15.05.1929
Efri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1931 í C-deild Alþingistíðinda. (3487)

103. mál, menntaskóli og gagnfræðaskóli í Reykjavík og Akureyri

Jón Jónsson:

Þetta mál hefir verið lengi hjá okkur í n., enda er það eitt af stærri málum þingsins. N. var ljóst, að ekki væri nema heppilegt, að mál þetta væri athugað lengi og vel, jafnvel þó að það yrði til þess, að því yrði ekki lokið á þessu þingi. Jeg býst við, að menn gangi þess ekki duldir, að hjer er um mikla nauðsyn að ræða, þar sem engin lög hafa verið til um hvorugan mentaskólann, heldur bara tilskipun. Undanfarin ár hefir staðið deila um skólamálin, einkum um það, hvort mentaskólinn ætti að vera tvískiftur, eins og hann hefir verið síðan laust eftir aldamótin, eða ekki. Jeg hefi mikla tilhneigingu til að fylgja þeim mönnum, sem vilja hafa skólann tvískiftan, og jeg hefi altaf verið á móti því, að leggja mikla rækt við latínuna. En við nánari athugun hefir vaknað hjá mjer sú spurning, hvort gagnfræðadeildin, eins og hún er orðin, næði sínum upphaflega tilgangi. Hún átti ekki aðeins að vera fyrir þá, sem halda áfram námi, heldur og fyrir alþýðu manna. Einn af kostum þess fyrirkomulags var sá, að saman yrðu bæði þeir, sem ætluðu sjer að verða lærðir menn og embættismenn, og svo alþýða manna af öllum stjettum. Með þessu var talið líklegt, að skapaðist meiri samúð á milli stjettanna. En nú er svo komið, að straumurinn rennur því sem næst óbrotinn upp í lærdómsdeildina, svo að mentaskólinn er eiginlega bara skóli fyrir þá, sem halda áfram námi. Þar með er komið í ljós, að gagnfræðadeildin nær ekki sínum upphaflega tilgangi.

Það eru skiftar skoðanir um það, hvort skólinn skuli halda áfram að vera 6 ára skóli tvískiftur, í 2 og 4 ár. Flestir kennarar halda fram, að þetta sje æskilegt. En mjer finst það alveg rjett hjá hæstv. dómsmrh., að á því sje ekki brýn þörf, af því þörfin er annarsstaðar. Þess vegna hefi jeg hneigst að því, að óhætt mundi vera að taka tvo bekki af mentaskólanum hjerna, enda hlýtur það að vera sparnaður fyrir ríkissjóð.

Einn stór kostur við frv. er sá, að mönnum er greiðlega hleypt að utan af landi. Eftir frv. geta þeir gengið inn í hvaða bekk, sem vera skal. Reynslan hefir orðið sú, að það hafa aðallega verið menn úr Reykjavík og nágrenni hennar, sem komið hafa í skólann. Ef jeg byggist við, að frv. næði fram að ganga nú, hefði jeg mikla tilhneigingu til að bera fram brtt., til þess að tryggja utanbæjarmenn enn frekar. Eins og nú er komið, er ekki mikið mist, þó að gagnfræðadeildin falli niður, ef lærdómsdeildin er efld.

Hins vegar er mjer sárara um Akureyrarskólann. Hann hefir haft hina mestu þýðingu fyrir Norður- og Austurland, og til dæmis hafa bestu menn af bændastjett sótt þangað mentun sína og menning. Hann hefir því meira svarað til takmarksins en gagnfræðadeildin hjer. Meðan Akureyrarskólinn vex ekki meira en orðið er, stendur hann betur að vígi með að vera reglulegur gagnfræðaskóli. Hann hefir auk þess mikið og gott húsnæði.

Enda þótt jeg telji frv. yfirleitt gott og fylgi því, eru þó í því ýms atriði, sem jeg hefði kosið á annan veg. Einkum finst mjer vafasamt, hvaða gagn skólaráðið mundi gera. Það er ef til vill gott til að slá einskonar skjaldborg um skólann, en jeg er alveg á móti því, að það skifti sjer af hinni daglegu starfsemi skólans. Um það verða skólastjórar að vera sjálfráðir.

Aftur á móti er það mikilsverð umbót, að taka upp inntökupróf við gagnfræðaskólann á Akureyri.

Jeg geri ekki ráð fyrir, að þetta frv. fari lengra en úr þessi hv. d. Mál þetta verður því aftur tekið til umræðu á næsta þingi, en þá fyndist mjer eðlilegra, að ekki væri alt í einu frv., heldur væri frv. þrjú. Jeg sje ekki, að gagnfræðaskóli hjer í Reykjavík standi í svo nánu sambandi við mentaskólann, að ástæða sje til að hafa sömu lögin um þá báða. Jeg, sem sagt, teldi miklu heppilegra, þegar málið kemur fram aftur, að það yrði í fleiri frv. Nefndin sá þó ekki ástæðu til að flytja brtt. um þetta, með því að tíminn var takmarkaður og áliðið þingtímans.

Þá hafa komið fram brtt. frá einum nefndarmanni, hv. 3. landsk. (JÞ), sem hann flytur frá eigin brjósti. Frá mínu sjónarmiði get jeg sagt það, að jeg býst ekki við, að bein ástæða sje til að samþykkja þessar till. Málið verður ekki afgreitt á þessu þingi, og skiftir því litlu máli um einstök atriði, en auk þess tel jeg vafasama bót að þessum breytingum, sem hv. þm. (JÞ) fer fram á. Þó get jeg sagt það um 1. brtt., að ef nú væri verið að afgreiða málið, þá teldi jeg rjett að samþykkja hana. Um annað atriðið, að bæta við inntökuskilyrði hjer, vissu námi í þýsku, er nokkuð öðru máli að gegna. Jeg geri ráð fyrir, að þetta eigi að vera til samræmis við Akureyrarskólann, sem er styttri og er því eðlilegt að þurfi nokkru fyllri undirbúning. Jeg held, að ekki sje bein ástæða til að samþ. þetta, með tilliti til hinna fjögra löngu námsára hjer.

Þriðja brtt. held jeg skifti litlu máli og liggur mjer í ljettu rúmi, hvort hún er samþykt eða ekki.

Að því er snertir 4. brtt. get jeg fallist á, að nöfnin á gagnfræðaprófunum sjeu ekki heppileg. Um þetta var talað í nefndinni, en við fundum ekkert nafn, sem við vorum ánægðir með. Jeg held, að rjettast væri að láta þetta atriði bíða næsta þings og hugsa um það þangað til. Sama er að segja um 5. og 6. brtt. Jeg sje ekki ástæðu til annars en að greiða atkvæði gegn þeim nú, og láta þessi atriði verða umhugsunarefni til næsta þings.