16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í C-deild Alþingistíðinda. (3122)

69. mál, verðtollur

Halldór Stefánsson:

Vegna þess að gerðir milliþinganefndarinnar í skatta- og tollamálum hafa dregist inn í þessar umræður, sjerstaklega um einkasölu á tóbaki, ætla jeg að segja nokkur orð. Eitt af verkefnum nefndarinnar er að athuga, hvort rjett sje að afla ríkissjóði tekna að einhverju leyti með einkasölu á hátolluðum vörutegundum, og þá kemur tóbakið til greina fyrst og fremst. Það er rjett, að við háttv. þm. Ísaf. (HG) áttum tal um það mál við stjórnina í vetur, jeg hygg það hafi verið meðan þriðji nefndarmaðurinn. Jón Þorláksson, var erlendis. Og að því er mig minnir áttum við ekki tal við fjmrh. (MKr) heldur við forsrh. (TrÞ), sem þá gegndi störfum fjármálaráðh., og hjá honum fengum við að vita, að Magnús Kristjánsson hefði í undirbúningi frv. um einkasölu á tóbaki. Varð það til þess, að við hugsuðum ekki meira um það mál. Þetta var á þeim tíma, svo snemma vetrar, að ekki var útsjeð um, hvort nefndin mundi skila af sjer störfum á þessu þingi. En nefndinni vanst ekki tími til þess, og eins og öllum er kunnugt, þá hefir hún engar tillögur borið fram; enda færi best á því að hún legði þær fram í einu lagi.

Það er kunnugt um mig; að jeg er ekki ófús á að einkasala sje tekin á tóbaki og fleiri vörum til tekna fyrir ríkissjóð, án þess að skattþegnum verði íþyngt með því. En hitt er annað mál, hversu heppilegt muni vera að skifta oft um slíkar aðferðir. Og líkur eru til, að það mundi verða nokkuð fastar bundið, ef tillögur um það væru bornar fram í heildarkerfi.