16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1553 í C-deild Alþingistíðinda. (3120)

69. mál, verðtollur

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Mjer þóttu undirtektir hæstv. fjmrh. við frv. nokkuð kaldar. Og jeg verð að segja það, að mig furðar það mjög að hæstv. ráðh. skuli leggjast svo ákaft á móti því, að hann leggur til, að það verði felt strax frá 2. umr. Slíkt er óþinglegt mjög, að neita deildinni um að láta n. athuga málið. Hæstv. ráðh. sagði, að fjárl.frv. gerði ráð fyrir þessum tolli, og væri því um tvent að ræða, ef hann yrði niður feldur, tekjuhalla, eða minkun verklegra framkvæmda. En þetta hefir ekki við nein rök að styðjast. Jeg hefi bent á tekjuauka, sem nema liðlega þeirri upphæð, sem niður væri feld, ef frv. verður gert að lögum. Jeg benti á það, að ef frv. um einkasölu á tóbaki verður samþ. og tekju- og eignarskattsviðaukinn innheimtur, eins og lög og þingvilji frá í fyrra ætlast til, þá nemur það um 450 þús. kr. Og verði afgreiðsla fjárlaganna sú, að ekki verði ráðstafað þeim tekjuafgangi, sem nú er á frv., þá stenst sú upphæð öll á við niðurfærslu tollsins eftir þessu frv. Hæstv. fjmrh. sagði, að þó að áætlun fjárl.frv. væri varleg, þá væri því þó ekki að leyna, að árið 1930 mundi hafa ýms óviss útgjöld í för með sjer og átti þar víst við hátíðahöldin miklu. — Mjer finst satt að segja undarlegt mjög, að ekki skuli hafa verið lagðar fyrir þingið neinar till. frá nefnd þeirri, er um undirbúning Alþingishátíðarinnar fjallar, um útgjöld og fjárveitingar í því skyni. Jeg hefi heyrt, að sú nefnd hafi á prjónunum till. um ½ milj. kr. tekjur til þess að standast útgjöld þessa árs. Ef svo er, þá ætti ekki að þurfa mikið frá ríkinu. Um það, hvernig árferði verði 1930, vitum við báðir jafn mikið eða lítið. En afgreiðsla fjvn. á fjárl.frv. er heldur ekki miðuð við nema meðalár. Þá kom hæstv. ráðh. fram með þá ástæðu, að ótækt væri að grípa fram fyrir hendur milliþingan. í skattamálum, með því að fara nú að breyta tolla- og skattalöggjöfinni. Jeg fyrir mitt leyti sje nú ekki, að það væri neitt ódæði, þótt það væri gert. Og jeg býst við, að það sje svipað um hina nefndarmennina. Sú breyting, sem hjer er gerð, snertir aðeins eitt atriði, hún er engin skipulagsbreyting, og hefir engin áhrif á störf nefndarinnar Hún er aðeins gerð til þess að ljetta tollum af þessum vörutegundum til ársloka 1930.

Mig furðaði mjög á orðum hæstv. fjmrh., er hann sagðist álíta, að það ætti ekki að samþykkja á þessu þingi lög um einkasölu á tóbaki. Mig furðar á því vegna fortíðar Framsóknarflokksins í því máli og afstöðu hans gagnvart tóbakseinkasölunni á undanförnum þingum. En þó furðar mig enn meir á ástæðum hæstv. fjmrh. Hann sagði, að milliþingan. í skattamálunum hefði þetta einkasölumál til meðferðar. Jeg hef áður skýrt frá því, að samkvæmt viðtali nefndarmanna við fyrv. fjmrh., Magnús Kristjánsson, var ákveðið að stjórnin flytti frv. um tóbakseinkasölu á þessu þingi, en ekki nefndin. Hv. 1. þm. N.-M. (HStef), sem er form. nefndarinnar, getur borið um þetta með mjer. Nefndin bjóst fastlega við því, að þetta yrði gert, annars hefði einhver hluti hennar flutt frv. á þinginu. Og hæstv. fjmrh. veit jafn vel og jeg, að fyrirrennari hans ljet semja og undirbúa frv. um tóbakseinkasölu og hafði ákveðið að leggja það fyrir þingið í samráði við okkur 2 nefndarmannanna. Hvers vegna hæstv. núv. ráðh. hefir ekki gert þetta, veit jeg ekki. — Það má hann best vita sjálfur.

Eftir þessum undirtektum hæstv. fjmrh. er það ljóst, að það er ekki höfuðástæðan gegn frv., hvort ríkissjóður sje fær um að missa þessa peninga eða ekki, heldur hitt, hvort rjettara sje að afla ríkissjóði tekna á næstu árum með því að láta þá greiða mest til hans, sem síst eru færir um það, eða að taka upp einkasölu á tóbaki, og fá þannig tekjur án skattlagningar, og innheimta tekjuskattsviðauka af þeim gjaldendum, sem hafa yfir 4000 krónur í árstekjur Jeg á bágt með að trúa því, að hæstv. fjmrh. hafi þá skoðun, að rjettlátara sje að taka toll af slitfataefni, fóðurefni, ljereftum og óbrotnum ytra fatnaði karla og kvenna, toll, sem nemur um 20% og hækkar þessar nauðsynjar fátæklinganna um fimtung verðs, heldur en að ríkið versli með tóbak og hækki um 25% skattinn af 4000 króna tekjum og þar yfir. Slíkt skattafyrirkomulag er hróplegt ranglæti, og hvert ár sem líður án þess að því verði kipt í lag, er þinginu til hinnar mestu vansæmdar.