18.03.1929
Neðri deild: 25. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í C-deild Alþingistíðinda. (3079)

67. mál, lýðskóli með skylduvinnu nemenda

Flm. (Einar Jónsson):

Jeg hefi nú að vísu ekki margar aths. að gera við ræður hv. þm., en þó þarf jeg að víkja nokkurum orðum að góðvini mínum, hv. 3. þm. Reykv. Hann, sem er vanur að leggja gott til allra mála og tala hlýlega í garð gamalla sýslunga sinna, brá nú út af vana sínum og fór ýmsum neyðarlegum orðum um frv. það, er hjer liggur fyrir, og kallaði það meðal annars skrípaleik. Það getur það ekki talist, þótt sýslubúar leiti aðstoðar og ráða Alþingis. Hv. þm. vjek og að því, að öll sýslunefndin yrði að vera sammála, þegar um slík mál sem þessi væri að ræða, en hann er nú svo reyndur maður, að hann veit, að erfitt getur reynst að fá alla til að vera einnar skoðunar í þessu máli sem fleirum, og þess er ekki langt að minnast, að hann sjálfur gat ekki orðið öðrum sammála í einu stórmáli, sem fyrir lá, og skar sig úr. Þetta er því óframbærileg ástæða, og hún dregur ekki hót úr gildi frv., og það tekur ekki að álasa sýslubúum fyrir það, þótt þeir sjeu ekki allir á eitt sáttir um þetta mál, þegar hitt er víst, að allir eru sammála um, að þörf sje fleiri skóla en nú er, þar eð einu skólarnir, sem í sýslunni eru og hægt er að telja, eru aðeins tveir barnaskólar, en annars er barnakenslan mjög erfið viðureignar, þar eð farandkennara er mjög ilt að fá vegna strjálbýlis og erfiðrar aðstöðu á margan hátt.

Hv. 3. þm. Reykv. fann einnig að því, að frv. þetta heimilaði piltum einum aðgang að skólanum, en stúlkur væru þar útilokaðar, en í greinargerðinni er þó gert ráð fyrir því, að stúlkur fái þar líka inngöngu og nemi það, sem kann að koma þeim að notum. Þetta hefði hann getað sjeð, ef hann hefði kynt sjer greinargerðina. Þá talaði hv. þm. um, að hann teldi það vafasamt, hvort sýslubúar hefðu af frjálsum vilja og ráðnum hug gengist undir það, að ljetta byrðum af ríkissjóði, en íþyngja sjálfum sjer, og að vísu má margt um það segja. Reynsla er ekki ennþá fengin fyrir því, hvort hjer sje um verulegan kostnað að ræða, þar sem skólinn er ekki ennþá kominn á laggirnar. Það kaup, sem menn við skólaskylduvinnuna ynnu fyrir þessar 7 vikur, ætti samkvæmt núverandi kaupgjaldi að samsvara þeim skólagjöldum, sem verið hafa fyrir hvern einstakling. í samskonar skólum. Því hygg jeg, að ekki geti verið að ræða um neinn verulegan kostnað fram yfir það, hvorki frá hjeruðum nje ríkissjóði. Hv. þm. gat einnig um það, að vinnuskylda gæti verið mjög bagaleg fyrir bændur, á þessum tíma árs, og skal jeg játa, að svo gæti orðið í sumum tilfellum.

Hv. 1. þm. Skagf. tók það rjettilega fram, að hjer er aðeins um vinnuskyldu að ræða, en ekki skólaskyldu. Hver 17–18 ára unglingur á að vinna þegnskylduvinnu 7 vikur að vorinu, og svo er þeim öllum heimilt að njóta ókeypis kenslu við skólann næsta vetur, ef þeir kæra sig um það, en annars fá þeir ekkert fyrir vinnu sína, nema gagn það og gleði, sem vinnan hefir veitt þeim. Mjer þótti það satt að segja nokkuð vafasamt þakklæti, sem hv. 3. þm. Reykv. ætti skilið er hann kvaðst ætla að vera frv. fylgjandi til nefndar, af kurteisisskyldu við okkur flm., en gat þess um leið, að hann vonaði, að það skyti hjer aldrei framar upp kolli í þessari deild; þetta virðist mjer nokkuð hæpin kurteisi, og slíkt kurteisishjal fellur alveg um sjálft sig sökum fyrri ummæla hans, en jeg hefði heldur óskað. að hann væri fylgjandi frv. þessu af öðrum ástæðum. Jeg er þakklátur hæstv. dómsmrh. og hv. 1. þm. Skagf., þar eð þeir álitu að frv. þetta væri vert þess, sökum innihaldsins eins, að fara í nefnd. Jeg mun standa við þau orð, er jeg sagði í fyrri ræðu minni, þegar jeg gat þess, að jeg ætlaði mjer að vera stuttorður, og ætla mjer því ekki að fara að sið mælskumanna og vitna í greinargerðina og rekja sögu málsins eða aðdraganda. Með því móti hefði eflaust mátt halda langa ræðu, en jeg mun þó láta þetta nægja.