12.03.1929
Neðri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (302)
57. mál, löggilding verslunarstaða
Hákon Kristófersson:
Jeg hefi eiginlega ekkert sjerstakt um frv. að segja, annað en það, sem jeg sagði við 1. umr. þess. Jeg sje, að það er komin fram brtt. við það á þskj. 92 frá hv. þm. N.-Þ. Jeg hefi ekkert á móti henni, en leyfi mjer aðeins að leggja það til, að frv. verði samþ. með brtt. — Þessi Sigurðarstaðavík mun vera á miðri Melrakkasljettu að norðanverðu, og má telja hagkvæmt að fá slíkri löggildingu á komið. Og á það vil jeg benda, að ef þessi lög verða eigi til gagns, þá geta þau að minsta kosti ekki skaðað, með þeim takmörkunum, sem sett eru. Fleira hefi jeg svo ekki um frv. að segja, en býst við, að hv. d. sýni því sömu velvild og við 1. umr. og lofi því að ganga áfram.