24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í C-deild Alþingistíðinda. (3320)

120. mál, refarækt

Jón A. Jónsson:

Það er ekki undravert, þó það kenni nokkurs misskilnings í þessu máli, þegar jafn glöggur maður og hv. þm. Borgf. (PO) veit ekki, að Norðmenn keyptu hjer refi í fyrra til útflutnings í samkepni við þá Íslendinga, sem ala refina upp til að lóga þeim hjer á landi, skinnanna vegna. Hv. þm. virðist halda því fram, að Norðmenn kaupi alla refi, sem þeir fá hjer, til þess að ala þá og til að kynbæta sinn stofn. Verðið á refunum hjer á landi hækkar vegna refabúanna. Þegar Íslendingar kaupa refi fyrir sin refabú, þá eru engir samkepnisfærir við þá, enda hafa þeir keypt mikinn meiri hluta af refum, sem veiddir hafa verið hjer á landi á undanförnum árum.

Hinsvegar er öllum vitanlegt, þeim sem skyn bera á þessi mál, en þeir virðast, því miður, vera of fáir hjer í þessari hv. deild, að sú mikla verðhækkun, sem varð á refum síðastliðið vor, stafaði af því, að hjer voru risin upp refabú, sem Norðmenn hugðu sig kaupa refina frá. Þessa refi ætluðu þeir að nota til að kynbæta stofn sinn. En Norðmenn, eins og aðrir, gefa lítið verð fyrir vilta refi, kaupa þá aðeins til að lóga þeim skinnanna vegna, en þegar búið var að koma hjer upp refabúum, álitu þeir, að þeir keyptu refi, sem upp væru aldir í refabúum, og af þeim ástæðum steig verðið. Sannleikanum í þessu efni er snúið svo við af ókunnugleika hv. flm. brtt., að betur verður ekki gert. Þeir virðast vilja halda áfram að lofa mönnum að selja svikna vöru, með því að selja vilta refi undir því yfirskini, að þeir sjeu aldir upp í fangelsi, og þeir menn, sem hafa beitt sjer fyrir því að koma hjer upp refabúum, eru vændir um allskonar illar hvatir og eigingirni, af því að þeir vita, að þetta er til skemda fyrir atvinnuveginn. Hvað svo sem gert verður í þessu máli, vildi jeg óska þess, að ekki verði þeim mönnum gefið undir fótinn, sem svíkja vörur okkar og selja þær undir fölsku nafni, og skaða þannig þessa atvinnugrein.