11.04.1929
Neðri deild: 42. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í C-deild Alþingistíðinda. (3238)
114. mál, síldarnætur
3238Sigurjón Á. Ólafsson:
Enda þótt frv. þetta sje meinlaust á pappírnum eins og það er reifað í grg. þess, þá er þó með því verið að flytja út úr landinu vinnu, sem hjer hefir verið unnin um margra ára skeið, en það er vinnan við síldarnæturnar. Hefir hún aðallega verið vetrarvinna og þá sjerstaklega norðanlands. Má því óhætt fullyrða, að enginn skortur sje á æfðum mönnum í landinu til þessara hluta. Það eina, sem hefir verið erfiðleikum bundið, er litunin á síldarvörpunum, og hafa þó verið gerðar tilraunir um hana áður, en hvernig þær hafa hepnast veit jeg ekki með vissu, en hygg þó, að í fleiri tilfellum hafi þær reynst vel. Annars tel jeg ekki ólíklegt, að efnarannsóknarstofan geti fundið efnasamsetningu, sem dugi til litunarinnar, svo að hún komi að fullum notum og jafnist á við þá litun, sem Norðmenn nota. Hvað það snertir að koma upp börkunarverksmiðju, þá hefir fagmaður á þessu sviði, sem jeg þekki, sagt mjer, að það myndi mjög auðvelt að koma henni upp, ef t. d. nokkurir útgerðarmenn slægju sjer saman og legðu fram dálítið fjármagn. Skal jeg svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en jeg mun greiða atkv. á móti frv. af því að jeg tel það fela í sjer þá möguleika að kippa burtu vinnu frá landsmönnum, og það vinnu, sem framkvæmd er þegar minst er að gera.