04.03.1929
Neðri deild: 13. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1279 í C-deild Alþingistíðinda. (2972)
52. mál, útsvör
Bernharð Stefánsson:
Hv. þm. Borgf. sagði, að kvartanir yfir útsvarslögunum væru aðallega komnar úr bæjunum og þá sjerstaklega frá Siglufirði. En jeg verð að segja, að jeg hefi engu síður heyrt umkvartanir úr sveitum. Hafa sveitastjórnir talið erfitt að framfylgja lögunum. T. d. mun töluvert vera farið að brydda á því, að menn, er leika nokkuð á lausum kili, velja sjer lögheimili eftir því, hvar minst eru sveitarþyngsli, án tillits til þess, hvar þeir í raun og veru dvelja og hafa atvinnu sína. Með þessu er verst stæðu hreppunum sköpuð hætta af teknamissi. Enn var það óþægilegt sveitunum, að reikningsárinu var breytt. Sú venja, að miða reikningsárið við fardagaárið, er gömul og bygð á ástandi sveitanna. Við það er og margt annað miðað. Jeg skal þó ekki gera mjög mikið úr þessum óþægindum.
Hv. þm. gerði mikið úr ranglæti Siglfirðinga í útsvarsálagningum á liðnum árum. Hefir það og heyrst fyr úr þessari átt, en aldrei verið rökstutt. Verð jeg að mótmæla þeim aðdróttunum til kjósenda minna, meðan engin rök eru færð fram og líta á þær sem hvern annan sleggjudóm, er ekki hafi við staðreyndir að styðjast. En hitt, að atvinnurekendur á Siglufirði hafa kvartað, sannar ekkert. Þeir vilja náttúrlega bera sem mest úr býtum, njóta allra þeirra rjettinda, er bærinn veitir, en greiða sem minst til hans. En það sannar alls ekki, að þeim hafi verið sýnt órjettlæti.
En hitt er alvarlegt, þegar stefna löggjafans hefir um langan tíma gengið í ákveðna átt og sveitir hafa bygt á, að hún mundi haldast, ef þá er alt í einu snúið við blaðinu. Það var gert með útsvarslögunum frá 1926, og urðu þá ýmsar sveitir fyrir stórkostlegum tekjumissi fyrirvaralaust, þar á meðal Siglufjarðarkaupstaður.