13.03.1929
Neðri deild: 21. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í C-deild Alþingistíðinda. (2987)
55. mál, fátækralög
Hákon Kristófersson:
Jeg vil leiðrjetta þann misskilning hjá hv. 2. þm. Reykv. (HV), að orð mín hafi verið töluð fyrir hönd allshn. Það var síður en svo. Þessi fáu orð sagði jeg aðeins með hliðsjón af því, sem fram hafði komið í n. Og jeg vona, að jeg hafi ekki stygt hv. þm., þótt jeg ljeti þá skoðun mína í ljós, að frv. ætti ekki erindi til n.
Hv. þm. sagði, að þau dæmi, er jeg nefndi, hafi mælt með sínu frv. Það getur verið og verið ei. Það er svo margt, sem þarna getur komið til athugunar. T. d. getur það komið til mála, að gera sýslurnar að framfærsluhjeruðum. Mjer er sem jeg sjái alla þá úlfúð og skriffinsku, sem af því mundi leiða, að landið alt væri gert að einu framfærsluhjeraði! (HV: Skriffinskan mundi hætta.) Sú mundi nú hætta! Hvernig er reynslan með útsvarslögin? Er ekki óánægjan svo mikil, að til vandræða horfir, þegar hrepparnir eiga að fara að gera upp með sjer?
Þá nefndi hv. þm. það sem dæmi upp á ómannúðlegan fátækraflutning, að kona hefði verið elt af lögregluþjónum suður í Hafnarfjörð. (HV: Það er rjett.) Rjett? Ja, hvað hjet hún. Jeg vænti, að hv. flm. skýri frá því. (HV: Það var ekki Kristin Breiðfjörð). Nú, það var ekki hún. Einu sinni kastaði þó þessi hv. þm. til mín út af þeirri persónu, en jeg held að hann viti það nú, að þau orð hans voru ekki á rökum reist, og svo mætti ef til vill einnig vera að þessu sinni.
Sem sagt, jeg er ekki að hafa á móti því, að frv. verði vísað til n.; að minsta kosti er ekki nema sjálfsagt að sýna hv. flm. þá kurteisi. En allshn. hefir þegar gengið frá þeim breytingum, sem hún vill gera á fátækralögunum. Jeg persónulega mundi hafa hreyft fleiri brtt., en leit svo á, að sú hugsun væri ríkjandi í n., að rjett væri að láta lögin sýna sig betur, áður en tekið væri til að breyta þeim. En svo áberandi nauðsyn var á því að breyta 21. gr., að það mátti alls ekki dragast lengur. Þar með er þó ekki sagt, að fleiri breytingar hafi ekki verið mjög nauðsynlegar.