12.04.1929
Efri deild: 43. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í C-deild Alþingistíðinda. (3402)

64. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Það er sannarlega ekkert nýtt, þótt hv. 3. landsk. (JÞ) komi fram sem kennifaðir í lagasetningu hjer í hv. deild. Jeg skal láta ósagt um hæfileika hans til slíkrar kennimensku. En í þetta sinn held jeg, að hann hafi skotið yfir markið.

Ef hv. 3. landsk. vildi leggja það á sig að lesa fyrirsögn frv., myndi hann sjá, að frv. er um „eftirlit með loftskeytanotkun“. Það er ekki um bann gegn loftskeytanotkun. Eftirlitið á að koma í veg fyrir misnotkun. Og við það eru refsiákvæðin miðuð. (BKr: Hvernig á eftirlitið að vera). Það er tekið fram í frv. Skeytin á að bókfæra jafnóðum og þau eru send, og svo verða þau athuguð af sjávarútvegsnefnduin Alþingis. En jeg veit ekki, hvernig hv. 3. landsk. fer að hugsa sjer, að bann geti komið að notum án eftirlits. Hugsum okkur að skipstjóri sendi skeyti með upplýsingum um varðskipin. Ætli hann færi að skýra dómsmálaráðuneytinu frá því ótilkvaddur, að hann hefði sent þetta skeyti? Nei, strangt eftirlit er það eina, sem komið getur að liði til að hindra hina hættulegu misnotkun loftskeytanna. Þeir menn, sem í alvöru vilja vinna gegn þessari misnotkun, hafa ekki fundið aðra leið. Þetta held jeg, að hv. þm. (JÞ) hlyti að sjá, ef hann vildi. Og það væri sómasamlegra af honum og öðrum, sem eru á móti öllum ráðstöfunum í þessu efni, að viðurkenna það hreinskilnislega. Annað er leikaraskapur.

Hv. 3. landsk. fann að því, að 1. gr. frv., um skyldu til að hafa loftskeytatæki, skuli eingöngu miðuð við botnvörpuskip. Jeg tel hæpið, að rjett sje að fyrirskipa, að svo stöddu máli, loftskeytatæki á smærri skipum. Mjer þykir vafasamt, að loftskeytatæki komi að verulegum notum á litlum skipum. Togararnir eru nú langstærstu veiðiskip, sem Íslendingar eiga. En verði sú breyting á fiskiflotanum yfirleitt, að skipin stækki, þá er líka sjálfsagt að skylda þau til að hafa loftskeytatæki. Jeg hygg, að slíka skyldu ætti fremur að miða við stærð skips en mannafjölda. En þó má hann líka koma til athugunar í þessu sambandi. En jeg álít, að frv. sje fullnægjandi í þessu efni, eins og ástandið er nú. Þó gæti jeg vel gengið inn á það, til samkomulags, að efni 1. gr. yrði athugað nánar.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál nú. Jeg held, að þeir, sem ekki vilja ljá frv. fylgi, hljóti að hafa til þess aðrar ástæður en uppi eru látnar. Hitt get jeg ekki viðurkent, að ástæður þær, sem hv. 3. landsk. hefir borið fram í þessu máli, styðjist við rök. Þær eru bygðar á því, að frv. sje öðruvísi en það er.