27.03.1929
Neðri deild: 33. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í C-deild Alþingistíðinda. (3068)

65. mál, myntlög

Magnús Torfason:

Já, hv. þm. Dal. notaði nokkrum sinnum orðið „barnaskapur“. Og það voru nú aðalrökin í þeirri ræðu. — Annað mál er, hversu mikils menn meta slík rök. Hv. þm. gerði í ræðu sinni engan greinarmun á þjóðbanka og prívatbanka. En jeg hygg, að Íslandsbanki hafi aldrei verið stofnaður með það fyrir augum, að ríkið ætti að hlaupa undir bagga með honum, eins og það hefir þráfaldlega orðið að gera og gerði síðast með ameríska láninu. — Af hverju hefir ríkið orðið að gera það? Af því vitanlega, að bankinn hefir verið í fjárhagslegri þröng. — En hv. þm. Dal. má sjálfum sjer um kenna, að þetta hefir dregist inn í umr. Hv. þm. er í fjhn. og átti því vísan kost á að koma þar fram með álit sitt. En samt hefir hv. þm. haldið hjer margar ræður og haldið fram stefnu í þessu máli, sem er gagnstæð vilja hinna bankastjóranna í Íslandsbanka. (SE: Jeg er þm. þjóðarinnar!). Þeir líta svo á, að hagur bankans sje best trygður með því, að krónan sje sett föst þar sem hún nú er. En þessi hv. þm. vill hækka. Og af því þessi hv. þm. ætti að hafa hag bankans fyrir augum, stöðu sinnar vegna, þá er ekki óeðlilegt, að hann sje spurður þessara spurninga. (SE: Jeg er ekki þm. bankans!) En það verða margir að vera tvíeinir, gegna fleiri störfum í senn. — Þá var hv. þm. að japla á því, að jeg mundi ekki hafa vitað af því, að eftirlitsmaðurinn hefir endurskoðað bankann. Jeg sagði honum, að jeg hefði vel vitað um það, og jeg hefi átt tal við bankamann um þá endurskoðun. Og jeg skal fúslega játa, að jeg hefi meira traust á rannsókn hans en bankarannsóknarnefndinni. En því held jeg föstu, að hver prívatbanki, sem standa vill föstum fótum og heita sjálfstæður, á að losa sig frá því, að þarfnast ábyrgðar ríkissjóðs, og þar með undan áhrifum og afskiftum þingsins. — Þá játaði hv. þm., að Íslandsbanki skuldaði Landsbankanum, en gat þess jafnframt, að full trygging væri fyrir þeim skuldum. Má vel vera, að svo sje. En þá kemur að því, sem jeg sagði, að þótt hann í orði kveðnu hafi dregið inn nokkuð af seðlum, þá hafi það þó í raun og veru verið minna en ekki neitt. — En hitt hefir mjer aldrei dottið í hug að virða bankann eftir skuldum hans. Það er víst enginn svo mikið barn, annar en hv. þm. Dal., að ætla nokkrum manni að gera það. — En jeg gæti bætt einni spurningu við: Hvernig var það með yfirfærslurnar fyrir póstmálasjóð, — er sú skuld borguð? (SE: Um hana er prýðilega samið af hv. þm. Dal.!). Sú skuldin er þá enn eigi borguð, sem mestan þáttinn átti á sínum tíma í því, að krónan fjell. Það er aðeins samið um hana. Þá sagði hv. þm., að það væri ekki holt fyrir fjármál þjóðarinnar, að óvirðulega væri talað um bankann. — En jeg hefi ekki gert það. Jeg er ekki vanur að vera með nein útbrot, en jeg verð að tala um málin eins og þau liggja fyrir. Og það mátti hv. þm. Dal. vita, að þegar hann fór að breiða sig eins mikið yfir þetta mál og hann gerði, að bankinn hlaut að dragast inn í umræðurnar. Má hann því sjálfum sjer um það kenna. Þá hjelt hv. þm., að jeg hefði viljað hefna mín, vegna þeirrar aths., sem hann gerði við ræðu mína. Þetta er nú meiri barnaskapurinn, og jafnvel meiri en jeg gat búist við af hv. þm. Dal. Jeg talaði alls ekki í þeim tón. Þá kom hv. þm. með persónulegar dylgjur um það, að Framsóknarflokkurinn mundi ekki vilja viðurkenna mig sem það tákn, er hann lifði eftir. Jeg skal nú ekkert segja um það. Getur vel verið að svo sje. Og skal jeg segja honum ástæðuna. — Heimspekingurinn Aristoteles og Grímur skáld Thomsen hjeldu því fram, að eitt alþekt skriðdýr væri sjálfgetið. Þessu mun nú ekki játað af nútíma fræðimönnum. (SE: Á hv. þm. við það, þegar hann skreið í Framsóknarflokkinn, er sá flokkur komst í meiri hluta?) Jeg var nú genginn í þann flokk, áður en vitað varð, hvort hann hefði meiri hluta eftir kosningar. En að jeg gekk í flokkinn, ásamt öðrum góðum manni, mun hafa hjálpað til, að flokkurinn fjekk meiri hluta. — En hvað sem því líður um skriðdýrið, hvort það er eingetið eða ekki, þá er þó hitt víst, að hv. þm. Dal. er sjálfgetinn, og hefir þar með sannað kenningu Aristotelesar og Gríms skálds.