24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í C-deild Alþingistíðinda. (3326)

120. mál, refarækt

Pjetur Ottesen:

Það er hálf-leiðinlegt, þegar verið er að slá fram fullyrðingum — eins og hv. þm. V.-Sk. gerði — sem margbúið er að slá niður. Hv. síðasti ræðumaður var að reyna að læða því inn í umr., að með till. okkar væri verið að gera innlendum mönnum lægra undir höfði en Norðmönnum. (JAJ: Auðvitað er það gert). Nei, alls ekki. Við viljum einungis, að eðlileg samkepni fái að njóta sín á þessu sviði, til hagsmuna, ekki fyrir einstaka menn eingöngu, heldur alla þá jafnt, sem hag geta haft af sölu yrðlinga. Órökstuddum dómum um það, að samkepnin á síðasta vori hafi verið óheilbrigð, tel jeg ekki svara verða.

Hv. þm. V.-Sk. talaði um það af mikilli vandlætingu, að hjer væri sú gamla saga að endurtaka sig, að ráðist væri á athafnamennina. Hvaða athafnamenn hefi jeg ráðist á? Það eina, sem jeg hefi gert, og heimfæra mætti undir þessi ummæli hv. þm., er að vita þá menn, sem ganga hjer um eins og grenjandi ljón, til þess að reyna að hafa áhrif á atkvæði þm. Og jeg tel rjett að víta þá, sem „athafna- menn“ eru í því framferði.