02.03.1929
Efri deild: 12. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1786 í C-deild Alþingistíðinda. (3364)
36. mál, friðun á laxi
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Það er ljett verk að hafa framsögu í þessu máli nú, þar sem samhljóða frv. og það, sem hjer liggur fyrir, var afgreitt frá deildinni í fyrra með nær öllum atkvæðum deildarmanna. En eins og hv. deildarmönnum mun kunnugt, náði það samt ekki fram að ganga í neðri deild, var það þó svo snemma á ferðinni þar, að nægur tími var fyrir deildina að afgreiða málið, ef áhugi hefði verið fyrir því. Jeg minnist þó ekki, að þar kæmu fram nein rök gegn því, sem bentu í þá átt, að tilgangur frv. væri varhugaverður, heldur hafa öll rök bent í þá átt, að rjettara myndi að færa laxveiðalögin í það horf, sem hjer er farið fram á.
Aðaltilgangur frv. er sá, að hindra það, að þeir, sem búa við ósa veiðiánna, geti hirt svo að segja hverja bröndu, sem upp í árnar kemur, en það er hægt eftir laxveiðalögunum frá 1886.
Afstaða nefndarinnar til málsins er hin sama og í fyrra. Einn nefndarmanna hefir skrifað undir nál. með fyrirvara, og gerir hann sennilega grein fyrir sjerstöðu sinni, ef honum þykir ástæða til.
Þá vil jeg benda á, að í 1. gr. frv. er prentvilla, „86 stundir“ í stað 36 stundir. Verður hún leiðrjett við endurprentun á frv. milli deilda, því ekki hefir þótt ástæða til að bera fram brtt. vegna þessarar villu.
Legg jeg svo til fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar, að frv. verði samþykt.