24.04.1929
Efri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í C-deild Alþingistíðinda. (3011)
59. mál, ófriðun sels í Ölfusá
Páll Hermannsson:
1 Ræðuhandr. óyfirlesið. Hv. þm. Snæf. (HSteins) sagði, að sjer fyndist gæta ósamræmis í frv., sem hann vildi leiðrjetta með brtt. sinni. Jeg er ekki samdóma hv. þm. um, að um nokkurt ósamræmi sje að ræða. Hv. þm. sagði, að eðlilegast væri, að annaðhvort greiddi ríkissjóður allar bætur vegna ófriðunarinnar eða engar. Jú, það má að vísu segja, að það sje eðlilegt, en það er ólíkt, hvort ríkissjóður vill fyrir sitt leyti láta niður falla kröfur til skaðabóta, heldur en að greiða hinar ýmsu kröfur manna þarna eystra. Þegar litið er á það, að prestssetur á í hlut, og veiðin er metin til tekna prestinum fyrir mjög væga upphæð, er þetta alveg óskylt því, hvort ríkissjóður vildi vera viðbúinn að taka að sjer greiðslur, sem kynnu að verða metnar hinum og öðrum.
Jeg verð að líta svo á, að svo geti staðið á, að það sje alveg rjett fyrir ríkissjóð að gera þetta, af því að hann munar það ekki miklu, en hinsvegar er það þýðingarmikið fyrir þann fjelagsskap, sem stendur að veiðibótum. Jeg þekki að vísu ekki vel þetta einstaka tilfelli, sem hjer er um að ræða, en í mínu bygðarlagi er jörð, sem ríkissjóður á, þar sem selveiði er ef til vill meiri en nokkursstaðar annarsstaðar. Þessar nytjar hafa ekki munað hann miklu, en nytjar landseta yrðu hátt metnar.
Að þessu athuguðu hlýt jeg að greiða atkvæði á móti brtt. hv. þm. Snæf.