15.04.1929
Neðri deild: 45. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1750 í C-deild Alþingistíðinda. (3309)
120. mál, refarækt
Halldór Stefánsson:
Jeg get verið sammála þeim hv. þdm., sem talað hafa um það, að nokkur ástæða kunni að vera til að setja lög um þessa tiltölulega nýju en arðsömu atvinnugrein, til þess að tryggja hana betur. Hitt er annað mál, hvernig þau lög eiga að vera.
Jeg ætla ekki að þessu sinni að fara neitt verulega út í það, að „kritisera“ frv., en vil þó láta í ljósi það álit mitt, eins og hv. þm. Borgf. hefir vikið að, að með frv. er meira tillit tekið til hagsmuna þeirra, sem ala upp refi til að versla með þá, heldur en hinna, sem veiða dýrin. Í grg. frv. er það tekið fram, að með ákvæðum, sem í frv. eru, eigi tvent að vinna, í fyrsta lagi að hlynna að viðleitni brautryðjenda í refarækt, og í öðru lagi að tryggja það, að refir geti ekki sloppið úr vörslu.
Nú telja menn, vegna öryggis sauðfjárins, sjálfsagt og nauðsynlegt að eyða sem mest viltum refum, og hefir verið lagt allmikið kapp á það. Hið háa verð hefir mjög aukið áhuga og kapp refaveiðimanna. Er því þörf á að athuga, hvort ekki sje of mikið að því gert með frv. að taka tillit til verslunararðs þeirra manna, sem ala upp refi og versla með þá, en um leið þrengt kosti þeirra, er veiðarnar stunda. Á meðan það er álitið nauðsynlegt að veiða vilta refi til þess að fækka þeim og eyðileggja þá, má heldur ekki rýra hvöt einstaklinganna til þess að leggja stund á það.
Í þessu sambandi vildi jeg einnig leyfa mjer að beina því til hv. landbn. til athugunar, hvort ekki mundi ástæða til, og öllum fyrir bestu, að banna með lögum útflutning lifandi refa.
Ef refir eru fluttir út úr landinu til þess að alast þar upp til framtímgunar, þá má gera ráð fyrir að skinnum af íslenskum refum fjölgi svo á markaðinum, að það geti rýrt arðsvon hinnar íslensku verslunar og geri það þá jafnframt að verkum, að minni áhugi verði á því á meðal refaveiðimanna, að stunda þessa veiði og útrýma refum en ella væri. Arðurinn af uppeldi refanna og ræktun yrði eftir í landinu, og erlendri samkepni bægt frá, ef aðeins væri flutt út skinnin í stað lifandi refa.