24.04.1929
Neðri deild: 53. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1772 í C-deild Alþingistíðinda. (3327)
120. mál, refarækt
Frsm. (Einar Jónsson):
1 Ræðuhandr. óyfirlesið. Þó að hjer hafi nú orðið allmiklar orða-hnippingar, hygg jeg, að menn sjeu á sama máli og landbn. um það, að hjer sje um arðvænlega atvinnugrein að ræða, sem rjett sje að tryggja svo sem unt er, þó að einstökum mönnum kunni að þykja miður. En það hefir í ýms um tilfellum átt sjer stað, að einstakir menn hafi orðið óánægðir með 1., og dugir ekki að setja það fyrir sig, heldur ber að taka tillit til hags og heillar heildarinnar. Það hefir komið fyrir fyrr en nú, að menn hafi orðið óánægðir með eftirlit af hálfu hins opinbera á ýmsum vörutegundum. Jeg vil minna á, hvílík óánægja reis út af ullarmatinu, eða þegar ákveðið var að koma fastari og betri skipun á fiskimatið. Þá þótti og ýmsum nóg um, þegar sláturfjelögin risu upp og farið var að hafa eftirlit á meðferð á kjöti. Og nú þykir mönnum það goðgá, að eftirlit sje sett í þessum efnum, af því að einstaka maður kunni við það að verða útilokaður frá að koma út ljelegu skinni eða tófuhvolpi. (PO: Það hefir enginn haft á móti eftirliti dýralæknis. Það er nú öðru nær).
Jeg hygg, að allir ættu að geta verið sammála um, að sjálfsagt sje að hlynna að þessari atvinnugrein. Ef eitthvað verður hægt að finna að þessari vöru, er ekki vafi á því, að við missum með öllu af þessari verslun. Það eru víðar til refir en á Íslandi, svo að útlendingar þurfa ekki að vera upp á okkur eina komnir með kaup á tófuhvolpum. Bæði frá Grænlandi og Ameríku eru fluttir út refir svo tugum þúsunda skiftir. Okkar fáu refir eru eins og dropi í hafið, en það getur gruggað vatnið, ef sá dropi er eitraður eða svartur. Á síðasta ári voru fluttir út 40 þús. hvítir og bláir refir frá Alaska, og 30 þús. annarsstaðar frá, mestmegnis frá refabúum. En þau hafa nú víða verið stofnuð, t. d. í Englandi, Þýskalandi og Sviss. Eru þau mjög kostnaðarsöm og verða það einnig hjer hjá okkur, sem peningalitlir erum. Það er því sjálfsagt að hlynna að þeim vísi, sem hjer er risinn upp til refabúa. Ættu allir góðir Íslendingar að geta sameinast um það. Þrætur bjarga engu, en verða aftur á móti til að ergja menn, og jafnvel sundra. Væri ilt, ef svo færi í þessu máli.
Jeg skal játa það hreinskilnislega, að jeg er ekki fróðastur um þessi efni af þeim mörgu, sem hjer eru á þingi. En jeg geng þess ekki dulinn, að stefna ber að því, að miskunnarlaust eftirlit sje haft með því, að ekki sjeu seld veik dýr, og að svo verður frá að ganga, að refagirðingarnar sjeu traustar og öruggar. Þó að svo fari, vegna eftirlitsins, að einhver komi ekki út 1–2 skinnum — þá má hann gjarnan, mín vegna, fara með það heim aftur. Það þarf ekki mikið af vondri vöru til þess að spilla stórri heild vel vandaðrar og góðrar vöru.