22.04.1929
Neðri deild: 51. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í C-deild Alþingistíðinda. (3293)
119. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Gunnar Sigurðsson:
Jeg er þakklátur hv. n. fyrir það, hvað hún hefir afgreitt þetta mál fljótt og vel. Hefi jeg enga ástæðu til þess að hafa á móti þeim breytingum, er hún leggur til, því þær eru ekki efnisbreytingar, heldur aðeins orðabreytingar. En að orðið „undirskattanefnd“ er í frv. mínu, kemur til af því, að jeg hafði ekki skattalögin við hendina, er jeg samdi frv., en skattanefndir eru hinsvegar í daglegu tali kallaðar undirskattanefndir.
Hitt leiðir auðvitað af sjálfu sjer, að stjórnarráðið fer ekki að úrskurða um ágreining, nema til þess sje leitað. Jeg get því, eins og jeg hefi áður sagt, að öllu leyti fallist á breytingu n., því að þær kveða aðeins skýrar á um það, er jeg vildi sagt hafa.