09.03.1929
Neðri deild: 18. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í C-deild Alþingistíðinda. (2978)
53. mál, dýrtíðaruppbót
Flm. (Magnús Jónsson):
Jeg hefi flutt þetta frv. fyrir tilmæli Sambands starfsmanna ríkisins.
Eins og hv. þm. er kunnugt, hafa starfsmenn ríkisins við og við verið að kvaka til þingsins um einhverjar bætur á kjörum sínum undanfarin ár, ýmist margir í hóp eða færri. Dýrtíðaruppbót sú, sem starfsmönnum ríkisins er ætluð með lögum frá 1919, hefir af óviðráðanlegum atvikum lækkað um hjer um bil %. Það má sjá af þskj. 58, bls. 19–20, hvernig í þessu liggur. Þegar var verið að undirbúa útreikning á dýrtíðaruppbótinni, þá voru tvær aðferðir að velja um. Önnur var sú, að reikna sem flestar vörur með, sem menn nota, og fjekst þá út vísitalan 2,57. Hin aðferðin var að taka aðeins nokkrar matvörur og reikna eftir þeim. En út úr þeim reikningi kom verðstuðullinn 3,17. Það var nokkuð sama, hvor aðferðin var notuð, hvort teknar voru allar vörur og reiknuð dýrtíðaruppbót á öll launin, eða teknar matvörur og uppbótin miðuð við 2/3 launa. Sú aðferð er einfaldari, og var því valin. En hvað skeður? Á næsta ári lækka þessar vörur, þannig að þær komast niður í sama verð og vörur alment eða niður fyrir það. Svo að þetta, sem átti að vera aðferðamunur, hefir orðið til þess að svifta starfsmenn ríkisins síðan 1/3 dýrtíðaruppbótar. Kannske þetta hafi verið heppilegt, — að þingið 1919 hafi farið of langt. En hitt er áreiðanlegt, að starfsmennirnir hafa mist 1/3 af því, sem það þing ætlaðist til að þeir fengju.
Jeg held það sje alveg áreiðanlegt, að af öllum stjettum þjóðfjelagsins sjeu starfsmenn ríkisins lakast settir, ef miðað er við árið 1914 eða þann tíma, áður en dýrtíðin hófst. Ef þeir eru eins vel settir og aðrir, væri það aðeins. af því, að þeir hafi haft betri kjör 1914 en aðrir. En jeg held, að nálega allar stjettir, sem á launum lifa, hafi hækkað til muna meira síðan 1914. Það er dálítið á þetta minst í áliti um launamálið, sem jeg ljet prenta með frv. Alment verkamannakaup hefir hækkað margfalt meira — án þess að jeg sje að hafa á móti kauphækkun þeirra í sjálfu sjer eða vekja umr. um það. En mjer virðist það hafa hækkað um 300% á sama tíma sem dýrtíðaruppbót starfsmanna ríkisins er sú, sem hjer er sýnt í frv. Eins er t. d. um þá handverksmenn, sem búa við fasta samninga, nefnilega prentara, þeir hafa nú hækkun, sem nemur 138%. Það svarar til þess, að dýrtíðaruppbót embættismanna væri yfir 100%. Ef til vill voru prentarar ver settir áður en dýrtíðaruppbótin var hækkuð. En hvað sem því líður, þá hefir engin fjölmenn stjett á landinu eins litla hækkun fengið síðan dýrtíðaruppbótin var tekin upp eins og starfsmenn ríkisins, allur þorri þeirra, þó að stöður kunni að vera innan um, þar sem launin hafa hækkað sæmilega.
Jeg ætla ekki við þessa umr. að gefa tilefni til umræðna. Mjer þykir sennilegt, að hv., þdm. vilji líta velvildaraugum á þetta mál starfsmanna ríkisins og láta athuga það í nefnd fyrst og fremst.
Eins og sjest á áliti því um launamálið, sem birt er hjer með, þá mundi þessi hækkun upp í 51% nema um 300 þús. kr., ef teknir eru með barnakennarar. Og þó að það sje nokkuð mikil upphæð, þá er hún samt sem áður ekki ægileg, þegar miðað er við jafnstóran part útgjalda ríkissjóðsins og starfsmannalaun eru í heild. Og sjerstaklega mun það erfitt fyrir hið háa Alþingi að standa mjög fast á móti sanngjarnri ósk sinna starfsmanna, þegar jafnvel er farið að leggja út á þá braut, að ríkið borgi nokkra hlutdeild í kaupi starfsmanna við einkafyrirtæki, eins og Eimskipafjelagið, sem jeg ætla þó ekki við þetta tækifæri að gera að umræðuefni. En það er nær skinnið en skyrtan, og það hlýtur þá að vera fyrst og fremst sjálfsagt fyrir ríkið að sinna rjettmætum óskum sinna eigin starfsmanna, áður en það seilist þar út fyrir.
Eins og hv. þm. sjá, er þetta alllangt þingskjal með svo stuttu frv. Starfsmannasambandið, sem hefir undanfarin ár oft óskað eftir bót á kjörum starfsmanna ríkisins, rjeðst í það að vinna málið talsvert mikið út og er niðurstaðan prentuð með frv. Auðvitað hefir þessi rannsókn ekki hepnast eins vel eins og ef milliþinganefnd hefði fjallað um málið, en jeg hygg þó, að í þessu áliti sjeu svo margvíslegar upplýsingar um launamálið, að erfitt verði að hrekja það með rökum, að það sje farið mjög varlega í sakirnar, þegar óskað er eftir hækkun upp í 51%.
Það er kannske þörf að minnast á, hvers vegna farið er fram á einmitt 51%. Það er einmitt af þeirri ástæðu, sem jeg nefndi áðan, að dýrtíðaruppbótin skertist um 1/3, vegna þess, hvernig vísitalan var reiknuð. í hagtíðindunum er vísitalan reiknuð óskert. Hún var í fyrra 60% og er nú 51%. Hjer er því aðeins farið fram á að miða við vísitölu hagstofunnar. Auk þess er farið fram á að nema burt takmörkun við 4500 kr. og eins 9500 kr. laun og dýrtíðaruppbót samtals. Það er aðeins til þess, að samræmi milli uppbótar í mismunandi launaflokkum ruglist ekki.
Það hefir komið fram till. um það í hv. Ed., að ákveða dýrtíðaruppbót fyrir næsta ár 40%. Sú till. er miðuð við að halda dýrtíðaruppbótinni eins og hún var á síðasta ári. Það er ómögulegt að fá þá tölu út við útreikning á dýrtíðaruppbót. Talan er alveg út í bláinn, miðast ekki við annað en að halda því ástandi, sem var á síðasta ári.
Jeg ætla svo ekki að fjölyrða um þetta frekar. Vonast til þess, að jeg hafi ekki gefið tilefni til langrar umr. að sinni. Jeg vona, að hið háa Alþingi meti starfsmenn ríkisins það mikils, — ekki síst þar sem þeir hafa undirbúið þetta mál svo vel, að þeir taki málið til velviljaðrar athugunar í nefnd. Geri jeg að till. minni, að því verði vísað til hv. fjhn.