14.05.1929
Efri deild: 68. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1926 í C-deild Alþingistíðinda. (3485)

103. mál, menntaskóli og gagnfræðaskóli í Reykjavík og Akureyri

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg ætla aðeins að segja nokkur orð um brtt. hv. 3. landsk., enda þótt jeg því miður hafi ekki haft tíma til að athuga þær fyr en nú á fundinum. Jeg hefði helst viljað fara fram á, að málið yrði tekið af dagskrá, því að í svona vandasömu máli er ekki hægt að mynda sjer ákveðna skoðun svona í flýti. Jeg, sem sagt, hefi alls ekki sjeð brtt. fyr en nú, að jeg kom á fundinn. Um þessar brtt. virðist mjer þó yfirleitt mega segja það, eins og hv. flm. þeirra (JÞ) sagði, að þær gera ekki djúptækar breytingar á frv. og raska í engu grundvelli málsins. Um þýskukensluna t. d., er það að segja, að vegna þess að Akureyrarskólinn stendur nokkru skemur árlega, þótti sanngjarnt og eðlilegt að heimta nokkru meiri kunnáttu við inntöku en í Reykjavík.

Ein aðalástæðan til þess, að skólameistarinn á Akureyri hefir lagt á móti því, að skólinn væri lengdur, er fátækt nemenda. Hann telur, að þeir mundu fyrir það tapa of miklu af þeim tíma, sem þeir þurfa að nota sjer til bjargar.

Jeg hefi rekið mig á það í vor, að það er talsvert erfitt að koma því svo fyrir, að þessir fyrirhuguðu fjórir bekkir á Akureyri hætti 31. maí.

Það hefir verið gert ráð fyrir, að einn bekkur mentaskólans hjer fari með náttúrufræðiskennaranum og búi svo sem 10 daga í tjöldum úti í náttúrunni, við einskonar nám, og er talið æskilegt, að Akureyrarskólinn geti notið sömu hlunninda. En eins og nú er háttað, verður erfitt að koma þessu við, fyrstu dagana í júní, vegna þess að nemendur eru þá þegar dreifðir og margir farnir að leita sjer atvinnu.

Hv. þm. spurði, hvað mundi vera meint með orðinu „atvinnufræði“. Jeg get svarað því með því að vitna í það, sem hv. þm. Vestm. lagði til í sínu frv. um ungmennaskóla í Vestmannaeyjum, — að þar væri kent ýmislegt viðvíkjandi meðferð vjelbáta, — sem sagt gagnfræði, sem lyti að lífi manna þar í eyjunum. Þetta sýnir, að það eru allar líkur til, að kröfurnar úr bæjum og kauptúnum verði meira og meira í þá átt, að þessir skólar lagi sig eftir lífsskilyrðum á hverjum stað. Og jeg get sagt það, að fyrir mjer vakti það með þessu orði, að eins og það er nauðsynlegt álitið, að þeir, sem búi sig undir búskap, kynni sjer húsdýrafræði og jarðvegsfræði, og þann hluta náttúrunnar, sem veit að þeirra starfi, á sama hátt þurfi bæjarfólkið smátt og smátt að reyna að finna, hvaða þekking um atvinnuhætti því geti komið að haldi. Og þó að jeg með orðinu „atvinnufræði“ ætti ekki við það sama og hv. þm. Vestm., tel jeg, að innan reglugerða skólanna væri hægt að koma fyrir gagnfræði um atvinnuhætti, eins og þeir blasa við á hverjum stað, þar sem skólarnir starfa.

Annars skoða jeg þetta sem aukaatriði, hvort orðið stendur eða verður felt úr, því að hjer er að ræða um mál, sem verður — eftir að því er lokið hjer í hv. deild, — tekið til nýrrar athugunar á næsta ári.

Aftur eru tvær brtt. frá hv. 3. landsk. (JÞ), sem jeg verð lauslega að athuga, því að jeg tel dálitlu máli skifta, að þær verði ekki samþ. athugasemdalaust. Hv. þm. sagði, að það væri dálítið óheppilegt að hafa tvö próf við sama skólann, sem heiti meira og minna próf, og hefir því stungið upp á, að aðalprófið, sem flestir mundu ljúka, hjeti ekki gagnfræðapróf, heldur ungmennapróf, og að yfirleitt væri þessi skóli skoðaður sem áframhald af barnaskóla. Þetta held jeg, að sje mjög óheppilegt. Hvernig sem á því stendur, lítur fólk svo á, að ungmennaskóli sje eitthvað lægra og ljettara en gagnfræðaskóli. Jeg hefi orðið víða var við, að fólk í kaupstöðmn gerir svo mikinn mun á þessu, og finst, að „gagnfræðaskóli“ sje eitthvað traustara nafn, en „ungmennaskóli“ bæði lítilfjörlegt og merkingarlaust. Jeg vona, að hv. 3. landsk. sjái, að þetta er ekki alveg þýðingarlaust atriði. Ennfremur er það tekið fram, að menn geti ekki farið alveg hiklaust úr barnaskóla í þennan skóla, heldur yrðu að sýna einhvern vott um þekkingu og áhuga. Og þó að jeg sje samþykkur hv. frsm. n. um það, að líkur sjeu til, að t. d. hjer í Reykjavík yrði meginþorri af nemendum þessa skóla ungir menn og ungar stúlkur, þá er engan veginn útilokað, að alveg fullorðnir menn gætu stundað þar nám. Vel getur verið, að hálfþrítugir menn, sem flyttust hingað til bæjarins, en hefðu ekki, fyrir fátæktar sakir, átt kost á að læra fyr, færu í skólann og tækju próf eftir tvo vetur. Mundi það þá þykja hlægilegt, að slíkir menn væru að taka „ungmennapróf“.

Alþingi hefir nú fallist á að lögfesta orðið hjeraðsskóli um ungmennaskóla sveitanna, en aðalkosturinn við þetta orð „hjeraðsskóli“ er, að það er svo hlutlaust, hvorki lofar eða lastar. Menn hafa áður reynt ýms nöfn, lýðháskóla, alþýðuskóla og ungmennaskóla, en það var eitthvað að öllum þessum nöfnum, og þau reyndust ekki viðfeldin. Og það, sem jeg óttast, ef þessi till. verður samþ. endanlega, er það, að þessir skólar mundu setja niður við það. Menn gera mun á, hvort skólinn er áframhald af barnaskóla eða sjálfstæður, og gera til muna hærri kröfur til hans. í þessu liggur dálítill skoðanamunur milli mín og hv. þm. Jeg vil, að gagnfræðaskólar í kaupstöðum sjeu taldir sjálfstæðir og ekki í sjerstaklega nánu sambandi við síðasta bekk barnaskólans. Að því leyti er jeg þakklátur n., þar sem hún gerði brtt. í þá átt, að gera skólann sjálfstæðari. Sú till., að skólinn sje áframhald af barnaskóla, er heldur ekki komin frá hv. þm. sjálfum, heldur frá einum af skólamönnum landsins, sem áður hafði lýðháskóla.

Því getur verið svo varið um marga, að þeir þurfi ekki námsins vegna að keppast eftir að taka síðasta bekk, ef þeir ætla að fara að snúa sjer að verklegu námi. Jeg tel það þá mjög illa farið, að gera lítið úr þeim fyrri bekkjum. Það verður að telja þá skoðun óheppilega, sem ríkir hjer í Reykjavík, að menn skoða neðri bekki mentaskólans sem inngang í efri bekkina, svo að allir eigi að reyna að brjótast inn í þá.

Í framhaldi þess, sem jeg sagði um nauðsyn þess, að hafa nám í samræmi við kringumstæður, vil jeg minnast á það, sem Halldór Vilhjálmsson á Hvanneyri hefir sagt mjer um viðhorf þessara nýju skóla í sveitum og áhrif þeirra á bændaskólana. Af því að bændaskólinn varð að taka við fólki með litla almenna mentun, meðan hana var erfitt að fá í landinu, urðu bændaskólarnir að hafa kensluna töluvert almenns eðlis og að sama skapi minna af eiginlegri búnaðarkenslu. En þegar hjeraðsskólum fjölgaði, varð afleiðingin sú, að bændaskólarnir eru að verða hálftómir. Fólkið fer í hina, sem ekki veita sjermentun.

Nú álítur skólastjórinn á Hvanneyri — og jeg býst við, að það sje skoðun margra hygginna manna, — að hjer þurfi að verða breyting, helst að búnaðarskólar geri almennar þekkingarkröfur, t. d. eins vetrar nám á hjeraðsskóla eða gagnfræðaskóla, þannig að nemendur kunni nokkurn veginn að skrifa móðurmál sitt, einfaldan reikning og þess háttar, en búnaðarskólarnir hafi nær eingöngu búfræðikenslu.

Það verður e. t. v. sagt, að þetta komi ekki mikið kaupstöðum við. En þar horfir þó svipað við, því að í kaupstöðunum þurfa menn líka að búa sig undir lífið á sinn sjerstaka hátt. Og jeg hygg, að mjög margir þeirra vilji fara að búa sig undir lífið með sjerfræðinámi, hliðstætt því, sem menn gera á Hvanneyri. Og þá er um að gera, að mönnum finnist ekki, að það sje eitthvað óeðlilegt eða lítið í því, sem þeir hafa lært. Og þess vegna vildi jeg óska, að hv. 3. landsk. hjeldi ekki sinni till. til streitu. Því jeg hygg, að jeg hafi fært rök að því, að þótt hún sje ekki nema orðabreyting, sje hún heldur til skaða. Allir flokkar í Ed. komu sjer í fyrra saman um það, að alþýðuskólinn hjer í Reykjavík ætti að heita gagnfræðaskóli. En svo var í Nd. fundið upp þetta nafn: „bráðabirgða-ungmennafræðsla“. Menn segja — sem rjett er: — þetta er ekkert nafn, og það bætir ekki fyrir neinum skóla að vera nafnlaus. En þar sem hv. 3. landsk. (JÞ) hefir unnið þessu máli með það eitt fyrir augum, að leysa það sem best, þá vona jeg, að hann láti þarna sína skoðun ráða, heldur en till. þeirra manna, sem hafa sýnt skeytingarleysi í sínum till.

Jeg ætla ekki að fjölyrða að sinni um breytingu á skólanefnd, en segja það aðeins, að jeg álít, að öll sömu rök hnígi að því, að sjerstök skólanefnd sje fyrir gagnfræðaskóla, eins og hnigu að því, að hafa ekki nafnið „ungmennaskóli“. Þessir skólar ættu algerlega að vera aðskildir, og ekkert samband á milli. Og það mundi bersýnilega gera skólunum skaða, ef menn hjeldu, að þeir værir áframhald af barnaskóla. Það er fjarstæða, sem má ekki halda við, því að ef það væri gert, mundi lífið sprengja af sjer þennan óeðlilega fjötur.

Jeg býst ekki við, að segja meira um þetta mál að sinni. Jeg býst við, að þegar hv. frsm. og aðrir hafa tekið til máls, verði málið tekið út af dagskrá til morgundagsins, og verði þá lokaumræða um það.