20.04.1929
Neðri deild: 50. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1707 í C-deild Alþingistíðinda. (3243)
114. mál, síldarnætur
Frsm. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Jeg hefi að nokkru gert grein fyrir afstöðu minni til þessa máls á þskj. 344. Sömuleiðis lýsti jeg því yfir við 1. umr., að jeg áliti það óþarfa, að nema lög þessi úr gildi, því að þau væru meinlaus og fáum til baga. Hv. frsm. meiri hl. sjútvn. sagði, að lögin væru óþörf og hefðu enga þýðingu lengur, en játaði þó síðar í ræðu sinni, að nauðsynlegt væri að flytja út síldarnætur til aðgerðar. Eins og jeg hefi skýrt frá áður, hefir risið hjer upp í síldveiðiplássunum dálítil vetrariðja við aðgerðir á síldarnótum, og má óhætt fullyrða, að sú vinna hefir verið sæmilega af hendi leyst, því að fullkomnum fagmönnum við þessa iðju er nú orðið hjer á að skipa.
Hvað snertir það atriði, að ekki sje hægt að barka næturnar hjer, þá vil jeg taka það fram, að eftir því sem jeg veit best, þá hefir eitt af stærstu útgerðarfjelögunum komið upp börkunarverksmiðju. Er því sú ástæða, að ekki sje hægt að barka næturnar hjer, burtu fallin. Verður því ekki annað sagt, en að flest mæli á móti því, að lög þessi verði úr gildi numin.