18.03.1929
Efri deild: 25. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í C-deild Alþingistíðinda. (3457)

72. mál, einkasala á saltfiski

Flm. (Jón Baldvinsson):

Við getum spáð um það sinn í hvoru lagi, hv. 3. landsk. og jeg, hvaða líkur sjeu til þess, að þetta frv. nái fram að ganga. Hann veit auðvitað um sjálfan sig, og ef til vill flokk sinn. En hann veit heldur ekki meira, að því er jeg hygg. Jeg hefi að vísu ekki ráðfært mig við menn um þetta frv., svo jeg veit ekki, hvort það hefir mikið eða lítið fylgi, en jeg álít að það sje svo mikils vert, að sjálfsagt sje að athuga það í nefnd.

Það er að mestu leyti rjett hjá hv. 3. landsk., að jeg hefi komið með fáar nýjar ástæður fyrir þessu máli. En það gerir ekkert til, því þær ástæður, er áður hafa verið færðar fram því til stuðnings, eru algerlega fullnægjandi. Þó er það ekki rjett, að jeg hafi ekki komið með neina nýja ástæðu. Jeg kom með eina, og hana alls ekki smávægilega, en það er reynsla sú, er fjekst af síldareinkasölunni í sumar. Hún mælir mikið með því, að þessi leið sje farin. Skal jeg svo ekki frekar elta ólar um þetta við hv. 3. landsk.