hefði fjallað um síðustu vinnudeilu, hefði hún fyr verið til lykta leidd, og jafnvel engin vinnustöðvun orðið um nýjárið.
Af því að hjer við þessa umr. hefir verið rætt um togaraútgerðina sjerstaklega, vil jeg fara nokkrum orðum um þá hlið þessa máls.
Hv. þm. jafnaðarmanna halda því fram, að útgerðarmenn taki í flestum tilfellum stærri hlutann af arðinum af þessum atvinnurekstri, en sjómenn fái minni hl.
Jeg heyrði, að hv. þm. Ísaf. (HG) hjelt því fram, að meðalkaup háseta á togurum hafi síðastliðið ár verið um 3000 kr. Þessi skoðun hv. þm. hlýtur að vera bygð á misskilningi, eða því, að hann hefir ekki kynt sjer málið.
Lágmarkskaup háseta á þeim togara, sem jeg veiti forstöðu, að meðtöldum lifrarhlut og vinnu í einn mánuð við hreinsun skipsins var frekar 4000 kr. og ókeypis fæði. Ennfremur fiskur allur, er hásetar drógu á síldveiði. Nú var skip þetta óheppið á síldveiðum og var því síldarhlutur háseta óvenju lágur. Hinsvegar var þorskaflinn í meðallagi. (SÁÓ: Hve lengi höfðu sjómenn vinnu við skipið í landi?). Skipið var í Englandi frá 8. jan. til 21. jan. og er það venjulegt, að skip eru svipaðan tíma í aðalviðgerð erlendis á ári hverju. Þegar heim kom fór það ekki strax á veiðar, en af því að einungis var um 6–8 daga að ræða, hjeldu skipverjar kaupi sínu. Hreinsun skipsins, áður en því var lagt á síldveiðar, stóð yfir 16 daga, og í haust tók hreinsunin 24 daga.
Í þau 4 ár, er togarafjelag þetta hefir starfað, hefir beinn rekstrarhalli orðið rúmlega 30 þús. kr., og er þó eigi gert ráð fyrir fyrningu skipsins. Hluthöfum hefir verið greitt 1% af innborguðu hlutafje, sem er um 300 þús. kr. Afli þessa skips hefir verið í meðallagi, engin sjerstök óhöpp komið fyrir, hvorki í rekstri nje afurðasölu.
Nú heyrist oft sagt, að þeir sem veita þessum fjelögum forstöðu, taki svo mikið fje fyrir sín verk, að þeir gleypi allan gróðann. Þetta er hreinasti misskilningur, og veit jeg að slík störf eru ver launuð en hliðstæð störf við önnur fyrirtæki. Og til þess að sannfæra menn um að svo sje, vil jeg upplýsa um það, hvernig þessu er háttað hjá því togarafjelagi, er jeg veiti forstöðu.
Jeg sem framkvæmdastjóri þess hefi 6300 kr. í árslaun. Af þeim tekjum á jeg að borga skrifstofuvinnu alla, húsnæði fyrir skrifstofu, ljós og hita. Hin raunverulegu laun eru því 3400–3600 kr. á ári, og hefir sá reikningur eigi verið vefengdur, er jeg hefi gefið upp tekjur mínar til skatts.
Stjórn fjelagsins ásamt með endurskoðendum hefir fengið 1200–1400 kr. á ári.
Slíka sögu og þessa hygg jeg að megi segja frá fleiri togarafyrirtækjum. Hefi jeg síst á móti því, að dómstóll, eins og hjer er gert ráð fyrir, dæmi um allan hag útgerðarinnar. Hygg jeg, að það sje það eina í þessu frv., sem er útgerðarmönnum í hag, að dómstóll rannsakaði hag útgerðarinnar og gjaldþol hennar.
Þá mintist hv. þm. Reykv. á vinnustöðvun togaranna, einkum á sumrin. Út af þeim umælum hans vil jeg benda á það, að það væri hreinasta heimska að nota togarana til þorskveiða á sumrin, nema um væri að ræða alveg óvenjulega hátt fiskverð. Það er vitanlegt, að í 9 tilfellum af 10 er það tap fyrir útgerðina að halda skipunum úti til þorskveiða á sumrin. Skip þessi eru svo dýr í rekstri, að það er ógerningur að gera þau út á þeim tíma, nema þau skip ein, er til síldveiða geta gengið. Og til þessa hefir ekki verið hægt að láta meginhluta togaranna stunda síldveiðar, vegna vöntunar á síldarverksmiðjum. Auk þess sem í nær öllum tilfellum væri tap að þorskveiðum skipanna yfir sumartímann, tapa sjómenn einnig, ef togararnir eru hafðir við þorskveiðar.
Á 10–12 tonna bátum hafa menn yfir 400–600 kr. kaup á mánuði yfir sumartímann. Hvaða vit er þá í því, að sjómenn sjeu á togurum þann tíma, því að óhugsandi er, að þeir geti fengið slíkar tekjur þar af þorskveiðum. Sumarið er sá tími, sem menn geta yfirleitt fengið gott kaup, og það jafnvel svo, að flestir lifa á sumarvinnu sinni mestan hluta árs.
Þá sagði hv. þm. Ísaf. (HG): „Með óbreyttu þjóðskipulagi er óhugsandi að ekki verði ávalt vinnudeilur.“ Hv. þm. og samherjar hans álita, að á engan hátt verði ráðin bót á þessu nema með þjóðnýtingu. Jeg hygg, að eigi muni hægt að koma að fullu í veg fyrir slíkar deilur, hvorki með þessu frv. eða þrengri gerðardómi, en jeg álít, að hjer sje verið að stíga spor í rjetta átt til þess að jafna vinnudeilur á sem skynsamlegastan og rjettlátastan hátt. Því fanst mjer undarlega við bregða, er hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) vildi bíða með að setja vinnudóm í þessum deilum, þar til báðir aðiljar kæmu sjer saman um það. Ef á að bíða eftir því að þeir verði sammála um það, má víst bíða til eilífðar. Telji verkalýðsforkólfarnir, að með þessu frv. sje verið að skerða rjett þeirra, enda þótt rjettur atvinnurekenda sje skertur öllu meira, er ekki von að þeir biðji um slíkan gerðardóm. Þegar jafnaðarmenn segja, að eina lausnin sje að þjóðnýta útgerðina, lýsa þeir um leið yfir þeirri skoðun sinni, að þeir vilja ekkert gera til þess að skipa vinnudeilum með gerð eða dómi, en að stefna beri einungis að þjóðnýtingu. En það mundi taka of langan tíma að sýna fram á það, að þótt útgerðin yrði þjóðnýtt mundu deilur í vinnumálum verða eftir sem áður. Till. hv. þm. V.-Ísf. um biðina er af þessum orsökum ótæk. Jeg hafði hugsað mjer að svara ýmsu af því, er hv. þm. V.-Ísf. sagði í ræðu sinni, en þar sem hann er ekki viðstaddur mun jeg falla frá því. (BÁ: Jeg skal skrifa athugasemdir fyrir þm.). Mjer fanst hv. þm. vera að afsaka það, að hann gæti ekki að svo komnu aðhylst þjóðnýtingu á útgerðinni.
Háttv. þm. viðurkendi, að sáttasemjarastigið væri frumstig, og bæri okkur að komast á hærra stig í þessum málum. En mjer fanst, að hann sæi engin millistig á milli þessa frumstigs og þjóðnýtingar.
Þá kom hv. þm. með spurningu um það, eftir hverju dómurinn ætti að dæma: Á hann að dæma mönnum þurftarlaun, eða á hann að dæma mönnum þau laun, sem útgerðin getur mest borið? Jeg held nú sannast að segja, að í slíkum málum verði að byggja dóminn á því, hvað sanngjarnt er og hvað er hæfilegt. Hvað er sanngjarnt að sjómennirnir fái af arði atvinnuvegarins, ekki einasta af afganginum, því að það mun oftar verða svo, að hann verði enginn, heldur að þeir fái hluta af tilkostnaði við atvinnuna, jafnvel þótt afgangur verði enginn?
Eitt þótti mjer líka einkennilegt, það var að hv. þm. (ÁÁ) óttaðist svo mjög tóninn í blöðunum. Jeg verð nú að segja það, að jeg vona, að þetta hafi verið mælt af gáska einum, en ekki alvöru, því væri svo, að hv. þdm., einn eða fleiri, höguðu skoðunum sínum eftir því, hvernig þeir byggist við að tónninn yrði í blöðunum, þá væri það illa farið. Hv. þm. var hræddur við tóninn í Morgunblaðinu og hann var hræddur við tóninn í Alþýðublaðinu. En þó tók út yfir, að mjer fanst, að hv. þm. hjelt því fram, að við mættum ekki vænta þess að finna úrlausn, þar sem aðrar þjóðir hefðu ekki fundið úrlausn. Það vita allir, að það er svo stórkostlegur munur á atvinnulífi okkar og annara þjóða, að það er ekki sambærilegt, og það á að vera svo miklu hægra að finna leiðir hjer í þessu litla þjóðfjelagi heldur en í stóru löndunum. Því miður lítur oft svo út, sem menn vilji aðeins ganga þau spor, sem aðrir hafa stigið, vilji aðeins ganga troðnar brautir, og því miður finst mjer of mikið kenna þess á jafnaðarstefnunni hjer, að taka upp allar útlendar fyrirmyndir, en ekki að reyna að sníða eftir högum og þáttum okkar eigin þjóðar.
Jafnvel þótt jeg sjái, að í þessu frv. felst meiri takmarkanir á atvinnufrelsi útgerðarmanna og vinnuveitenda heldur en verkamanna, þá vil jeg samt reyna þessa leið. Hún mun verða leiðin til þess, að menn rannsaki betur þá hluti, sem hjer þarf við, og þá er jeg ekki í vafa um, að með rólegri athugun, með hag þjóðfjelagsins fyrir augum, verði ráðin sú bót, sem ekki mundi fást með því fyrirkomulagi, sem nú er.