16.04.1929
Neðri deild: 46. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1670 í C-deild Alþingistíðinda. (3230)
113. mál, ábúðarlög
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Þegar þetta mál var hjer til umræðu síðast, var jeg að svara hv. 1. þm. S.-M., sem fyrstur hóf andmæli gegn þessu frv. Hann er nú ekki viðstaddur, en jeg býst við, að það komi ekki að sök, því jeg hafði að mestu lokið svari mínu til hans. Jeg var að andmæla skoðunum hans um það, að leiglendingar ættu að leggja til hús á jörðunum og annast viðhald þeirra, og til þess að sneiða hjá endurtekningum, skal jeg víkja að hv. þm. Barð., sem mælti líka á móti þessu atriði. En þó var sá munur á skoðunum þessara hv. þm., að hv. þm. Barð. viðurkendi, að rjett væri að skylda landsdrottinn til að byggja íbúðarhús fyrir fólkið á leigujörðum sínum, en andmælti því, að honum bæri að leggja til hús fyrir áhöfn jarðanna; ennfremur mótmælti hann því, að jarðeiganda bæri skylda til að viðhalda húsunum. Hv. 1. þm. S.-M. var þessu öllu andvígur, og hafði hvorugur þeirra við mikil rök að styðjast.
Eins og jeg gat um áður, hvíldi sú skylda á landsdrotni frá fornu fari og fram til 1883 að leggja til öll hús á leigujarðir sinar, bæði yfir fólk og fjenað. Viðhaldsskylda á húsum hvíldi og á landsdrotni og einnig brunatrygging. (HK: Var þá brunabótatrygging?). Já, þá höfðu menn húsin trygð fyrir eldsvoða. Það liggur í hlutarins eðli, að þetta hlaut að vera báðum aðilum fyrir bestu.
Hv. þm. Barð. ætlast til, að landsdrottinn leggi til íbúðarhús handa fólkinu, en leiglendingur annist viðhald þeirra og leggi til hús fyrir áhöfnina.
Ef leiguliði á að byggja yfir fjenaðinn, þá má búast við, að hann geri það með sem minstum kostnaði að unt er, og að þau hús verði fremur ófullkomin, vegna þess að hann hefir enga tryggingu fyrir því, að fá nokkurn eyri fyrir þessi verk sín, þegar hann fer frá jörðunni, nema það, sem hann gæti haft upp úr húsunum með því að rífa þau. Þannig er þessu háttað nú. Ef leiguliði fer frá ábýlisjörð sinni, er hann skyldur til að bjóða fyrst jarðeiganda húsin til kaups, en að honum frá gengnum, þá viðtakanda jarðarinnar. En þessir aðilar eru ekki skyldugir til að veita honum ákveðin svör fyrri en í fardögum. Leiguliði getur enga ákvörðun gert fyr, viðvíkjandi húsunum. Geti hann þá eigi selt þau, verður hann að hafa rofið þau fyrir Jónsmessu, og alt flutt af staðnum eftir kröfu viðtakanda, til þess að hann geti bygt aftur á sama stað, ef honum sýnist svo.
Rjettur leiguliða er svo aumlega trygður í núgildandi lögum, að hann getur eigi búist við að fá nema 1/3 af verði húseigna sinna, og oft verður honum sama sem ekkert úr þeim. Það hefir reynslan sýnt og sannað.
Jeg fjölyrði ekki mikið um það, að skifta viðhaldsskyldunni á milli landsdrottins og leiguliða, en álit það mjög óheppilegt. Ef leiguliði á að annast viðhaldið á húsunum, þá gerir hann það vitanlega á þann hátt, að leggja sem allra minst í kostnað. (HK: Ætli eigandinn geri það ekki líka á þann hátt?). Nei, hann gerir það ekki, ef hann á að byggja þau upp aftur. Reynslan sýnir, að húsakostur hefir alment verið miklu betri á jörðum í fyrri daga. Um síðastliðin aldamót (1900) vissu menn glögg deili á 500 ára gömlum húsum; og gerð þessara húsa var miklu betri og rambyggilegri en á þeim húsum, sem yngri eru, að frátöldum nýjustu húsum, sem reist eru úr vönduðu efni, eftir fullkomnum nútímakröfum. Það var ekki ótítt fyr á tímum, að menn þöktu bæjarhús sín með uxahúðum, líka á leigujörðum, af því að landsdrottinn sá um þau og annaðist þau að öllu leyti.
Jeg geri ráð fyrir, að þó nú væri farið að byggja vandaðri hús á jörðum og viðhaldsskyldan hvíldi á herðum leiguliða, þá mundi fljótt sækja í sama horfið. Húsin gengju úr sjer; svo væri ákveðið eitthvert ofanálag af handahófi, meira og minna ósanngjarnt, eins og þekst hefir. Alt sæti í sama fari. Húsið eyðist ekki á fáum árum að vísu, en það fyrnist. Það er því afaróeðlilegt að leggja slíkar byrðar á leiguliða.
Ef við gerum ráð fyrir, að hús á einhverri jörð endist, þar sem þau eru allvel gerð, í 40–50 ár, og að á því tímabili verði oft ábúendaskifti þar, þá þarf fyrsti ábúandi, þó hann búi í nokkur ár, ef til vill næstum því engu álagi að svara. Annar ábúandi, sem hefir t. d. 10 ára byggingu, verður að svara nokkru meira álagi. Þriðji ábúandi, sem hefði jörðina álíka langan tíma, yrði vafalaust að greiða enn hærra álag. En fjórði maðurinn, sem fengi jörðina bygða til 10 eða 15 ára, mætti búast við að þurfa að byggja húsin upp af nýju. Álagið hrekkur þá ekki langt upp í þann byggingarkostnað, og hljóta því allir að sjá, hversu ranglátt það er, að gera slíkar kröfur til fátækra leiguliða. Enda sýnir reynslan það best, að þeir hafa ekki getað undir þeim risið. Ábúendurnir sleppa líka misvel við þessar kvaðir. Sá, er tekur við vel hýstri jörð, með nýjum byggingum, hann þarf sama sem engu álagi að svara, þó hann búi þar í nokkur ár; þeir sem síðar koma, nokkru meira, en mestu tjóni verður sá fyrir, sem verður að byggja upp.
En húsin fyrnast smátt og smátt, og eins fyrstu árin eins og þau síðustu, þó þess gæti ekki eins. Það er því bæði órjettmætt og óhyggilegt að leggja viðhaldsskylduna á leiguliða.
Vel getur farið svo, að þó jarðareigandi hafi upphaflega lagt til góð hús, þá fari það svo, þegar þarf að endurbyggja þau, að þá búi fátækur maður á jörðinni, sem ekki getur bygt upp á henni. Því allir vita, að álag það, sem gert er á jarðarhús, hrekkur skamt til að byggja upp aftur.
Jeg held því, að best sje fyrir þessu sjeð með því móti, að jarðeigandi leggi til öll hús og annist viðhald þeirra. Að sjálfsögðu þarf ábúandinn að gera að húsunum, en þegar þarf að endurnýja þau eða bæta við húsum, er sjálfsagt, að landeigandinn geri það. Læt jeg svo útrætt um þetta atriði.
Hv. 1. þm. S.-M. virtist ekki vilja fallast á lífstíðarábúð og taldi þau ákvæði frv., er þar að lúta, mjög óskýr. Sjerstaklega fanst honum það viðsjárvert, að ekkjur fengju að halda rjettinum til ábúðar á jörð óskertum, þó að þær giftust, því að þetta gæti leitt til eilífðarábúðar. Jeg skil nú satt að segja ekkert í því, að hv. 1. þm. S.-M. skuli segja þetta, því að samkv. 9. gr. frv. flytst ábúðarrjetturinn frá manni til konu við lát hans, en endist ekki lengur en á meðan konan er á lífi. Þó því aðeins, að hún hafi aðskilinn fjárhag í síðara hjónabandi. Nú er mannsaldurinn í hæsta lagi 100 ár, og má gera ráð fyrir því, að konur sjeu í kringum tvítugt, þegar þær giftast, svo að hjer getur mest verið um að ræða 80 ár, en varla nema þetta 40 –60 alment. (MJ: En ef maðurinn byggi 100 ár, áður en hann giftist?). Það kom sjer illa, að fá þetta innskot. Væri gaman að fá það rökstutt, að þetta eigi sjer stað, og væntanlega gerir hv. 1. þm. Reykv. það, en jeg þekki þessa engin dæmi. En látum svo vera, að þetta væri satt. Hjer væri samt um lítinn tíma að ræða, í samanburði við eilífðina.
Jeg held, að jeg geti látið þessar aths. nægja við ræðu hv. 1. þm. S.-M. Hann var annars að tala um það, að betra væri að samþ. þessi 1. ekki nú, vegna þeirra djúpu áhrifa, sem þau mundu hala á sveitirnar. Jeg held, að ef til vill væri rjettara að snúa þessu við, að það eigi einmitt að samþ. þessi 1. nú, vegna þeirra djúpu áhrifa, sem þau koma til með að hafa á sveitirnar.
Þá kem jeg að hv. þm. Barð., og skal jeg reyna að vera stuttorður, þó að hann hjeldi nú 1½ tíma ræðu og kæmi því víða við. Hann sagði, að við flm. þessa frv. hefðum litið á þetta mál frá einni hlið. Um það skal jeg ekki deila. Það eru sjálfsagt skiftar skoðanir um þessa lagasmíð okkar. En jeg held, að engin till., sem máli skiftir, sje gerð án ítarlegrar íhugunar, auk þess sem við að sjálfsögðu studdumst við allar þær upplýsingar og fræðslu, sem hægt var að fá í þessu efni.
Hv. þm. Barð. taldi, að viðhaldsskyldan ,sem við viljum láta hvíla á jarðeiganda, væri nýmæli. En það er fjarri því, að svo sje. Þetta er eldgamalt, en konungur varð fyrstur til að brjóta þessi fyrirmæli og koma þessu af sjer yfir á aðra, og svo fetuðu allir aðrir smátt og smátt að sjálfsögðu í fótspor hans. Hv. þm. fann að því, að ef jarðeigandi ætti að leggja til húsin og annast viðhald þeirra, væru of þröng takmörk sett fyrir því, hversu mikið hann megi hækka jarðarafgjaldið fyrir að hafa bætt húsin eða stækkað. Við stingum upp á því, að ábúandi greiði 5% af kostnaðarverði húsanna. Má vel vera, að þetta sje of lágt, ef jarðeigandi t. d. þarf að taka lán í þessu skyni, en við það verða þeir að búa, sem byggja fyrir eigið fje. Og við viljum ekki gera upp á milli þess, sem býr á eigin jörð sinni, og hins, sem leigir jörð sína öðrum, heldur leggja sömu skyldur hvorumtveggja á herðar. En það er ekki svo mikið atriði út af fyrir sig, hvort þetta eru 5% eða lítið eitt meira, heldur hitt, að jarðirnar sjeu vel hýstar og afgjaldið eftir húsin hæfilegt. Ef menn fá lán úr Byggingar- og landnámssjóði, er 5% fullhátt gjald, en annars mætti koma þessu svo fyrir, að gjaldið væri miðað að nokkru við það, hve dýr lán jarðeigandi þyrfti að taka.
Jeg get ekki skilið það, að hv. þm. í Barð. geti haft nokkuð á móti þeim ákvæðum, sem í frv. eru gegn því, að óhæfilega sje farið með jarðir, og reynt sje að fyrirbyggja jarðabrask. En það gladdi mig, að hann er með lífstíðarábúð, og meira að segja sammála mjer um það, að erfðaábúð sje æskilegust.
Hv. þm. Barð. færði það til, frv. þessu til foráttu, að það, hvort kúgildi fylgdu jörð eða ekki, væri samningamál milli leiguliða og jarðeiganda, sem þingið hefði engan rjett til að hlutast til um. Ennfremur talaði hann um það gjald, sem frv. gerir ráð fyrir, að greitt sje eftir kúgildi, of lágt. Jeg get ekki fallist á þetta, og skal færa skoðun minni nokkur rök. Tek jeg þá fyrst síðara atriðið.
Frv. gerir ráð fyrir, að ábúandi greiði 6% í leigu eftir kúgildin, miðað við verðlagsskrá í því hjeraði, sem jörðin er. Þetta er töluvert lægra gjald en tíðkast hefir, en menn verða að hafa það í huga, að leiguliði ber ábyrgð á kúgildunum og annast um fyrningu þeirra.
Upphaflega, þegar kúgildi voru sett, var gert ráð fyrir, að leiguliði greiddi 10%, eða eins og þá var talið, 2 fjórðunga smjörs, sem jafngiltu 12 álnum vaðmála. En þó að þetta hafi verið sanngjarnt á þeim tíma, er ekki þar með sagt, að það sje það nú. Þetta verðlag er breytingum háð, sem annað, svo að menn geti sannfærst um það, skal jeg rekja nokkra drætti kúgildareikningsins, þó að mjer, því miður, gefist ekki tími til þess að gera það eins nákvæmlega og jeg æskti.
Kúgildin fylgdu ekki strax í upphafi þeim jörðum, sem seldar voru á leigu, heldur eru þau þannig til komin, að menn gáfu kirkjunni jarðir sínar og lausafje, til þess að komast hjá tíund, sem kirkjan þurfti ekki að greiða. Á þennan hátt sluppu menn við að greiða tíund af eignum sínum, en höfðu þeirra þó full not eftir sem áður. En þegar kirkjan, með þessum gjöfum, var búin að komast yfir fleiri jarðir en hún sjálf þurfti á að halda og taka þær af bændum, fór hún að leigja út jarðir sínar og ljet kúgildin fylgja þeim. Hún gerði leiguliðum sínum það meira að segja að skyldu, að taka við kúgildunum. Stóreignamennirnir fetuðu svo í fótspor kirkjunnar og fóru að láta fjenað fylgja þeim jörðum, sem þeir seldu á leigu. Með þessu móti fengu þeir nefnilega hærri vexti af eignum sínum en ella. Jeg get getið þess, að upphaflega fjekk jarðeigandi 10% í afgjald af leigujörð sinni og 10% eftir kúgildið. Eru það ekki smaræðis vextir. En fátækum leiguliðum þótti í fyrstu gott að fá fjenað með jörðunum, til þess að hafa einhvern bústofn, þó að þeir yrðu að sæta þessum þungu kjörum. Þess ber þó að gæta, að landeigandi bar þá sjálfur ábyrgð á kúgildunum og annaðist fyrningu þeirra. Viðhaldsskyldan hvíldi þá ekki á leiguliðanum, eins og nú er. En þetta hefir breytst með tímanum. Nú er betra fyrir leiguliða að taka sjálfur lán og kaupa sjer búpening fyrir en að hafa kúgildin, vegna þess hve hátt eftirgjald er eftir þau, því að það nemur nú 16–20%. Upphaflega var kúgildið miðað við 2 lögaura, en lögeyrir jafngilti 6 álnum vaðmála, svo að eftirgjald kúgildis hefir með öðrum orðum verið 12 álnir vaðmála. Nú var kýr metin til 90–96 álna. Þess eru að vísu dæmi, að kýr hafi verið metin á 72 álnir, en þetta breyttist fljótt, og snemmbær, heilspena kýr var snemma metin á 120 álnir. Eftirgjaldið eftir kúgildið var 12 álnir vaðmála, eða 10%. Tveir fjórðungar smjörs jafngiltu 12 álnum, og er smjörgjaldið svo til komið. Verðlag á smjöri hefir breytst mjög mikið, svo að síðar námu 2 fjórðungar smjörs miklu meira en 12 álnum vaðmála, eða sem sje 20 álnum vaðmála. Hv. þm. Barð. ætti því að sjá, að það er meira en vafasamt, að rökstyðja mál sitt með því, að það, sem einu sinni var rjett, sje rjett nú.
Jeg skal nefna annað dæmi. Á 9., 10. og fram á 11. öld jafngilti eyrir silfurs 8 sex-álna aurum, en á ofanverðri 11. öld og 12. öld nam silfureyririnn ekki nema 7% sex-álna aurum. Og á 13.–14. öld var eyrir silfurs kominn ofan í 6 sex-álna aura. Menn ættu að geta sjeð af þessu, að þó að sanngjarnt hafi verið að miða viðskifti með ýmsa hluti við verðlag silfurs eins og það var upphaflega, þá er ekki víst, að sami mælikvarði eigi við, þegar verðgildið hafði breytst svo stórkostlega sem raun varð á. Það er því eins og hver önnur fjarstæða, sem varla er svara verð, þegar hv. þm. Barð. rökstyður það, að afgjald af kúgildi sje of lágt eftir frv., með því, að afgjaldið hafi verið sanngjarnt áður fyrr, er það var hærra, og sje það því líka nú.
Þá kem jeg að hinu atriðinu, sem hv. þm. Barð. lagði mikla áherslu á, að ekki væri rjett að ákveða með lögum, hve hátt afgjald eftir kúgildi mætti vera, með því að löggjafarvaldið ætti ekki að ganga inn á rjett manna til að gera einkasamninga. Jeg þykist vita, að hv. þm. Barð. sje kunnugt um hinar fornu kvaðir, sem þjökuðu bændur um margar aldir, eða frá því um 1500 og langt fram á 18. öld. Þegar farið var að tala um að afnema þessar kvaðir, á þingunum eftir 1845, vegna þess, hve óbærilegar þær væru fyrir landbúnaðinn, risu upp menn, eins og hv. þm. Barð. gerir nú, og sögðu, að hjer væri um einkasamninga að ræða, sem löggjafarvaldinu kæmu ekkert við. Sumir hjeldu því jafnvel fram, að stólsjarðirnar, sem byrjað var að selja 1786, hefðu verið seldar með þessum kvöðum, sem því ættu að ganga frá kyni til kyns. Eins og sjálfsagt var, þá fór Alþingi ekki eftir þessum röddum, og kvaðirnar voru afnumdar.
Þess gerist varla þörf að lýsa þessum kvöðum, því að þær munu öllum í fersku minni. Mönnum var gert að skyldu að inna af höndum dagsverk og lána hest í þágu embættismanna konungs eða kirkjunnar. Fátækur leiguliði varð að vinna þetta 1–2 dagsverk um hásláttinn, ef þessir lánardrotnar hans kölluðu. Þó gat hann leyst sig undan að vinna, með því að greiða 20 álnir fyrir dagsverkið, en það var tvöfalt kaup, því að dagsverkið var metið á 5 fiska, en 5 fiskar gerðu 10 álnir. Hest voru leiguliðar skyldir að lána í 10–12 daga. Þetta var borgað með 2 fiskum, en sumarleigan fyrir hest, frá fardögum og þangað til seint í október, var 20–24 fiskar. Það þarf ekki að taka það fram, hverjar afleiðingar það hafði, að einyrki þurfti að fara frá slætti vegna þess að hann gat ekki borgað þessar kvaðir eða leyst sig undan þeim. Og þó vildu sumir ekki ljetta þessum kvöðum af, og sögðu sem svo, að þessar nytjar væru seldar með jörðunum, og ættu því að fylgja þeim eins og skuggi, um aldur og æfi. (HK: Þetta er ekki sambærilegt). Jú. Þessir menn sögðu það sama og hv. þm. Barð., að löggjafarvaldið mætti ekki ganga inn á rjett manna til að gera einkasamninga. En löggjafarvaldið á ekki að taka tillit til annars en alþjóðarheillar. Jeg skaut því inn í, þegar hv. þm. Barð. var að tala um, að með þessu væri landeigendum gert ómögulegt að hafa kúgildi, að þeir gætu selt þau. Það er undantekning með kirkjukúgildin, en jarðeigandi þarf auk þess ekki að byggja jörð sína öðrum en þeim, sem vilja taka við kúgildunum. Og það hefir hingað til verið talið sæmilegt að fá 6% vexti af eignum sínum, þegar þar við bætist svo það, að fyrningar- og viðhaldsskyldan hvílir á leiguliðanum.
Jeg á enn eftir að minnast á mörg atriði, en þar sem klukkan er orðin fjögur, og jeg býst við, að hæstv. forseti vilji fara að fresta fundi, ætla jeg að geyma mjer það, þar til síðar.
(Fundarhlje til kl. 5).
Þá var hv. þm. Barð. óánægður yfir því ákvæði 36. gr., að meta megi hæfilegan leigumála jarða af gerðardómi. Taldi hann, að þetta hefði hingað til verið látið afskiftalaust, og væri því brotið í bága við eldri venju. Það er að vísu rjett, að þetta hefir verið látið afskiftalaust nú um hríð. En í eldri lögum voru til ákvæði um þetta, sem nú er að vísu spurning, hvaða gildi höfðu. En það eitt er víst, að afgjöld jarða máttu aldrei fara yfir lögleigu, eða 10%. Svo breyttist þetta, og afgjöldin minkuðu. Eru þau nú yfirleitt miklu lægri en hámark gömlu lögleigunnar var. Enda mundu jarðir ekki hyggjast fyrir svo háa leigu.
Hv. þm. drap nú á margt fleira, sem ekki skiftir miklu máli að svara á þessu stigi málsins. Skal jeg þó víkja enn að fáeinum atriðum.
Hv. þm. þótti óþarfi að þinglýsa byggingarbrjefum, og spurði að því, hver greiða ætti kostnað af því. Jeg er nú sammála um, að þetta skifti ekki svo mjög miklu máli. En n. taldi þó þessi brjef svo mikils virði, að rjett væri að þinglýsa þeim. Hv. þm. sagði, að með þessu væru eldri brjef gerð ógild. Jeg veit nú varla, hvað hann meinti með þessu. En það er að minsta kosti alger misskilningur. Það er tekið skýrt fram í 53. gr. frv. Þar er ákveðið, að eldri brjef gildi það sem eftir er byggingartímans. Það er aðeins ákvæðið um það, að ákvæðum laganna hvað hús og jarðabætur snertir sje búið að koma í lag eftir 5 ár eftir að lögin ganga í gildi. Að öðru leyti halda byggingarbrjefin gildi sínu þar til leigutíminn er á enda.
Þá spurði hv. þm., hvað úttekt á jörðum ætti að þýða, þegar sami leiguliði hjeldi áfram búskap á jörðinni, og hver ætti að greiða fyrir þá úttekt. Um þetta er það að segja, að úttekt sú, sem fram fer þegar lögin ganga í gildi, er nauðsynleg til að fá grundvöll undir breyt. þá á eignarráðum mannvirkja á jörðinni, sem leiðir af lögunum. Er þá og sagt fyrir um, hver þá úttekt greiði, er leiguliðaskifti verða á jörð. En það skal játað, að ekki er tekið fram, hverjum beri að greiða, og á hvern hátt, úttekt þá, sem gera á á 5 ára fresti. En samkv. 1. frá 1917 um laun hreppstjóra, á hver aðili að greiða helming úttektarkostnaðar. Býst jeg ekki við, að frekari ákvæði þurfi um það. Mætti máske setja ákvæði um það í frv. Ætti þetta ekki að þurfa að verða að neinu ágreiningsefni.
Þá fann hv. þm. það að frv., að jarðeigandi skuli vera skyldur til að kaupa hús, ef þau hafa verið aukin. Taldi hann, að svo gæti farið síðar, að ekki væri þörf fyrir þau. En frá þessu er tryggilega gengið í frv. Samkv. því fást hús eigi endurgreidd, nema þörf sje fyrir þau. Ef því of mikið er bygt, eða illa bygt, þá ber jarðareiganda engin skylda til að kaupa þau. Þá talaði hv. þm. um ákvæði frv. um hlunnindi jarða, og taldi spurningu, hvort það gengi ekki of langt í því að ákveða það, að hlunnindi skyldu fylgja jörðum. Jeg held nú, að þessu sje í hóf stilt í frv. Best er óneitanlega, að hver jörð njóti þeirra gæða, er henni fylgja. Jeg get þó sagt, að það er einna síst ástæða til þess að viðarreki skuli fylgja jörð. Sem hlunnindi er hann nokkuð sjerstaks eðlis. En fiskveiði í ám og vötnum, fuglatekja, dúnn og selalátur, á að fylgja hverri jörð, sem að fornu hefir verið. (HK: Er það kannske ekki alstaðar?). Nei, það hefir mjög víða verið gert, að taka hlunnindi undan jörðum.
Þá talaði hv. þm. um eindaga jarðarafgjalda. Mþn. þótti rjett að setja einn lögfestan gjalddaga. En þetta er þó ekkert aðalatriði. Sama má segja um skyldu leiglendings til að færa jarðargjöld til landsdrottins eða umboðsmanns hans, eftir því hvað langt í burtu hann er búsettur.
Þá drap hv. þm. á ákvæði 44. gr. og þótti hart, ef leiguliði misti ábúðarrjett sinn, ef hann hefði neitað að kaupa jörðina eftir ákvæðum þeirrar gr. Þetta ákvæði er bein afleiðing þess, að gert er að skyldu í frv., að jarðir sjeu bygðar til lífstíðar. En nú getur hagur eiganda staðið svo, að hann þurfi að selja jörðina. En það mun reynast erfitt, þegar hún er föst í lífstíðarábúð. Þetta er því gert til þess að tryggja það, að eigandi geti selt, ef hann þarf þess með og vill. En jafnframt er leiguliða trygður rjettur til að kaupa, þegar svo stendur á, fyrir matsverð. Nú má gera ráð fyrir því, að fasteignamat komist bráðlega nálægt sanngjörnu söluverði. Er þá kosti hvorugs aðilja þröngvað með þessum skilyrðum.
Þá taldi hv. þm., að vafasamt væri, hvort mat það á vinnugetu leiguliða til endurbyggingar húsa, sem frv. gerir ráð fyrir, muni verða rjettlátt. Jeg hygg, að ekki sje hægt að komast nær hinu sanna í þessu efni heldur en það, sem nákunnugir úttektarmenn meta. Þeir vita, hve mikla vinnu leiguliði getur af hendi látið samkv. frv., og meira er ekki hægt að heimta.
Um jarðabætur á leigujörðum skal jeg ekki fjölyrða. Jeg álít, að ákvæðum þeim, sem lúta að þeim, sje mjög í hóf stilt. Telur n., að þar sje ekki þrengt að kosti jarðeiganda fram yfir það, sem rjettlátt er.
Þá spurði hv. þm. að því, hvort samningar gætu átt sjer stað milli jarðeiganda og leiguliða um þau atriði, sem úttektarmenn eiga að meta, líkt og áður hefði tíðkast. Því er nú fyrst til að svara, að núgildandi löggjöf gerir alls ekki ráð fyrir slíkum samningum. Í þeim lögum er aðeins gert ráð fyrir því, að jarðir sjeu teknar út af úttektarmönnum. Og frv. fer sömu leið í þessu efni, og svo á það líka að vera í löggjöfinni. Úttekt er líka nauðsynleg. Það er fleira en jörð og hús, sem þarf að meta og greiða bætur fyrir, ef ekki er haldið við. Svo getur það verið um girðingar og ýms önnur mannvirki, sem ábúanda ber að annast viðhald á og svara álagi á. Svo er því og einnig varið um úttekt þá, sem rætt er um í 52. gr., og það álag, sem talað er um þar, að þurfi að meta, vegna þess að jarðeigandi á og að vera orðinn eigandi allra jarðarhúsa eftir 5 ár.
Þá er það ákveðið í 54. gr. frv., að leiguliði geti vikið af jörð fyrirvaralaust, og án skaðabótagreiðslu til eiganda, ef jarðareigandi hefir ekki fylt þær skyldur sínar, sem um getur í þeirri grein um byggingu húsa á jörðinni. Þessi rjettur er gefinn leiguliða í þessu sjerstaka tilfelli, sem annars er skyldur samkv. frv. að greiða heils árs eftirgjald, ef hann fer frá jörð fyrirvaralaust á annan hátt. Vona jeg, að hv. þm. skilji þetta.
Þá tók hv. þm. undir þá ósk með hv. 1. þm. S.-M., að frv. þetta verði ekki afgr. á þessu þingi. Ábúðarlögunum er nú reyndar svo ábótavant, að skjótra umbóta er þörf. Og þetta er hægt að fullyrða, fyrir því liggja svo góð gögn. Hv. þm. sagði, að umráða- og eignarrjetturinn væri skertur, ef frv. gengi fram. Það má nú að vísu segja svo, að umráðarjettur manna sje skertur. En löggjöfin gengur nú yfirleitt í þá átt, að tryggja hag þjóðfjelagsheildarinnar sem best, og hann verður ávalt að meta meira en hag einstaklinga, þegar hagsmunir einstaklinga og þjóðfjelagsheildarinnar rekast á. En þetta frv. er engin undantekning, og gengur ekki hóti lengra í því efni en ýms önnur lög, sem sett hafa verið. Jeg get bætt því við, að ýmislegt það í frv., sem hv. þm. telja nýtt, er í raun og veru gamalt, en varð að víkja um stund fyrir skammsýni löggjafanna. Og þess ber að gæta, að engin menningarþjóð er komin eins skamt í búnaði eða hagar sjer eins og hjer hefir verið gert. Ábúðarlögin frá 1883 munu vera eins dæmi í samskonar löggjöf menningarþjóðanna. Alstaðar eru hús látin fylgja jörðinni og eigendur annast viðhald þeirra. Hjer er ekki skylda jarðeiganda að hafa nokkurn kofa uppistandandi. Leigupeningur er fyrir löngu afnuminn annarsstaðar. Hjer er skylda að taka við leigufjenaði, gjalda af honum okurrentur og annast þó viðhald hans. Hv. þm. taldi okkur nm. hafa litið alt of einhliða á þetta mál. Hann þóttist þó vita, að við værum svo góðir drengir, að við hefðum ekki viljað ganga á hlut manna vísvitandi. En jeg get sagt hv. þm. það, að ákvæði frv. voru sett af ráðnum hug og að vandlega athuguðu máli, til þess að tryggja búskap á leigujörðum, og að þær yrðu ekki útundan í framfaraviðleitninni. Annars er ekki um mjög stórvægilegar breyt. að ræða umfram það, sem hefir lengstum verið í löggjöf okkar áður um þetta efni, eins og jeg tók áður fram.
Þó að okkur hv. þm. Barð. greini nú á um nokkur atriði, þá geri jeg ráð fyrir, að ekki sje það djúp staðfest á milli skoðana okkar, að það verði ekki brúað, ef við viljum báðir leggja það besta til málinu til bjargar. Enda treysti jeg honum vel og veit, að fyrir honum vakir ekki annað en að leggja það gott til málsins, er verða megi til fremdar og farsældar landbúnaði okkar. Og þá mun hann ekki kynoka sjer við að íþyngja lítið eitt jarðeigendum frá því, sem áður hefir verið, ef hann telur, að með því mætti stíga stærri spor til framfara landbúnaðinum. Því að sú mun sameiginleg skoðun okkar hv. þm. Barð. og mín, að það beri að stuðla að því með öllu móti, að afkoma landbúnaðarins verði sem best trygð og að hann geti staðist samkepnina við aðra atvinnuvegi landsins. Við hefðum að vísu kosið að þurfa ekki að íþyngja jarðeigendum til neinna muna, en þegar við höfðum athugað málið, eftir þeim gögnum, sem fyrir lágu um það, hvernig háttað hefir verið ábúð og leigumála á jörðum, þá getum við ekki aðrar till. gert en þær, sem bornar eru fram í frv. og eru tilraun okkar til þess að rjetta landbúnaðinn úr þeim kút, sem hann er kominn í.
Fleiru í ræðu hv. þm. Barð. ætla jeg ekki að svara að svo stöddu. Og um önnur einstök atriði, sem hafa komið fram í ræðum annara hv. þdm., mun jeg ekki mikið fjölyrða.
Hv. 1. þm. N.-M. (HStef) vjek að því, að samkv. ákvæðum 1. gr. frv. gæti svo farið, að ekki væri mögulegt að byggja jörð, af því að margir væntanlegir ábúendur hefðu ekki fulla áhöfn á jörðina.
Jeg lýsti því nú yfir í upphafi, að orðalag frv. mætti eflaust á ýmsum stöðum betur fara. En þar sem við nm. vorum ekki hjer allir til staðar, töldum við tveir, sem frv. flytjum, rjettara að birta það orði til orðs eins og n. hafði gengið frá því, og gæti þá hv. d. breytt orðalaginu eftir því sem betur þætti fara; meðal annars mætti þá lagfæra orðalagið á þessu ákvæði 1. gr., sem hv. 1. þm. N.-M. hnaut um. Meining okkar með þessu ákvæði, að tekið sje fram í lögunum, að hæfileg áhöfn sje á jörðinni, er aðeins sú, að það sje sett til varnar því, að jarðnytjar geti farið annað en til ábúanda sjálfs.
Þá drap sami hv. þm. á það, ef sveitarstjórn fengi jörð til ábúðar, en sæi sjer hag í að skifta henni á milli fleiri ábúenda, og spurði í því sambandi hvernig slíku yrði fyrir komið, ef landeigandi gæti ekki keypt hús þau, er sveitarstjórn hefði látið gera á nýbýlunum. Jeg held, að þetta kæmi sjaldan fyrir. En þætti sveitarstjórn betur fara, að stórri jörð væri skift í fleiri býli og eigandi gæti ekki keypt húsin, þá mundi hann í tæka tíð selja jörðina. Annars held jeg nú, að þetta komi mjög sjaldan fyrir.
Þá mintist hann á viðhaldsskylduna og var þar á öndverðum meið við það, sem haldið er fram í frv., en af því að jeg hefi talað mikið um þetta atriði áður, læt jeg mjer nægja að vísa til þess. Aðeins skal jeg taka það fram, að ef viðhaldsskyldan yrði færð yfir á leiguliða, þá er jeg hræddur um, að lítið yrði úr umbótum húsa á jörðinni og að alt mundi sækja í sama horf og verið hefir.
Þá ljet hv. þm. það í ljós, að hann vissi ekki, hvort það væri rjett að meina mönnum að selja burtu jarðargróða, þar sem hagaði svo til, að tök væru á að auka ræktun jarðarinnar, t. d. með erlendum áburði. Það er að vísu satt, að það er auðveldara nú orðið en verið hefir að auka jarðargróðann með ýmiskonar ræktun. En vegna sveitarfjelagsins í heild er það hollara og betra að flytja sem minst af jarðarnytjum burt, að undanteknum kartöflum og garðávöxtum, ef það þykir borga sig að rækta það í stærri stíl en þarf til notkunar í heimilið.
Annars þótti mjer vænt um, hvað hv. 1. þm. N.-M. tók vel í málið, Hann taldi sig fylgjandi stefnu frv., og kann jeg honum þakkir fyrir. Hitt er ekki nema sjálfsagt, að breyta orðalaginu, enda erum við flm. fúsir að ganga inn á allar slíkar orðabreyt., sem miða að því að skýra betur þann tilgang, sem ætlast er til að ná með frv.
Þá kem jeg að hv. 1. þm. Reykv. (MJ). Hann gerði einnig að umtalsefni þetta ákvæði 1. gr. um hæfilega áhöfn á jörðinni, og læt jeg mjer nægja að vísa til þess, sem jeg hefi svarað öðrum hv. þdm. Jeg hefi líka svarað því, sem hann kallaði, að þröngvað væri kosti þeirra manna, sem jarðir eiga, með ýmsum ákvæðum frv. Þó svo virðist kannske vera við fyrstu yfirsýn og fyrst í stað eftir að farið er að beita þessum ákvæðum, að þröngvað sje kosti jarðeigenda, þá er hitt víst, að til frambúðar mun það reynast hagur jarðeigendum og þeim fyrir bestu. Þegar hús hrörna og þeim er ekki haldið við, þá byggjast jarðirnar ekki, eða þá að lækka verður afgjaldið.
Hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) lýsti því vel og greinilega, hvað þeir jarðeigendur spara mikið fyrir sjer, sem lausir eru við að byggja upp jarðir sínar og halda við húsunum. Það er því hæpið, hvort það er svo mikill búhnykkur fyrir jarðeigendur að skorast undan því að taka á sig viðhaldsskylduna.
Þá sagði hv. 1. þm. Reykv., að með frv. væri leiguliðum gert svo auðvelt að búa, að þeir mundu fremur kjósa að leigja jörð en gerast sjálfir jarðeigendur. Það má nú kannske til sanns vegar færa eins og leigumála jarða hefir verið háttað. En hitt er áreiðanlegt, að þegar þessi nýja ábúðarlöggjöf fer að sýna sig, þá mun koma í ljós, að flestir munu kunna því betur að eiga ábúðarjörð sína heldur en að leigja hana, og munu þeir hinir sömu ekki aðeins líta þar á sjálfs sín hag, heldur og niðja sinna.
Sami hv. þm. sagði, að frv. bæri það með sjer, að við flm. værum því mótfallnir, að Reykvíkingar eða aðrir kaupstaðarbúar gætu auðveldlega klófest jarðir í sveitum. Þetta er að nokkru leyti rjett, að okkur er illa við að láta þá kaupstaðarbúa eiga jarðir, sem sýna þeim engan sóma, en flytja burtu allan jarðargróðann. Það er við slíka menn, sem ákvæði frv. eru miðuð. En hina, sem sýna jörðum sínum sóma, snertir frv. ekki og þeim viljum við á engan hátt mein gera.
Það þarf ekki langt að fara til þess að sjá og sannfærast um, hver eftirköst það getur veitt, að þeir menn komist yfir jarðir, sem ekki hugsa um annað en að rýja jarðirnar vegna stundarhagnaðar. Í einum hreppi austanfjalls, Ölfusinu, voru fyrir stuttu 12 jarðir lagðar í eyði vegna rányrkju Reykvíkinga. Allir sjá, hvílíkt tjón það er fyrir afkomu hreppsins, og með frv. er einmitt að því stefnt að stemma stigu fyrir því, að slíkt geti endurtekið sig í framtíðinni. Þeir menn, sem hafa það í huga þegar þeir kaupa jarðir, að rækta þær og bæta, þeir leggja vitanlega mikið í sölurnar, enda er enginn hemill lagður á þeirra starfsemi með frv.
Hv. þm. Ísaf. (HG) vjek nokkrum orðum að þessu frv., talaði vingjarnlega um að fylgja því, og kann jeg honum þökk fyrir það. Jeg skrifaði upp hjá mjer nokkur atriði úr ræðu hans, sem jeg hafði hugsað mjer að minnast á, ekki þó til andsvara, enda hneig ræða hans minst í þá átt að andmæla verulega ákvæðum frv. En þar sem jeg hefi talað alllengi, vildi jeg fara að stytta mál mitt úr þessu. Þess vegna mun jeg ganga að mestu framhjá öllum smávægilegum aths., sem ekki komu fram sem sjerstök andmæli gegn frv.
Það var alveg rjett tekið framhjá hv. þm. Ísaf., að ábúðarlöggjöf okkar er þannig úr garði gerð, að umbætur ábúanda hafa orðið til þess að hækka jörðina í verði, svo að afkoma ábúanda hefir orðið erfiðari. Jeg er sammála hv. þm., að þetta er hið mesta tjón fyrir landbúnaðinn í heild. Þess vegna hefir mþn. reynt að koma í veg fyrir, að slíkt komi fyrir framvegis, og verður reynslan að skera úr því, hvort það hefir tekist með þeim ákvæðum, sem frv. hefir að geyma. Þetta er mikilsvert atriði, og dæmi nágrannaþjóðanna sýna, hversu skaðvænlegt það er að hafa ekki verið vel á verði í þessu efni. Jeg læt mjer nægja að vitna til Dana. Þar hefir jarðnæði hækkað óeðlilega mikið í verði vegna umbótanna, en landbúnaðurinn berst í bökkum meðal annars fyrir þær sakir. Það er því nauðsylegt að koma í veg fyrir slíkt í tíma, enda er það reynt með því ákvði frv., að þegar ábúanda þykir jarðarafgjaldið of hátt, þá getur hann heimtað mat á því, og skal þá leggja til grundvallar afgjald annara jarða í því sama hjeraði, án þess að taka tillit til kaupverðs þeirrar jarðar, sem verið er að meta afgjaldið. Þetta mun tryggast til þess að fyrirbyggja allar „spekulationir“.
Hv. þm. Ísaf. gerði búreksturinn að umtalsefni, hvort heppilegra mundi að búa í stórum stíl eða smáum. Jeg býst nú við, að hjá okkur verði það svo í reyndinni, að smábúskapurinn verði öllum almenningi hollastur. Hitt er annað mál og má vel vera, að stórbúskapurinn reynist arðsamari, ekki síst þar sem jörðin er þá svo bætt og ræktuð, að hægt er að vinna á henni með vjelum. En fyrir þjóðarþrifin mun smærri búskapurinn hollari og betri, og því hygg jeg það rjett, að reistar sjeu skorður við því, hvað háir opinberir styrkir gangi til einstakra manna.
Sama hv. þm. fanst kenna mótsagnar í 6. kafla frv., þar sem gert er ráð fyrir, að jarðarafgjaldið hækki. Þar er nú að vísu gert ráð fyrir, að afgjaldið bæði hækki og lækki. En jeg er honum sammála um, að það er að vísu ekki þörf á því, að afgjaldshækkun að verulegum mun fari fram þegar jarðeigandi á engan þátt í umbótunum. Þó ákvarðast þetta nokkuð af því, að matið fer fram á 10 ára fresti, og getur jörðin þá hækkað í verði á milli, og er það þá fært eiganda til eignar, sem gjalda verður hærra af. En þá hækkun gjaldanna er ekki rjettmætt að hann beri. Afgjald jarðarinnar ætti því að hækka um það, sem opinber gjöld hækka af þessum sökum. Og þar sem um lífstíðarábúð er að ræða, gæti undir þeim kringumstæðum ekki talist ósanngjarnt, þó að afgjaldið hækkaði. Umfram þessar ástæður tel jeg, að afgjaldshækkun eigi ekki að fara fram, en þetta verður að álítast sanngjarnt.
Hv. þm. Ísaf. lýsti því yfir sem sinni skoðun, að hann teldi best fara á því, að landið ætti jarðirnar. Jeg hefi líka verið þeirrar skoðunar, og á meðan landið átti verulega góðar jarðir, og þær margar, þá talaði jeg eindregið á móti allri þjóðjarðasölu. En þær raddir heyrðust ekki og áttu heldur ekki bergmál hjer á þingi, og því er komið sem komið er. Landið hefir fargað úr hendi sjer öllum bestu jörðunum, sem nokkur slægur er í, nema þá í einstöku kaupstöðum. En þegar svo er komið, er til lítils að stritast á móti þjóðjarðasölu, og held jeg því að best fari á, að ábúendur fái að eignast þessar fáu þjóðjarðir, sem eftir eru, ef þeim á annað borð leikur hugur á því. En því miður láðist Alþingi, þegar jarðirnar voru seldar, að setja lög, sem fyrirbygðu, að braskað væri með jarðirnar, en af því hefir leitt hið mesta tjón fyrir land og lýð, og verður ekki unt að bæta úr því nema með nýrri ábúðarlöggjöf.
Annars vil jeg endurtaka það, sem jeg sagði áðan, að jeg kann hv. þm. Ísaf. bestu þakkir fyrir undirtektir hans við málið og þann glögga skilning, sem kom fram í ræðu hans á þörf nýrra ábúðarlaga.
Hann vjek að því og kvaðst vona, að þar sem hv. þm. sæju umbótaþörfina bændum sveitarinnar til handa, þá ljetu þeir ekki á sjer standa að styðja einnig umbætur í kaupstöðum landsins. Jeg þarf ekki að hafa slæma samvisku út af því, að jeg hafi ekki ljeð málefnum kaupstaðanna og mannúðarmálum kauptúnabúanna fylgi, og mun jeg gera það hjer eftir sem hingað til.
En öll umbótastarfsemi, sem koma á fjöldanum til góðs, verður að miðast við það, að þar sje sniðinn stakkur eftir vexti. Og það má aldrei gleymast, að gera ekki harðari kröfur en að nokkur von sje til, að unt verði að fullnægja þeim. Jeg held, að í þessu frv. sje kröfunum svo í hóf stilt, að ef hv. þdm. vilja líta á hagsmuni leiguliða, en þeir eru mikill hluti bænda í landinu, þá ætti ekki að raska við till. mþn. í neinum verulegum atriðum.
Jeg ætla þá að láta máli mínu lokið hjer með, en skýt því til hv. þdm., að jeg vænti góðs af þeim og að þeir geri sitt besta til að ráða fram úr þessu vandamáli, svo að það megi skipast til sem bestra og farsællegastra lykta fyrir land og lýð.