07.03.1929
Neðri deild: 16. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í C-deild Alþingistíðinda. (2904)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Hjeðinn Valdimarsson:
Hv. 3. þm. Reykv. (JÓl) talaði lengi og af miklum áhuga um það, hversu afskaplegt það væri, að 201 maður í verkamannafjelagi rjeði á móti 200 mönnum. En jeg sje ekki, að það sje neitt afskaplegra en að 21 maður í sameinuðu þingi rjeði á móti 20. Það er sama reglan á báðum stöðum, að meiri hl. ráði, og svo er alstaðar þar sem lýðræði er. Þar sem skipulag þjóðfjelagsins er á þá leið, þar er ekki gengið út frá því, að það sjeu fáir menn, sem hafi mest og best vitið og hafi sjerrjettindi til yfiráða, heldur eigi að vera jafnrjetti á milli allra. En hin afskaplega reiði hv. þm. (JÓl) yfir þessu er skiljanleg og af hálfu útgerðarmanna yfirleitt, því að sannleikurinn er sá, eins og allir vita, að ef þetta sama lýðræðisfyrirkomulag rjeði í málum útgerðarmanna og verkalýðsins, þá yrðu atvinnurekendurnir í miklum minni hl. Þannig ætti það að vera að þeir menn, sem atvinnuveginn reka, þeir ættu í grundvallaratriðunum ekki að hafa meiri rjett en þeir, sem starfa undir þeirra stjórn. Þá hjelt hv. þm. langa tölu um það, að við andstæðingar frv. hefðum ekki vit á málinu. Mjer finst það, satt að segja, hlægilegt, að hann eigi að hafa meira vit á þessu en við hinir. Jeg er óviss um hversu snjall hv. þm. kann að vera í slíkum málum. Þótt hann geti selt fisk og gert út togara, þá er þó langt frá því, að hann hafi meira vit á því en hver og einn annar, hvort lögþvingaður gerðardómur á að vera í þessu máli frekar en einhver önnur aðferð. Mjer er það a. m. k. óskiljanlegt, hvers vegna hv. þm. álítur sig slíkan yfirvitring í þessu máli, eða yfirleitt í fjelagsmálum, því að aðrir en hann sjálfur munu ekki hafa orðið varir við yfirburði hans í þeim málum.
Þá sagði hv. þm., að ef jeg hefði heyrt hljóðið í verkamönnum á meðan togararnir voru bundnir, þá mundi jeg ekki álíta, að verkamennirnir væru eins mikið á móti gerðardómi í kaupdeilum, eins og jeg hjeldi nú fram. Jeg verð að segja það, að þó að hv. 3. þm. Reykv. hafi margt fólk í vinnu hjá sjer bæði á sjó og landi, og hafi um eitt skeið verið vel látinn af því, þá hefir hv. þm. þó síðustu árin fylgst mjög lítið með hugsunarhætti þess fólks. Ef hann talaði mikið við fjölda verkamanna, eins og jeg geri daglega, mundi hann vita hvernig hljóðið var í þeim í þessu máli bæði á meðan á togarastöðvuninni stóð og síðar. Verkamenn í landi stóðu með sjómönnunum, þó að ekki reyndi á það. En hitt var það, að þeir óskuðu, að þessi deila leystist sem fyrst, og þá með sigri sjómanna, og jeg get fullvissað hv. 3. þm. Reykv. um það, að það eru ekki aðrir meiri andstæðingar frv. en verkamenn hjer, sem hann var að vitna til. Mjer hefði þótt gaman, ef hv. þm. hefði verið staddur á fundum í Dagsbrún, þar sem eru fjelagar allir þeir bæjarmenn, sem vinna við skip, og heyrt þau orð, sem þar fjellu. Þá hygg jeg að hv. þm. hefði þótt við hjer á þingi heldur vægir á móti þeim. (ÓTh: Hve margir voru á því þingi?). Það er sama hvað þeir voru margir. Jeg hygg, að erfitt muni vera að finna verkamenn, sem sjeu með þessu frv., nema þeir sjeu þá lokaðir inni í búri hjá Kveldúlfi. Í verkamannafjelaginu Dagsbrún eru annars um 900 fulltíða verkamenn.
Þessi hv. þm. (JÓl), hefir stundum látið á því bera, að hann áliti sig hafa einhverja sjerstaka þekkingu á því yfirleitt, hvernig verkafólk hugsi hjer í bæ. Jeg man það, að þegar togaravökulögin voru hjer á ferðinni, þá lýsti hv. þm. því yfir með miklum fjálgleik, að hann hefði látið rannsaka hugarfar manna á 12 togurum, að því er þau lög snerti, og hefði þeir allir verið á móti þeim. En þetta er hlægilegt, enda var gaman að því hent, því að hjer lá fyrir þinginu yfirlýstur vilji allra skipshafna á togurunum, meðmæli með þessu frv. með eigin undirskriftum sjómannanna. Hv. þeim veit því ekki, hvað hann er að tala um, eða ef hann veit það, þá talar hann á móti betri vitund.
Þá fór hv. þm. að tala um það, að jeg hefði sagt, að það væri auðvitað, að verkafólkið á Íslandi væri ekki ánægt með kjör sín. Það verður heldur ekki ánægt með þau fyr en þau fara batnandi ár frá ári, og börn þess fá betri kjör en það hafði sjálft. Og það þýðir ekki heldur að vitna í það, að verkafólk hafi haft verri kjör áður, þó að það kunni að vera rjett á ýmsum sviðum; að minsta kosti var aðbúðin að sumu leyti verri á skútunum heldur en nú er á togurunum. En það gefur ekki neinar sannanir gegn því, að verkafólkið vilji ekki láta vellíðan sína og bætt kjör fara enn meira vaxandi en verið hefir. Eins er á það að líta, að það auðsafn, sem hjer hefir myndast eftir stríðið, hefir ekki lent hjá verkamönnum, heldur hjá atvinnurekendum, svo að þó nokkuð af fólkinu eigi við betri kjör að búa en áður var, þá hefir það hlutfallslega ekkert betra en þeir, sem með völdin fara, þegar litið er til þess, sem áður var. Annars má vitna til þess, að hjer í stærsta bæ Íslands er fjöldi fólks, sem á ekki við neitt betri kjör að búa en verkafólk hafði hjer áður, og er það síst þeim til sóma, sem ráða mestu hjer í bæ, bæði í atvinnuvegum og bæjarstjórn, íhaldsmönnunum. Nægir í því efni að vísa til ummæla landlæknis, sem fullyrðir, að húsnæði hafi ekki farið batnandi síðustu 20 árin. Það megi ganga út frá því, að húsnæði verkalýðsins sje öllu verra nú en árið 1907. Jeg hygg líka, að fæði manna sje ekki betra nje hollara en það var um það leyti. Jeg vil ekki deila mikið um það við hv. 3. þm. Reykv., hvort Verkamannafjel. Dagsbrún hafi haft betra af því, að jeg er þar formaður, eða ekki, en benda má á það, að fjelagatala þar hefir tvöfaldast síðan jeg tók við því starfi, kaupgjald hefir hækkað og ljettara að fá ýmsum kröfum verkamanna fullnægt nú en þá.
Það var beint ýmsum fyrirspurnum til hv. þm. (JÓl) um það, hvort verkföll væru leyfð eftir frv. eða ekki, og komu talsverðar vöflur á hv. þm. þegar átti að fara að svara þeim. En síðar, þegar andstaðan gegn frv. kom í ljós, þá sáu ýmsir af flm. þess, að ekki þýddi að halda því fram, að verkföll væru algerlega bönnuð eftir því, svo að á endanum slæddist það út úr hv. þm. (JÓl), að einstaklingum væri ekki bannað að neita að vinna, en aftur á móti væri verkföll ekki leyfð sem samtök. Náttúrlega er það ekki verkfall, þótt einstakur maður hætti vinnu, en það er verkfall, ef menn taka sig saman um það, vegna þess að þeir eru óánægðir með hag sinn og vilja bæta hann með því að hætta að vinna, þangað til þeir fá kröfum sínum fullnægt. Og að áliti hv. aðalflm. (JÓl) eru slík samtök bönnuð, enda er líka vitanlegt, að það, sem hv. þm. er mestur þyrnir í augum, er það, að til skuli vera verkalýðsfjelög, samtök verkamanna. Innan góðra samtaka eru verkamennirnir öruggir, eins og stafaknippi, sem er vel bundið saman; hv. þm. (JÓl) getur tekið hvern einstakan staf og brotið hann, en þegar þeir eru allir bundnir saman í eitt knippi, þá verða þeir of sterkir fyrir hann, eða aðra stóratvinnurekendur. Ef þessu máli væri framfylgt á þann hátt, sem hv. þm. (JÓl) hefir látið á sjer skilja, þá væri hægt að dæma verkalýðsfjelögin í sektir, þar sem stendur í frv., að slíkur dómur eigi að vera bindandi sem venjuleg dómsúrslit. Það er hægt að dæma fjelögin í skaðabætur, ef hægt er að sýna fram á, að samtök þeirra hafi bakað atvinnurekendum tap, og verður þá gengið að sjóðum þeirra og fjelögin uppleyst, en þegar það hefði verið framkvæmt, þá stæði hv. 3. þm. Reykv. nokkuð á sama, hvort þessi lög væri upphafin eða látin standa. Tilgangur hans með þeim er ekki að koma á friði, heldur að fá aðstoð laganna til þess að vinna bug á andstæðingum sínum, sem hann ræður ekki við, er þeir geta neytt afls samtakanna.
Hv. 1. þm. Reykv. (MJ) talaði með miklum helgisvip um frv. þetta, og kom nú þarna einu sinni fram sem hlutlaus maður í deilunni milli atvinnurekenda og verkamanna, að því er hann sagði, og þá líklega í fyrsta sinni, því að það er alkunnugt af þingsögu hans, að hann er altaf þeim megin sem peningarnir eru. Hv. þm. sagði, að í staðinn fyrir hnefarjett kæmi gerð góðra manna. Hver skyldi hafa á móti því, að góðir menn geri um málið? Það er áreiðanlegt, að hvor aðili fyrir sig hefði ekkert á móti því, að sinn maður frá hvorum flokki gerði um málið, þegar grundvöllurinn væri fundinn, sem gera ætti um málið eftir. En það er vitanlega eftir, og hvernig er hægt, eins og hjer er verið að gera, að búa til dómstól, þegar ekkert er til að fara eftir við að kveða upp dóminn, — engin löggjöf, er segði dómurunum fyrir um, hverju ætti að fylgja! Þá væri dómstólnum ekki aðeins fengið vald til að dæma, heldur líka vald til að skapa sjer sjálfur lög og reglur til að fara eftir. Dómstóllinn hefði ekki einungis dómsvald, heldur líka löggjafarvald, — og hvaða dómstóll í heimi annar hefir það? Og hvernig ætti hann að gera það? Hver getur talist óhlutdrægur, þegar deilt er um „princip“-mál? Hverjum mundi treyst til að segja til um það, hvort væri rjettara, íhaldsstefna eða jafnaðarstefna? Hverjum mundi verða treyst til að kveða rjett á um það, hve mikinn hlut skuldi greiða fyrir vinnu, hve mikið fyrir að stjórna fyrirtækinu, og hve mikið fyrir að leggja til fjármagn? Þetta er það, sem ekki er hægt að fá menn til að gera um. Þegar um rjettarfarsleg atriði er að ræða, þá er hægt að láta dómstólana fjalla um slík mál, en þegar um meginstefnumál stjetta þjóðfjelagsins er að ræða, er það ekkert annað en valdið, sem getur skorið úr, hvort sem það svo verður með verkbönnum, verkföllum eða atkvæðisrjettinum um löggjöf til að skapa grundvöllinn.
Þá sagði hv. þm. (MJ), að þegar litið væri á það, hve mikil andstaðan gegn lögunum væri, þá væri ekki hægt að vita, hve mikið af þeirri mótstöðu væri verkalýðsforingjunum að kenna. Það má sjálfsagt ávalt segja, að þeir, sem tala fyrir málum, hafi nokkur áhrif á það. En hvernig gætu þeir, ef verkafólkið væri á algerlega annari skoðun, fengið það til að greiða atkv. á móti sinni eigin skoðun og sannfæringu? Og þar að auki get jeg fullvissað hv. þm. um það, að fjöldi sjómanna og verkamanna hafa staðið upp á fundum og verið fult eins ákveðnir á móti því frv., sem hjer er um að ræða, eins og við jafnaðarmenn, sem sitjum á þingi. Hv. 1. þm. Reykv. hefir jafnvel sjálfur orðið fyrir því á borgarafundi í Reykjavík að finna hug alþýðunnar, þar sem með vinnudómsfrumvarpinu hafa fengist 2–3 atkv., en fult hús, um 400 manns, á móti.
Hv. 1. þm. Reykv. sagði það, að í sósíalistisku þjóðfjelagi hlyti eitthvað líkt að koma fyrir eins og sá gerðardómur, sem hjer er verið að tala um. Hv. þm. tók líka fyrirvara fyrir hverri gr. í frv., en virtist ekki vera á móti frv. í heild sinni fyrir því. Það skal fyllilega játað, að í sósíalistisku þjóðfjelagi verður að vera friður um það, hvernig skift verði tekjum þeirra, sem í því starfa, en fyrst og fremst væri sá stóri munur, að þar myndi alþýðan sjálf ráða, hvernig skift yrði, en ekki fáeinir útvaldir menn, sem ekki er nein sönnun fyrir að hafi næga þekkingu til að dæma um slík mál, og eru tilheyrandi yfirstjettinui, sem hefir yfirleitt lítinn skilning á högum og kröfum verkalýðsins. í sósíalistisku þjóðfjelagi myndi verða fylgt ákveðinni grundvallarstefnu um þessi mál, verkamennirnir jafnframt vera sameigendur fyrirtækjanna og aðeins ein stjett í þjóðfjelaginu, þeirra sem vinna. Þess vegna myndi sá ágreiningur hverfa, sem kemur og haldið er fram frá kapítalistisku sjónarmiði í gegn jafnaðarstefnu. Þar myndi koma föst grundvallarákvæði annarar stefnunnar, jafnaðarstefnunnar einnar, um alt, og eftir henni yrði sjálfsákvörðunarrjettur kaupgjaldsins í höndum verkalýðsins, þótt fylgt yrði föstum reglum. Sama regla myndi gilda fyrir alla, svo að ákvörðun yrði ekki tekin um kaupgjald fátækasta fólksins af hálfu þess efnaða, þeim fátækustu sjerstaklega markaður bás. Tökum t. d. verslunarstjettina. Hver er það, sem setur takmörk fyrir því, hvernig kaupmaðurinn aflar fjár síns, ef hann aðeins heldur fjáröflun sinni innan þeirra takmarka, sem lögin setja honum? Það dettur engum í hug að takmarka gróða hans í kapítalistisku þjóðfjelagi, nema komið getur fyrir, að skipuð sje verðlagsnefnd á sjerstökum neyðartímum. Hv. þm. (MJ) sagði, að það væri líku máli að gegna um þessa menn, eins og starfsmenn hins opinbera. Það ætti að vísu að vera líkt um þá, en þó er þar sá mikli munur, að því er starfsmenn hins opinbera snertir, að þar er fyrst lagður grundvöllur af þinginu, reglur um, hvernig eigi. að launa mönnunum, þar sem hægt er að hafa fullkomna gagnrýni, ræða málið opinberlega, og láta fulltrúa þjóðarinnar á þingi taka afstöðu til þess og bera ábyrgð á því.
Um starfsfólk á skrifstofum vildi hv. þm. (MJ) segja, að svipað gilti og embættismenn. En það er fráleitt. Þar mun kaupið fult eins oft miðað við manninn sjálfan sem stöðuna. Ef skift er um mann, er venjulega breytt til um kaup. — Hjer er því augsýnilega ekki um aðrar stjettir að ræða en verkamenn og sjómenn, sem á að kúga til að taka við kaupi sínu af dómstólnum. Þá sagði þessi sami hv. þm. oftar en einu sinni í ræðu sinni: „Við skulum taka til dæmis 2 menn, er deila.“ Það er eins og hann skoði atvinnurekendur og verkamenn jafnrjettháa aðilja. Þetta má ef til vill til sanns vegar færa í sveitum, þar sem húsbóndinn gengur til verka með vinnumanni sínum og hefir kannske ekki nema einn vinnumann. En það er alveg fráleitt í bæjum að halda slíku fram, eins og t. d. í Reykjavík. Þar eru annarsvegar t. d. í útgerðinni um 20 atvinnurekendur, en hinsvegar 2000 verkamenn. Þar er sannarlega ekki um jöfnuð að ræða. Ef aðiljar ættu að nefna jafnmarga menn í dóm hvor, þá væri þar troðið á öllum lýðræðisreglum og dauðir peningarnir virtir á móti lifandi og starfandi fólki. Það er ranglátt, að atvinnurekendur hafi þar jafnmikið að segja og verkamenn, sem eru 100 sinnum fleiri. Það er ekkert vit í slíku.
Hv. þm. (MJ) spurði, hvort verkföll leiddu til góðs. Þegar menn þurfa ekki sjerstakrar hvíldar, eins og t. d. á hvíldardögum, eða á kvöldin og næturnar, þá er stöðvun atvinnuveganna ekki heppileg fyrir þjóðfjelagið. En til þess að fá eitthvað unnið á, þá verður líka að fórna einhverju. Er verkalýðurinn hefir ekki önnur vopn, þá verður hann að neyta síns frjálsa vilja og afls samtakanna, og neita að vinna, nema fyrir rjettlátt kaup. Fyrst verður að athuga það, hvort holt sje að verkalýðurinn sje illa klæddur, hafi ljelegt fæði, búi í illum húsakynnum, fái ljelega mentun og hafi lítil tækifæri til að menta börn sín betur. Í öðru lagi er vert að athuga, hvort ekki sje rjettlátt og heppilegt, að verkalýðurinn hafi ráð um sína eigin tilveru. Þessar spurningar hljóta að vakna, er rætt er um hagsmuni verkamanna af verkföllum. Meðan verkalýðurinn getur bætt aðstöðu sína í þjóðfjelaginu, jafn miklum misrjetti sem hann er beittur þar nú, er verkfallið, þetta skæða vopn, ekki aðeins afsakanlegt, heldur væri óafsakanlegt af verkalýðnum að neyta þess ekki og láta halda áfram að traðka á sjer.
Hv. þm. Dal. (SE) kom með þá skýringu á frv., að dómurinn ætti ekki að vera bindandi fyrir aðilja, heldur ætti hann að leggjast með siðferðilegum þrýstingi að aðiljum og skapa almenningsálit. Þetta fer þó bæði í bág við það, er aðrir hafa sagt hjer í hv. deild og eins frv. Samkv. frv. verður sá aðili skaðabótaskyldur, er rýfur dóminn. En ef þessu væri ekki svo farið, hvernig gæti dómurinn þá, eins og grg. frv. segir, „afstýrt“ verkföllum og verkbönnum. Hann gæti einungis gert annan aðila vinsælli hinum! En sá sigrar ekki ávalt, sem er vinsælastur, og því síður baráttulaust.
Þá sagði sami hv. þm., að alt væri undir því komið, hversu vel rökstuddur dómurinn væri. En það hugsa jeg, að fjölda þeirra manna, er aðhyllast kenningar jafnaðarstefnunnar, finnist ekki rök þeirra manna um kaupgjald aðlaðandi, er dóminn mundu skipa samkv. frv. í dóminn mundu veljast borgaralega hugsandi menn, og er ekki líklegt, að þeir geti fallist á kröfur verkamanna um síbatnandi kjör og sívaxandi yfirráð yfir atvinnu sinni. Lífsskoðun manna er aðalatriðið, og það er ekki við því að búast, að menn annarar skoðunar aðhyllist lífsskoðun jafnaðarmanna, þegar í dóminn kemur. Það er ekki hægt að fá rjettlætið út með því, að helminga lífsskoðanir aðilja og leggja þær svo saman í einn graut!
Þá sagði hv. þm. Dal., að gerð væri æskileg til að gera út um þessi mál, eins og mál milli ríkja. En þar er margt, sem á milli ber. Í fyrsta lagi eru milliríkjamál ekki lögð í gerð, nema aðiljar komi sjer saman um. Þeir halda sjálfsákvörðunarrjettinum. Í öðru lagi er tiltekinn viss uppsagnarfrestur í öllum milliríkjasamningum. Og loks hefir gerðin þar vissan rjett til að fara eftir, þjóðarjettinn. Það er ekki tilviljun, hvernig gerðin fellur, heldur er þar að fara eftir viðurkendum rjetti.
Það kom vel út hjá hv. þm. V.-Sk., hvað það væri, er gerði hann fylgjandi frv. Hann sagði, að ekki þyrfti dóm, ef engin væru samtökin. Það voru samtök verkalýðsins, sem voru honum Þrándur í Götu. Samt taldi hann, að samtökin gætu verið góð, ef ekki væri gengið of langt í kröfum og æsingum. Hvað meinar hv. þm.? Jeg hygg, að ekki sje gengið hjer á landi of langt í kaupkröfum. Engar æsingar hafa farið fram í sambandi við sjómannaverkfallið nýafstaðna. En jeg hjelt þó, að hv. þm. notfærði sjer „æsingar“ í sínu eigin kjördæmi, er honum þætti við þurfa, engu síður en aðrir. Hann sagði, að það hefði eigi við rök að styðjast, að hækkun kaups stafaði af verkföllum. Það er satt að segja leitt að þurfa að svara öðru eins. Hjer á landi skapaðist ekki almennur taxti verkakaups, fyr en tekið var til verkfalla. Áður rjeð geðþótti atvinnurekenda öllu þar um. Og á hvaða hátt geta verkalýðsfjelögin framfylgt kröfum sínum um hærra kaup, ef á að banna þeim að gera verkföll? Þau eru eina vopnið, þó að oft þurfi ekki að neyta þeirra, af því að allir vita, að hægt er að neyta þeirra. Hann benti á, að í sjómannaverkfallinu síðasta hefði ávinningurinn verið minni en því nam, er stöðvunin kostaði. Jeg skal benda á, að áhrifa verkfalla gætir á tvennan hátt, auk hins líðandi kaups. Í fyrsta lagi hækkar grundvöllurinn undir kaupsamningum, og þau áhrif geta staðið heilan mannsaldur. Og í öðru lagi, — og það er einna mest virði, — fá atvinnurekendur fulla vitneskju um, að þeir geti ekki einir öllu ráðið. Það á ekki við, að nota verkföll sýknt og heilagt, í tíma og ótíma. En atvinnurekendur vita það, að þeir geta altaf átt von á stöðvun, ef þeir ekki ganga að rjettmætum kröfum.
Það held jeg sje sleggjudómur hjá hv. þm., er hann segir, að mótstaðan gegn frv. þessu stafi aðallega frá foringjum verkamanna, en þeir sjeu þar að vinna fyrir sjálfa sig, því verkföll sjeu þeim til hagsmuna. Það er víst, að við, sem hjer sitjum á þingi sem fulltrúar verkamanna, þiggjum ekki laun fyrir störf okkar í þeirra þágu. En hægt væri að leggja sama bragðið á hv. þm. og hans flokk, svo að hann stæði nokkuð höllum fæti, ef spurt væri um afstöðu ýmissa kaupfjelagsstjóra og stjórnenda til samvinnustefnu. En slíkt sannar auðvitað ekkert.
Þá sagði hv. þm. það, að með frv. þessu fengjum við það, er við hefðum krafist: reikningana á borðið. Það er satt, að ætlast er til, að þessir fáu útvöldu menn, er dóminn sitja, fái að sjá reikningana. En yfir þeirra störfum á að hvíla launung. Þeir eru bundnir þagnarheiti. Það getur ekki skapað neinn dóm yfir dómnum, engan dóm almennings. Almenningur fær ekkert að vita. En þáltill., sem ræða á hjer á eftir, er á þá leið, að full vitneskja fæst um það, hver sje hagur útgerðarinnar. Ef hún verður samþ., þá getur almenningur gert sjer skoðun um málið. Og ef þetta er aðalatriðið fyrir hv. þm., þá ætti hann að fylgja þáltill., en ekki frv.
Þá vildi hv. þm. afsaka framkomu sína gagnvart skaftfellskum sjómönnum með því að segja, að sjómenn hefðu eigi komið til sín og sett sjer nein skilyrði, áður en kosið var. Hv. þm. er kunnugt um það, að þeir eru ekki svo mjög fáir, er stunda sjó á togurum hjer í Reykjavík, sem ættaðir eru úr Skaftafellssýslu, og eru margir þeirra, sem þar eiga lögheimili og kosningarrjett. Þeir eru fleiri en atkvæðamunurinn varð við síðustu kosningar. Og það vita bæði andstæðingar hans og fylgismenn, að það voru atkvæði sjómanna, er baggamumnn riðu. Hv. þm. mátti vita, að hann yrði dæmdur eftir sömu reglu og aðrir Framsóknarmenn. Framsókn hafði sýnt fullan skilning á vökulögunum og þm. gat ekki neins ágreinings í því flokksmáli Framsóknarflokksins. En hann brást þar. Hv. þm. mintist á það, að sjómenn þeir, er hingað hefðu komið í vetur, hefðu áreiðanlega ekki komið í þeim tilgangi að gera verkfall. En jeg vil beina spurningu til hv. þm.: Hvort vildu þessir sjómenn heldur hækkað kaup eða lækkað? Hvort vildu þeir heldur vinnudóm eða fullan sjálfsákvörðunarrjett yfir vinnu sinni? Hvort vilja þeir heldur 18 tíma vinnudag eða 16? (LH: Öllu þessu svaraði jeg rækilega í gær). Því er ósvarað enn, og jeg heyri, að hv. þm. ætlar ekki að svara þeim spurningum. Hann getur það ekki.
Hv 2. þm. G.-K. (ÓTh) talaði um það, að sjómenn kæmu fram með óhæfilegar kröfur í byrjun samninga. Þessu hefir verið svarað af öðrum. En jeg skal minnast hjer á aðferð verkamanna í landi. Jeg staðhæfi, að í deilum þeim, er þeir hafa átt, hafa þeir yfirleitt sett fram þær kröfur, er þeir hafa framfylgt. Árið 1922 eða 1923 varð hjer snögg verðbreyting upp á við. „Dagsbrún“ gerði þá kröfu um kauphækkun. Verkamenn kröfðust að fá kr. 1.50 um klst., í stað kr. 1.20, er þá var taxti. Síðast gekk fjelagið inn á að taka kr. 1.10 um klst. En það var ekki nærri því komandi; atvinnurekendur neituðu að ganga að því. Þá var látið til skarar skríða, og varð verkfall í nokkra daga. Þá ljetu útgerðarmenn undan og ljetu vinna eftir taxta þeim, kr. 1.40, er fjelagið hafði sett. Það er ekki hægt að segja, að í þessu verkfalli hafi „Dagsbrún“ byrjað með hærri kröfur en hún hafi ætlað sjer að ná. Síðast átti „Dagsbrún“ í samningum fyrir 2–3 árum. Kaup var þá kr. 1.40 um klst. Útgerðarmenn fóru fram á lækkun og komu saman nefndir aðilja. Verkamenn buðu strax nokkra lækkun, en það lengsta, sem þeir vildu fara, var kr. 1.20 um klst., og var útgerðarmönnum sagt það á öðrum fundi. Útgerðarmenn fjellust ekki á þetta. Eimskipafjelagið gekk þá að þessu kaupgjaldi, og var um það gerður samningur milli „Dagsbrúnar“ og Eimskipafjelagsins, en útgerðarmenn vildu ekki fara hærra en í kr. 1.18 um klst., eftir langa streitu.
Jeg var þá í samninganefnd, og átti tal við hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh). Og af því, er hann sagði þá, sannfærðist jeg um það, að atvinnurekendur vildu ekki greiða hærra kaup en kr. 1.18 um klst., og mundu heldur leggja togurunum í höfn um langan tíma, en að fallast á það. Af þessu mælti jeg með því á fundi í fjelaginu „Dagsbrún“, að gengið yrði að þessu kaupi, enda þótt jeg viðurkendi, að þeir, er vinna við togarana, hafa miklu erfiðari og verri vinnu en þeir, er vinna við önnur gufuskip. En þetta gerði jeg aðeins vegna þess, að jeg áleit, að ekki væri unt að komast hærra. En svo fóru leikar í fjelaginu, að verkamönnum þótti misrjettið of mikið og neituðu að ganga að kr. 1.18 um klst., en samþ. að kaupið skyldi vera kr. 1.20, eins og rjett var, úr því þeir treystu sjer til þess. Og eftir tiltölulega stutt verkfall urðu úrslitin þau, að útgerðarmenn auglýstu sjálfir sem kauptaxta kaup það, sem verkamenn höfðu samþ., kr. 1.20 um tímann, sem „Dagsbrún síðan neyddi útgerðarmenn til að undirskrifa samninga um.
Þetta sýnir, að í vinnudeilunum milli „Dagsbrúnar“ og útgerðarmanna hafa þeir síðarnefndu gengið óhreint að verki, þar sem þeir ljetu fulltrúa sína segja annað en það, sem þeir meintu. Vil jeg sjerstaklega taka fram, að hv. þm. G.-K. er viðurkendur af okkur öllum, er staðið hafa í slíkum vinnudeilum af hálfu verkamanna, sem óáreiðanlegasti maðurinn, sem atvinnurekendur hafa hjer á landi. Það er því ekki von, að slíkum mönnum sje treyst. Það getur því aðeins orðið, að þeir komi einlæglega fram við samningatilraunir, en reyni ekki sífelt að blekkja hinn samningsaðiljann. Reynsla „Dagsbrúnar“ í viðskiftum hennar við útgerðarmenn er því sú, að kaupkröfunum fáist frekar fullnægt, þegar fjelagið setur ákveðinn taxta, heldur en ef það reynir að semja við atvinnurekendur. Það er því eðlilegt, þó mikill hluti Dagsbrúnarmanna sje á móti því að semja við þessa menn, en vilji heldur setja taxta.
Jeg fyrir mitt leyti var lengi með því að semja, en reynslan hefir stöðugt gert mig efasamari um rjettmæti þeirrar aðferðar, þegar jeg hefi komist að raun um, hverskonar menn andstæðingarnir eru.
Hv. 2. þm. G.-K. sagði, að friðsamleg samtök væru vopn verkalýðsins, en verkföllin væru vopn verkalýðsleiðtoganna. Hvað sem því nú líður, þá er svo mikið víst, að þegar hann hefir mátt ráða, hefir hann heldur kosið verkfall en friðsamlega sáttaumleitun.
Hv. þm. beindi þeirri spurningu til mín, hvaða álit jeg hefði á þeim tveimur sáttasemjurum, er hjer hefðu verið. Jeg veit nú ekki hvaða þýðingu það getur haft í þessu máli, að jeg fari að láta í ljós álit mitt á þeim. Annars má geta þess, að tillaga síðasta sáttasemjara fól í sjer mun lægra kaup heldur en það, er sjómenn báru úr býtum, og hefði hann því getað verið nær kröfum þeirra. Hinsvegar efast jeg ekki um það, að báðir sáttasemjararnir hafa í þessum málum farið eftir bestu sannfæringu, en þeir hafa báðir verið úr borgaralegri stjett manna, og hafa því vitanlega hugsað sem slíkir. Þeir hafa átt örðugt með að skilja afstöðu verkamanna, og ekki þekt kjör þeirra nægilega. Þó er jeg sannfærður um það, að verkamönnum er yfirleitt ekki í nöp við þessa menn, en mundu hinsvegar aldrei kjósa þá í gerðardóm, sem skyldi ákveða, hvaða kaup væri goldið, frekar en aðra þá menn, sem þeir vissu ekki fyrirfram um hvaða stefnu hefðu í slíkum málum.
Jeg gæti haldið lengi áfram að skýra frá samningaumleitunum er sýna, hvernig útgerðarmenn og ýmsir atvinnurekendur líta á þessi mál. Hjá þeim vill það oft verða svo, að „pólitíkin“ ræður þar meira heldur en áhuginn á því að verða við sanngjörnum kröfum verkamanna. Löngunin til að kúga er oft meiri en til að græða fje. En jeg skal nú láta mjer nægja að nefna eitt dæmi.
Verkamenn hafa jafnan haft áhuga fyrir því, að koma lausavinnu hjer við höfnina í fastara horf, svo að þeir, sem þar vinna, gætu haft nokkurnveginn fasta atvinnu. Til þess að ráða bót á þessu komu þeir með till., sem var mjög aðgengileg fyrir útgerðarmenn, og sem hefði leitt til þess, að verkamenn þeir er stunda þessa lausavinnu, hefðu ekki heimtað eins hátt tímakaup og þeir nú neyðast til að gera. Till. þessi var á þá leið, að sett yrði upp ráðningarskrifstofa við höfnina. Skyldu útgerðarmenn og aðrir vinnuveitendur ávalt snúa sjer til hennar, er þeir þyrftu að láta vinna eitthvað. Sjerstakur maður skyldi veita skrifstofunni forstöðu, og áttu verkamenn að greiða honum kaup hans, en útgerðarmenn halda eftir til þess ½ eyri um klukkustund af kaupi hvers verkamanns. Þetta fyrirkomulag hefði getað haft mikla þýðingu, því þá hefði ekki verið hleypt að fleiri mönnum en góðu hófi gegndi, og vinnan því orðið jafnari og öruggari fyrir þá, er stunduðu hana. Ráðningarstjórinn átti að útnefnast af „Dagsbrún“. Að þessu vildu útgerðarmenn ekki ganga, því að þeir óttuðust, að þetta mundi styrkja verkalýðsfjelögin um of. Þótt verkamenn fengju fasta vinnu og útgerðarmenn gætu þá greitt heldur lægra tímakaup, þá stoðaði það ekki, er útgerðarmenn hjeldu að samtökin mundu græða á því.
Af sömu ástæðu mun það vera, að útgerðarmenn fjandskapast nú mjög gegn verkamannafjelaginu „Dagsbrún“, vegna þess að það hefir haft sterk samtök um það, að meðlimir þess einir gangi að allri vinnu hjer í bænum. Hafa útgerðarmenn meira að segja haldið fundi til að ráðgast um það, hvernig hægt væri að sporna við slíkum samtökum. Þó hygg jeg, að það muni aðallega vera einstakir menn er vaða þannig uppi og láta pólitík hafa meiri áhrif á sig en góðu hófi gegnir, en á þessum mönnum ber mest á þingi, og þeir standa að baki þessu frv.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál. Það lítur svo út, sem þeir stærri flokkarnir tveir sjeu ákveðnir í því, að láta þetta mál fara í gegnum þessa umræðu. En jeg get ekki sjeð ástæðu til þess að láta nefnd athuga þetta mál, og vart trúi jeg því, að slíkt frv. sem þetta verði samþykt hjer, meðan Alþingi er eins skipað og það er nú. Enda væri það til einskis. Verklýðsfjelögin mundu ekki láta kúga sig til að þola slíkan yfirgang og ójöfnuð. Jeg get ekki skilið, að hv. þm. láti sjer sæma að samþykkja, í óþökk verkalýðsins, frv. er snertir hann jafnmikið og þetta frv. gerir.