17.05.1929
Efri deild: 72. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í C-deild Alþingistíðinda. (3282)
117. mál, skipun barnakennara og laun
Forseti (GÓ):
Þeir hv. þdm., sem ekki greiddu atkvæði um þetta mál á síðasta fundi, hafa nú látið mjer í tje munnlegar ástæður fyrir því. Það kann að mega segja með nokkrum rökum, að jeg hafi ekki altaf gengið nógu ríkt eftir því, að þm. færðu fram ástæður, ef þeir skorast undan að greiða atkvæði. En í þessu tilfelli verður slíkt ekki sagt með sanni. Jeg mun því láta mig það litlu skifta, sem hv. 4. landsk. hefir fært fram sem yfirsjónir af minni hálfu. (JBald: Jeg talaði ekkert um yfirsjónir.) Jeg mun hinsvegar fara eingöngu eftir því, hvernig jeg lít á þingsköpin, og mun úrskurða málið á þeim grundvelli. Jeg frestaði að kveða upp úrskurð á síðasta fundi, vegna þess að jeg vildi fyrst vita með vissu, hversu þingsköpin mæla fyrir um þessi efni. Nú hefi jeg kynt mjer það og mun kveða upp rökstuddan úrskurð um þetta atriði.
Jeg skal þá taka það fram, að jeg tek gildar ástæður hv. þm. Ak. Hann kvaðst ekki hafa treyst sjer til að greiða atkvæði vegna þess að hann hefði ekki þókst undir það búinn, hvað þekkingu á málinu snerti, en nú hefði hann kynt sjer málið nokkuð til hlítar, og væri nú viðbúinn að greiða atkvæði. Sömuleiðis tek jeg gildar ástæður hv. 4. landsk., enda voru þær svipaðar og sama eðlis og ástæður hv. þm. Ak. Hinsvegar get jeg með engu móti tekið ástæður hv. þm. Snæf. til greina. Hv. þm. vildi telja það gildar ástæður til þess að greiða ekki atkvæði, að hann óttaðist að slíkt gæti orðið til þess að stöðva annað mál, nefnilega frv. um launabætur yfirsetukvenna. Jeg get alls ekki tekið slíkar ástæður gildar, því að þetta er alveg sjálfstætt mál. Sama er að segja um þær ástæður, sem hv. 2. landsk. færði fram, enda voru þær sama eðlis og ástæður hv. þm. Snæf. (IHB: Þær voru að ýmsu leyti annars eðlis). Ef svo er, vildi jeg biðja hv. þm. að gera svo vel og hafa ástæðurnar yfir aftur, til frekari skýringar. (IHB: Gerist engin þörf; vona að skifarinn hafi skrifað þær.) Jæja, jeg skal þá ekki ganga eftir þeim, ef hv. þm. vill ekki láta mjer þær í tje af fúsum vilja.
Jeg skal þá lesa upp þá grein þingskapanna, sem fjallar um þessi atriði, nefnilega 47. gr. Hún hljóðar svo:
„Afl atkvæða ræður um úrslit mála og málatriða, nema öðruvísi sje ákveðið í stjórnarskránni eða þingsköpunum (sbr. 26. gr.). En það er afl atkvæða, ef meiri hluti þingmanna þeirra, sem á fundi eru og atkvæðisbærir, gera annaðhvort að játa eða neita.“
Nú lít jeg svo á, að atkvæðisbærir verði þeir þm. að teljast, sem ekki hafa svo ríkar ástæður til þess að skorast undan að greiða atkvæði, að forseti geti tekið þær gildar. Ef forseti hinsvegar tekur ástæður þm. góðar og gildar, verður hann að skoðast ekki atkv.bær og telst því ekki með í deildinni. Samkvæmt þessum skilningi mínum verður atkvæðagreiðslan, sem fram fór um þetta mál í gær, að úrskurðast á þá leið, að 7 greiddu atkvæði með 1. gr. frv., tveir greiddu ekki atkvæði af þeim ástæðum, sem jeg tek gildar. Hafa því 7 þm. af 12 atkvæðisbærum goldið jákvæði, og úrskurðast greinin því samþykt. Þá liggur næst fyrir að greiða atkvæði um aðrar greinar frv. og frv. í heild.