27.03.1929
Neðri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1511 í C-deild Alþingistíðinda. (3065)

65. mál, myntlög

Magnús Torfason:

Jeg var svo óheppinn, að vera ekki viðstaddur, er hv. þm. Dal. (SE) svaraði ræðu minni. — Hann greip fram í ræðu mína og sagði, að Íslandsbanki hefði innleyst 3 milj. kr. af seðlum. Þessu hefi jeg ekki neitað. 31. okt. 1922 átti bankinn úti 8 milj. kr. í seðlum, en um 5 milj. kr. nú. Hann hefir því dregið inn 3 milj. kr. En það sem jeg efaðist um var það, að bankinn hefði borgað þessa upphæð, þótt hann að nafninu til hafi innleyst hana. Það hefir hann ekki gert. Hann skuldar það annarsstaðar. Hann hefir þurft á sífeldri hjálp að halda. Jeg vil leyfa mjer að beina þeirri spurningu til hv. þm., hvort hann þori að fullyrða, að Íslandsbanki skuldi Landsbankanum minna en 3 milj. kr., og hvort hann hafi ekki stundum skuldað honum meira en þetta. Jeg get fullyrt, að jeg hefi fylgst vel með reikningum Íslandsbanka, því mjer er ant um hann. Og því vil jeg grenslast eftir því, hvort Íslandsbanki sje búinn að greiða ameríska lánið. Var það ekki 1 milj. kr., sem hann fjekk þar? Þá fjekk bankinn víst hluta af enska láninu fyrir aðstoð ríkissjóðs. Ef eitthvað er til í þessu, sem jeg hefi nú talið, þá virðist mjer bankinn ekki geta kallast sjálfstæður banki. Það mun vera alment litið svo á, að þá sje mikil þörf fyrir höndum, er privatbankar þurfa að fá lán með ábyrgð ríkissjóðs. Það má því til sanns vegar færa, að bankinn sje — ekki að vísu á sveitinni — en áreiðanlega á ríkinu. — Út frá þessum hugleiðingum skilst mjer, að það sje rjettmætt að efast um, að þessi banki sje fær um að standa undir hækkun krónunnar. Sannleikurinn er sá, að fyrir hækkunina var bankinn kominn svo illa, að með hækkuninni var bankinn í raun og veru stýfður. Og hefði krónan þá farið upp í gullgildi, þá væri ekki stýfing krónunnar umræðuefnið nú, heldur blátt áfram stýfing Íslandsbanka.

Hv. þm. hafði verið að tala um að bankinn hefði grætt 3½ milj. kr. á hækkun krónunnar, sakir enska lánsins. Þetta skal jeg ekkert segja um. En við þetta er þó það að athuga, að þótt bankinn græði á þennan hátt, þá verða það skuldarar hans, sem tapa því. Jeg vissi til, að eitt togarafjelagið tapaði 130 þús. kr. á gengismun á þessum árum, og mátti þó illa við því.

Og þótt bankinn kunni eitthvað að græða á hækkun krónunnar, þá er það ekki frá öðrum tekið en viðskiftamönnum hans. Og tap viðskiftamannanna verður vitanlega þeim mun meira en gróði bankans, sem skuldir þeirra eru meiri en skuldir bankans í útlöndum.

Þá var hv. þm. enn að tala um, að þetta mál ætti að vera fráfararatriði fyrir stjórnina. Jeg veit, að þetta er einmitt hans hjartans mál, og muni því engin rök duga til að sannfæra hann í því. En sumir aðrir munu nú líta svo á þetta mál, að það sje svo langt frá því að stjórninni beri að fara frá, verði frv. ekki samþykt, að henni sje einmitt aldrei skyldara að sitja en þá.

Síðustu kosningar skiftust að miklu leyti um þetta mál. Þá lofaði „Framsókn“ að gera sitt ýtrasta til að hindra hækkun krónunnar. Og svo á að heimta að stjórnin flýji af hólmi, einmitt þegar mest á ríður. Ef stjórnin færi frá og ljeti hækkunarmenn um völdin, þá mundi hún svíkja helgustu kosningaloforð sín. Það er skylda hennar að hamla á móti því, að krónan verði hækkuð. Meðan hún getur það, á hún ekki aðeins tilverurjett, heldur hefir hún og skyldu til að sitja.

Hv. þm. hafði komið að því í ræðu sinni, að jeg fylgdist ekki vel með um mál Íslandsbanka og vissi ekki um mat eftirlitsmannsins á honum. En mat eftirlitsmannsins, — þess mæta manns, sem jeg ber fult traust til — var samt ekki talið einhlítt, hvað Landsbankann snertir. Jeg vænti, að hv. þm. muni það, að hjer var skipuð sjerstök nefnd til að skoða og meta hag þess banka. Og jeg þykist ekki hafa rjett til að byggja á neinu mati, fyr en það er rannsakað af nefnd, sem allir flokkar eiga fulltrúa í, og fá svo tækifæri til að bera sig saman um rannsóknina.

Hv. þm. Ísaf. sló því fram í ræðu í gær, að gengið væri fest niður á við, ef við festum það í 81. Jeg held nú, að ef það væri fest í 100, þá væri það fest upp á við. En sá er munurinn, að þá er meiri hætta á, að það sveiflist niður á við aftur. Annan mun get jeg ekki sjeð á þessu tvennu. Þegar komið er fram með þá grýlu, að búast megi við lækkun, eftir að gullkrónan er ákveðin, virðist mjer tvent koma til athugunar. Í fyrsta lagi, hvort þetta, sem hún er fest í, sje ekki of hátt, og í öðru lagi, hvort tímabært sje að festa krónuna í því gildi, sem hún hefir nú. Hv. sami þm. bar saman verkalaun í Frakklandi og Finnlandi, en þau eru svo misjöfn, eftir ástæðum, að ekki er hægt að miða við þau. Hv. þm. sagði ennfremur, að verkalaun væri hæst í Svíþjóð, enda væri krónan þar há, en jeg vildi þá benda honum á, það, að þetta orsakast ekki af því, að krónan hafi verið hækkuð í Svíþjóð, heldur af hinu, að fjármálum Svía hefir verið stjórnað vel, og þess vegna er það ekki nema eðlilegt, að þeir geti greitt verkalýð sínum gott kaup. Eftir þeim upplýsinguni að dæma, sem hv. þm. gaf um verkalaun hjer á landi, hjelt jeg, að hann mætti vel við una, en ef hann ekki gerir það fyrir hönd verkalýðsins, þá virðist það benda til, að von sje á frekari hækkun kaupsins, en það þarf síst að verða til þess, að ýta undir hækkun krónunnar. Hv. þm. talaði um kaupmátt krónunnar, en þóttist ekki skilja það orð, en jeg hjelt nú satt að segja, að það heyrði nú aðeins til barnalærdóminum í þessu máli, því að auðvitað er kaupmáttur hennar ekkert annað en kaupverðið, miðað við það, sem fyrir hana fæst. Annars gæti hv. þm. sjeð þetta í skýrslum hagstofunnar í því efni, en í þessu sambandi vil jeg þó geta þess, að þær eru ekki svo fullkomnar sem skyldi, og er stór synd, að ekki skuli hafa verið gengið betur frá þessu í upphafi, en jeg vík máske að því síðar. Það er alveg satt, að kaupmáttur krónunnar er misjafn á öllu landinu, og svo er því einnig farið í öðrum löndum. í Danmörku eru t. d. launin hæst í Kaupmannahöfn, en lægst aftur úti á landsbygðinni, og við því er ekkert að segja, því að þar er farið eftir skýrslum, sem gerðar eru á breiðum grundvelli. En menn þurfa ekki að leita svo langt. Við þurfum ekki annað en að fara hjer austur fyrir fjallið. Þegar borgað er hjer í Rvík kr. 1.20 á tímann, fá menn á Eyrarbakka 65 aura. (HG: Er það kaupmagn krónunnar?). Það má tala um kaup í þessu sambandi. Það er einn liður í kaupmættinum. Hv. þm. vildi gera greipilegan holskurð á öllu, þegar búið væri að selja afurðirnar, en hv. 1. þm. Skagf. hefir þegar bent á, að það gæti orðið hættulegt fyrir bankana, og ýmsir fleiri annmarkar eru á því, svo að jeg held, að þetta verði hálfgerð hrossalækning. Annars er alt það mál, með hækkun krónunnar, svo flókið og erfitt viðureignar, að jeg verð að álíta, að það mundi betur til fallið, að það yrði rætt í nefnd en hjer í þingsalnum, því að hjer kemur margt til greina. Hv. 1. þm. Reykv. talaði um, að það yrði að búa sterklega um verðfestinguna, en jeg get svarað honum því sama og hv. þm. Ísaf., en vil þó bæta því við, að ef krónan verður hækkuð upp í gullgildi, verður að búa enn þá rambyggilegar um hnútana. Hv. þm. undraði sig á, að jeg skyldi ekki hafa lýst ástandinu í Árnessýslu, en jeg hefi gert það undanfarin ár, og álit því þarflaust að tyggja það upp aftur. Hann sagði, að sýslan væri skuldug, og það er satt, en þær skuldir, er á heimi hvíla, eru til orðnar fyrir árið 1924, en ef sýslan hefði verið skuldlaus þá, þyrfti jeg ekki að kvarta. En hitt tók jeg fram, að byrðar manna hafa aukist stórkostlega. Maður, sem þurfti að reka 47 dilka í kaupstað 1924 sem afborgun af skuld sinni, þarf nú að reka 82, og allir hljóta að sjá, að það er miklu þungbærara. Enda þótt einmuna góðæri hafi verið frá því árið 1921, má þó segja: „Flýtur á meðan ekki sekkur“, um afkomuna í Árnessýslu, sökum þess, að altaf þrengir að. Gömlu mennirnir, sem voru skuldlausir, týna tölunni, en ungir menn og skuldugir taka við, en hinir, sem eitthvað eiga, flytja til Rvíkur, en áður hjálpuðu menn börnum sínum til að koma undir sig fótum, með ráðum og dáð.

Þá vildi hv. þm. segja, að bankarnir hjer hefðu verið sterkari og þolað betur gengishækkun en aðrir bankar á Norðurlöndum. Jeg veit það að vísu, að mikil bankahrun hafa orðið bæði í Danmörku og Noregi, en þar hafa líka verið bankar, sem hafa staðið eins og bjarg, og varið tugum miljóna til að standast hækkunina, og þeir eru ekki sambærilegir við okkar banka. Þar hafa líka verið bankar, í báðum löndunum, sem gefið hafa arð og hann mikinn. Í báðum þessum löndum hljóp ríkið líka undir bagga með bönkunum, en íslenska ríkið hefir sannarlega ekki fjármagn til þess. Hv. þm. vildi halda því fram, að þótt viðskiftamenn bankanna kynnu að tapa, þá kæmi það bönkunum ekki við beinlínis, en það kennir þeim vissulega við. Jeg verð að líta svo á, að af því að hann er guðfræðingur og „dogmatiker“, þá geti hann látið sjer detta þetta í hug, en jeg talaði um ótryggu skuldirnar, en ekki um þær töpuðu, og jeg býst við að aðrir skilji, við hvað jeg átti. Þá var hv. þm. að bera mjer það á brýn, að jeg vildi láta útlánsvexti hækka, en innlánsvexti lækka, en það hefi jeg aldrei sagt. Hitt sagði jeg, að þótt sparisjóðseigendur biðu tjón, þá fengju þeir það upp á annan hátt, og jeg er hissa á, að hv. þm. skuli koma fram með annað eins og þetta.

Annars voru aths. hans mjög svo veigalitlar, og engin ástæða fyrir hann að hrósa happi yfir því, sem hann hafði fram að bera, því að í margar staðhæfingar hans voru rangar. T. d. sagði hann, að afurðir lággengislands væru altaf í lágu verði, en það er ekki rjett. Það er nokkuð misjafnt í sama landi á sama tíma, og líka misjafnt frá ári til árs, t. d. í Þýskalandi. Jeg kom þangað 1923, og átti því kost á að kynna mjer þetta þar. Hvergi var þá dýrara að lifa. Þá talaði hv. þm. um blóma atvinnuveganna. Maður hefir að vísu heyrt talað um það áður, en það eitt er víst, að útgerðin stendur ekki með miklum blóma, enda líta bankarnir svo á, og standa á móti því að styrkja t. d. togaraútgerð með fje sínu, enda eru togarafjelög nú oft lögð niður og togararnir fengnir í hendur öðrum, sem eru máske ekki vel stæð heldur. Jeg ber ekki útveginn sjerstaklega fyrir brjósti, heldur landbúnaðinn, því að hann kemur í stað iðnaðarins annarsstaðar, og hann stynur undir þessu oki. Ef krónan hækkar, myndi honum hraka. Jeg tala þar af reynslu, því að 1924 rofaði til í Árnessýslu, og það leit um tíma út fyrir, að menn myndu geta klárað skuldir sínar og þeir fyltust af fjöri og lífsmóði, en svo kemur hækkunin, og þá dregur úr móði þeirra, og þeir eru ekki enn þá búnir að ná sjer. Slík voru áhrifin, sem hækkunin hafði á þessa sýslu, og þess vegna berst jeg á móti henni, og held því fram, að fyrst og fremst verði landbúnaðurinn að eflast og lifna, og að alt eigi að gera til þess að styrkja hann, en ekki til að draga hann niður. Hv. þm. var að hnýta í mig fyrir það, að jeg væri ekki frumlegur og talaði um málið „teoretiskt“, en jeg hætti mjer ekki út í það, heldur talaði jeg um það eitt, sem gat haft áhrif á málið frá íslensku sjónarmiði. Þess vegna er þetta sagt út í hött hjá hv. þm., eins og fleira. Þær athugasemdir, sem hann gerði, voru svo lausar við frumlegt vit, að það var ekkert vit í þeim. Annars finst mjer það leiðinlegt með þennan hv. þm., að honum hættir svo við að snúa út úr og slíta orð út úr setningum, en það sæmir ekki guðfræðisprófessor, heldur öllu frekar annari fígúru, sem nefnd hefir verið „advocatus diaboli“. Jeg vona, að hv. þm. taki tillit til orða minna, og bæti sig hið bráðasta, en hangi ekki í þessum óvanda, sem altaf virðist vera að ná á honum fastari tökum. (MJ: Þar er öðrum hættara en mjer).