18.03.1929
Neðri deild: 25. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í C-deild Alþingistíðinda. (3076)

67. mál, lýðskóli með skylduvinnu nemenda

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg held að hv. 3. þm. Reykv. (JÓl) hafi verið full harðorður um frv. þetta. Því munur er á því, hvort frv. þarf breytinga við, eða er með öllu óþarft. Jeg vil taka undir það, að þó að hjer sje farin nýstárleg leið, þá er sjálfsagt að vísa því til mentmn. Yfirleitt lít jeg svo á, að þegar sýslunefnd biður um heimildarlög, þá sje spurning, hvort hún eigi ekki að fá þau, hvernig sem hv. þm. kunna að líta á þau lög. En þá leiddi af sjálfu sjer að lögin næðu ekki nema til Rangárvallasýslu.

Jeg verð að játa, að þessi leið er töluvert erfið. Ein gr. frv. snertir sjerstaklega ríkissjóð, og þar verða aðalerfiðleikarnir fyrir þingið. Ef heimildarlögin væru gefin, þá gæti sýslan farið fram á, að landið bygði skólahús, án nokkurs framlags frá hjeraðinu. Og þó sýslan ætli sjer nú að standa allan straum af skólahaldinu, þá gæti samt svo farið, að hún yrði þess ekki megnug síðar. Aðalagnúinn eru þessi eftirkaup, sem af frv. kynnu að leiða. Hinsvegar er þó þess að gæta, að höf. frv. mundi aldrei leggja þetta til, ef hann væri ekki ákveðinn í að halda áfram, meðan hans nýtur við. Afskifti hans af öðrum málum eru kunn að því, að hann lítur ekki síður á hag landsins en hjeraðsins.

Þó hjer sje um nýja leið að ræða, þá er þó rjett að fara fram á, að hún sje rannsökuð. Og jeg álít rjett, að hjeraðið fái þessi heimildarlög, með þeim skilyrðum er tryggja hagsmuni landsins. Það er ekki aðeins eðlileg kurteisi við hv. flm. að vísa málinu til n., heldur engu síður við þann mann, er barist hefir fyrir málinu. — Margir kunna að líta svo á, að málið verði óframkvæmanlegt; en hinu verður ekki neitað, að það hefir verið borið fram af hugsjónaástæðum, og verðskuldar því að vera vel tekið, hvernig sem menn kunna að líta á stefnu þá, sem í því felst.