10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í C-deild Alþingistíðinda. (2931)
33. mál, dómur í vinnudeilum
Frsm. 1. minni hl. (Magnús Guðmundsson):
Jeg þarf ekki miklu að svara og skal jeg byrja á síðasta ræðumanni.
Hann talaði um það, að dómsúrslit væru bindandi sem dómur alment. Þetta er rjett. En hvernig hljóðar þessi dómur? Sá sem vinnur má ekki heimta hærra kaup en ákveðið er, og sá sem lætur vinna má ekki greiða hærra. Það kaup, sem á að greiða, er ákveðið. Dómurinn segir, að þegar unnið sje, þá skuli þetta kaup gilda. Hitt kemur ekki málinu við, hvort verkamenn vilja vinna eða hvort vinnuveitendur vilja láta vinna. Það þarf því enga lögreglu, því að hver og einn er sjálfráður, hvort hann vinnur. Það er alveg eins og nú. Það er vitleysa, að hjer sje verið að þvinga menn til að vinna. Það er aðeins verið að taka frá mönnum tálvonir um að þeir geti þrýst kaupinu annaðhvort upp eða niður.
Hv. þm. mintist á löggjöf annara þjóða og sagði, að norsku lögin fjellu úr gildi nú í vor. Þau falla úr gildi 1. ágúst í sumar. En jeg hefi hjer í höndum úrklippu úr norsku blaði, þar sem sagt er frá, að bændaflokkurinn norski stingi upp á að framlengja lögin. Og stjórnarflokkurinn norski hefir lýst yfir fylgi við lögin, svo að líkur eru til, að þau verði framlengd.
Hv. 2. þm. Reykv. var að tala um, að dómstóllinn hlyti að verða hlutdrægur gagnvart verkamönnum. — Jeg get ekki sjeð það. — Yfirleitt mun sú tilfinning ríkja hjá dómurum, að gera það eitt, sem rjett er. Jeg sje ekki ástæðu til að væna þessa dómara frekar öðrum um að gera annað. — Þá sagði hv. þm., að ekki mætti setja lög móti vilja hlutaðeigandi stjettar. En jeg er alls ekki viss um, að verkamenn sjeu á móti frv., og alveg viss um, að engin stjett er á móti því, að dómur segi til um, hvað álítast megi rjett kaup.
Hv. 2. þm. Rang. sagði, að hjer vantaði lögregluvald og jafnvel hervald, ef setja ætti slíkan dómstól á stofn. Þessu hefi jeg svarað áður með því að sýna fram á, að þess er ekki þörf frekar en nú. Ef nú er hægt að komast af án þess, þá er það eins hægt, þó vinnudómstóll verði settur.
Hv. 2. þm. G.-K. svaraði hæstv. dómsmrh. öllu sem þurfti, og þarf jeg því ekki að fara út í það. Hann hjelt, að við myndum ekki geta leyst málið á þennan hátt frekar en aðrar þjóðir. En það eru ýmsar þjóðir, sem hafa freistað að leysa málið, og mjer er ekki kunnugt, að neinar hafi farið þessa leið. Jeg er því ekki vonlaus um, að þetta megi að gagni verða. Það er heimskra manna háttur að halda, að deiluaðiljar vilji ekki hlíta óvilhallra manna dómi, og í síðustu kaupdeilu var málið einmitt lagt undir úrskurð hæstv. forsrh. En það var þá fyrst gert, er búið var að þrengja að aðiljum og þeir höfðu beðið stórskaða.
Grundvallar misskilningurinn liggur í því, að halda því fram, að með þessu eiga að þvinga menn til að vinna, þó þeir vilji það ekki. Það er ekki tilgangurinn. Tilgangurinn er sá, að svifta aðilja öllum tálvonum um kauphækkun eða kauplækkun. Reynslan sýnir, að það eru þessar tálvonir, sem eru undirrót kaupdeilna. Sjeu þær teknar burt, hafa kaupdeilur ekki neitt til að lifa á.