16.05.1929
Efri deild: 71. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í C-deild Alþingistíðinda. (3269)
117. mál, skipun barnakennara og laun
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Jeg hefi ekki ástæðu til að svara hæstv. fjmrh. miklu. Hæstv. ráðh. sagði, að þetta frv. væri skilgetið afkvæmi ljósmæðrafrumvarpsins. Þó að jeg ætli ekki að lýsa eftir faðerninu, þá geng jeg þess samt ekki dulinn, að þetta frv. er skylt hinu. Þó ekki beint í þeim skilningi, sem hæstv. fjmrh. vildi halda fram, að hjer væri verið að hlynna að einni stjett sjerstaklega, heldur snúa þau bæði meira að hinni komandi kynslóð heldur en að okkur eldri mönnunum. Að þessu leyti eru þau skilgetin systkini. Að frv. sje flutt vegna sjerstakrar stjettar, um það ætla jeg ekki að deila, en jeg skal taka það fram, að frá sjónarmiði n. var þetta ekki stutt sem stjettamál. Eins og jeg hefi áður gert grein fyrir, þá er þetta stutt af n. vegna þess, að hún telur það nauðsynlegt. Þótt það sje skiljanlegt,að hæstv. fjmrh. standi á móti þessu vegna útgjaldanna, þá er hins eigi síður að gæta, að það kostar altaf fje að laga það, sem aflaga fer. Jeg skal ekkert um það segja, hvort farkennarar hafa óskað eftir þessari breytingu eða ekki, en jeg tel það heldur ólíklegt, því að vel færir kennarar sinna yfirleitt ekki þessum störfum. Þeir eiga alstaðar annarsstaðar kost betri launa. Það þýðir ekki annað en að horfast í augu við þann veruleika, að óhjákvæmilegt er að fá góða kennara til þess að gegna þessum störfum, og annaðhvort verða sveitarfjelögin þá að leggja fram meira fje eða kenslan verður lakari að öðrum kosti. Það vakti fyrir mjer og n. að bæta úr þessu, en ekki hitt að hlynna að þessari einu stjett í landinu.
Að lokum skal jeg svo geta þess, að einn af nefndarmönnum greiddi ekki atkv. um málið, en hefir þó skrifað undir nál. með okkur hinum.