06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1783 í C-deild Alþingistíðinda. (3340)

120. mál, refarækt

Bernharð Stefánsson:

Annaðhvort hefir þessi skriflega brtt. átt rjett á sjer til að komast að, eða hún hefir ekki átt það. Og þegar svo var til ætlast, að hún gæti komist að, ef brtt. á þskj. 460 hefðu verið samþ., þá sje jeg ekki annað en að hún geti eins komist að, þótt þær sjeu nú úr sögunni, þar sem hún snertir sjerstakan lið frv. Jeg verð því að halda fast við það, að till. verði tekin upp, svo framarlega sem það kemur ekki í bága við þingsköp, að áliti hæstv. forseta.