24.04.1929
Efri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í C-deild Alþingistíðinda. (3014)
59. mál, ófriðun sels í Ölfusá
Fjmrh. (Einar Árnason):
Jeg gerði örfáar athugasemdir við þetta frv. við 2. umr. Jeg verð að segja um tillögu hv. þm. Snæf., að jeg er með henni að hálfu leyti. Hann hefir gengið lengra en jeg hefði viljað gera. Hann vill fella niður síðari málslið 3. gr., sem sje losa ríkissjóð við að greiða prestinum tap það, sem hann verður fyrir. Hinsvegar vil jeg til samkomulags hafa það svo, að laxveiðanotendur sjeu í framtíðinni lausir við að greiða bætur vegna Arnarbælis. Jeg held, að þessi hlunnindi sjeu metin á 50 krónur á ári, svo að það mundi tæplega koma á ríkissjóð meira en sem því svarar. En jeg vil, að ríkissjóður geti verið laus við nokkura breytingu á þessu, meðan núverandi prestur situr í Arnarbæli.