10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í C-deild Alþingistíðinda. (2924)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Frsm. 1. minni hl:
(Magnús Guðmundsson): Það má kannske um það deila, hver fyrst eigi að taka til máls, því n. er þríklofin. Annars er jeg búinn að hálfgleyma þessu máli, því svo langt er síðan n. hefir um það fjallað. Frv. er eitt af þeim fyrstu, er fram var borið, eins og sjest á því, að það er þskj. 33. Það hefir þannig komið alveg í bælana á stjórnarfrv. En þrátt fyrir þetta hefir það átt svo erfitt uppdráttar, að nú fyrst, mánuði eftir að nál. er dagsett, er það tekið til 2. umr. Jeg skal ekki fara mörgum orðum um frv., svo ekki sje það mjer að kenna, þótt umr. verði langar, en jeg vil með fáum orðum skýra frá áliti minni hl. allshn. á þskj. 197.
Minni hl. lítur svo á, að vinnustöðvun sje eitt hið mesta böl þjóðfjelagsins og álítur, að skylt sje að freista þess að finna ráð til að fyrirbyggja hana. Þá liggur nær að neyta hinna sömu aðferða sem notaðar eru yfirleitt til að setja niður deilur manna á milli, dómstólana. Allar deilur manna á milli eru settar niður af dómstólum og ekki einungis það, heldur er nú líka mjög uppi á teningnum að útkljá á þann hátt deilur þjóða á milli. Enda veit jeg ekki til, að fundin sje önnur betri leið til að jafna deilur en óvilhallur dómur.
Við föllumst því á frv. og teljum það munu verða til að draga úr vinnudeilum, og þó við flytjum nokkrar brtt. við það, þá eru þær á engan hátt til að draga úr frv.
Fyrsta brtt. er um það, að fella niður 2. lið 1. gr., ekki af því að mál þau, sem þar eru nefnd, gætu ekki heyrt undir vinnudóminn, heldur af því, að við álitum ekki rjett að setja þau í sjerstakan dóm, heldur geti hinir almennu dómstólar skorið úr þeim.
Á 2. gr. viljum við gera þá breytingu, að á eftir orðinu „hæstarjetti“ komi: og forseta vinnudóms. Er það jafnnauðsynlegt fyrir báða, hæstarjett og forseta vinnudóms að vita, hvenær máli er vísað til vinnudóms.
Aðalbreytingin er við 4. gr. um skipun dómsins. Við leggjum til, að dómur verði þannig skipaður, að hvor aðili tilnefni 3 menn og ryðji tveim af þeim, sem hinn tilnefnir. Verður þá eftir einn maður tilnefndur af hvorum aðila, hjeraðsdómarinn og tveir menn, sem hæstirjettur tilnefnir. Við göngum út frá því, að þeir, sem aðiljar tilnefna, verði málfærslumenn fyrir þá, sem deila, en ætlumst til, að þeir tveir menn, sem hæstirjettur skipar, og formaður dómsins, verði óhludrægir í málinu. Og við teljum dóminn nægilega fjölskipaðan, þar sem hæstirjettur er jafnvel ekki skipaður nema þrem mönnum. — Aðrar breytingar á 4. gr. eru ekki stórvægilegar, og skal jeg því ekki tefja tímann á því að fara út í þær.
4. og 5. brtt. skal jeg ekki fara út í. Þær eru í raun og veru ekki mikils verðar, en við teljum það orðalag betur fara en það, sem í frv. er.
Jeg vona, að jeg hafi ekki með þessum fáu orðum gefið tilefni til langra umræðna. Málið var það mikið rætt við 1. umr., að það er að bera í bakkafullan lækinn að fara að ræða það nú. Þá stóðu umr. yfir í 4–5 daga og vona jeg, að þá hafi grynst nokkuð á því, sem segja þarf um málið.