29.04.1929
Neðri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1818 í C-deild Alþingistíðinda. (3414)
64. mál, loftskeytanotkun veiðiskipa
Ólafur Thors:
Það gleður mig að sjá á frv. þessu, að hæstv. dómsmrh. hefir dálítið lært af því, er jeg og aðrir vorum að reyna að kenna honum í umr. um þetta mál á þingi í fyrra. Þó hefir hann ekki lært nóg, því að enn eru stórgallar á frv. og flm. þess til háborinnar minkunar.
Eins og hv. þdm. ef til vill muna, þá hjelt hæstv. dómsmrh. því fram í fyrra, að loftskeytatæki væru til þess eins sett í veiðiskip Íslendinga, að eigendur þeirra og framkvæmdastjórar gætu leiðbeint þeim um landhelgiveiðar. Þó að hæstv. ráðherra væri bent á, að loftskeytatækin væru til alls annars notuð, mátti hann ekki heyra það nefnt. Hann barði höfðinu við steininn, sat fastur við sinn keip og staðhæfði, að loftskeytatæki botnvörpunganna væru eingöngu til bjargar landhelgibrjótunum.
Nú er helst að sjá, að hæstv. dómsmrh. hafi tekið sinnaskiftum, því að í þessu frv. er þess beinlínis krafist, samkv. 1. gr., að loftskeytatæki sjeu á öllum botnvörpuskipum.
Jeg á víst heiðurinn af því, að hafa opnað augu hæstv. dómsmrh. fyrir því, að nauðsynlegt sje að hafa loftskeytatæki á botnvörpuskipum, en þá skilst mjer að jeg eigi líka skilið viðurkenningu hans, enda efast jeg ekki um, að hann láti mig njóta sannmælis. Annars er það spaugilegt út frá þeim ummælum sjeð, sem hæstv. dómsmrh. hafði í fyrra um loftskeytanotkun íslenskra togara, að hann skuli í ár bera fram kröfur um að loftskeytatæki sjeu sett í öll íslensk botnvörpuskip.
Þá vil jeg benda á, að samkv. 5. gr. frv. eru viðurlög sett um brot á ákvæðum laganna og svo fyrir mælt, að efnisbrot skulu sæta sömu hegningu og smá brot á ýmsum formsatriðum. Með öðrum orðum, að þeir, sem gerast sekir um að nota loftskeytin til þess að aðstoða við veiðar í landhelgi eiga fyrir það að greiða sömu viðurlög og sá, sem hefir ekki annað til saka unnið en að nota ekki hin lögskipuðu skeytaeyðublöð.
Maður verður að gera þá kröfu til hæstv. dómsmrh., að ef hann er svo lítill lagasmiður að hafa flaskað einu sinni á svona atriði, að slíkt eigi ekki að þurfa að henda hann aftur.
Það er ekki nema sjálfsagt að girða fyrir, að loftskeyti togara sjeu notuð í þágu landhelgiveiða, en hitt er vanhugsað, að leggja viðurlög, sem nema tugum þúsunda í sekt fyrir að gleyma að rita skeyti á fyrirskipuð eyðublöð.
Hæstv. dómsmrh., sem með illgjörnum aðdróttunum og dylgjum í garð útgerðarmanna, bæði hjer á þingi og annarsstaðar, hefir lætt þeim grun inn hjá alþjóð manna, að loftskeytatæki togaranna sjeu notuð til þess að „stela úr landhelginni“ eins og hann kallar það, ber nú að sjá um að löggjöf þessi nái samþ. Alþingis.
Þeir sem lagt hafa trúnað á illmæli ráðherrans treysta ef til vill líka lagasmíði hans, þótt jeg og fleiri byggjum ekki miklar vonir á handahófs lagasetningum þess manns, sem er hvorttveggja í senn, ljelegasti lagasmiður þingsins, en fullur heiftar og ofsóknar í garð þeirra manna, sem hann ætlar að ná til með lögunum. Ef til vill mundi þó slík lagasetning eyða hinum óverðskuldaða grun í garð útgerðarmanna.
Annars hafði jeg ekki búist við, að jafnmikil hlutdrægni yrði sýnd um afgreiðslu mála, eins og nú á sjer stað, að taka til umr. þetta mál, sem er svo neðarlega á dagskrá, og er jeg því ekki undir það búinn að andmæla einstökum atriðum þess eins og þörf væri þó á. En þar sem jeg á sæti í þeirri n., sem frv. mun eflaust vísað til, get jeg reynt að sjá um, að það verði lagað svo, að það verði ekki þinginu til minkunar.
Mjer er áhugamál, að hægt sje að klæða frv. í þann búning, að við megi una, og ekki sje minkun fyrir Alþingi að lögfesta. En jeg skal líka játa, að jeg hefi ekki enn fundið það form fyrir þessu að jeg sje ánægður með, og skal heldur ekkert um það segja, hvort mjer tekst það eða ekki. En jeg vil þó taka fram, að eins og frv. er, þá eru fæst af nýmælum þess á nokkru minsta viti bygð.
Hæstv. stj. hefir að lögum rjett til þess að hafa eftirlit með skeytasendingum og það er ekki nema sjálfsagt að hæstv. dómsmrh. noti sjer þann rjett til þess að hafa eftirlit með loftskeytum botnvörpunga og annara veiðiskipa.
Í trausti þess, að frv. verði vísað til sjútvn. og að mjer með aðstoð góðra manna í n. takist að koma einhverju viti í frv.ómyndina, ætla jeg að láta þetta nægja um sinn.