06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

95. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Sjútvn. hefir á þskj. 249 gert grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls, og mun jeg ekki fjölyrða um ástæður fyrir frv., því að á þskj. er alt tekið fram, sem þarf. Með nál. sjútvn. er prentað brjef frá vitamálastjóra um þetta mál, og má af því sjá, hve þörfin er aðkallandi.

Við 1. umr. þessa máls mintist jeg á helstu aðalatriði, sem til greina koma, að mest ríður á að gera við hafnargarðinn, þar sem hann er bilaður, og ljúka við það, sem ólokið er. Útvegurinn í Vestmannaeyjum vex svo hröðum skrefum, að áframhaldandi hafnarbætur þar eru lífsskilyrði fyrir hinn stóra vjelskipaflota, sem þar á heima. Þetta var öllum nm. ljóst, og hafa þeir allir skrifað undir nál. á þskj. 249 fyrirvaralaust, nema einn. Mjer er ekki kunnugt um, í hverju sá fyrirvari er fólginn, svo að jeg get ekki tekið afstöðu til hans fyr en sá hv þm. hefir gert grein fyrir honum. N. leggur annars til, að frv. verði samþ. með þeirri forsendu, að framkvæmdir verði ekki látnar dragast um of.