05.04.1929
Neðri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í C-deild Alþingistíðinda. (3208)

113. mál, ábúðarlög

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Það er rjett, að málið er mikilsvert, og ef nú ætti að fara að ræða það, þá er sýnt, að umr. verður ekki lokið á þessum fundi. Hinsvegar hefir hæstv. forseti reynst svo frjálslyndur, þegar líkt hefir staðið á, að hann hefir leyft mönnum að ræða frv. alment við 2. umr., og vona jeg, að það fari eins í þetta sinn. En það flýtir fyrir afgr. málsins, ef það kemst til nefndar strax.