15.05.1929
Efri deild: 70. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1937 í C-deild Alþingistíðinda. (3489)

103. mál, menntaskóli og gagnfræðaskóli í Reykjavík og Akureyri

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg skal ekki lengja umr. mjög, enda er ekki ástæða til þess, þar sem málið mun nú ekki komast lengra á þessu þingi en það kemst að lokinni þessari umr. Hv. 6. landsk. tók í raun og veru fram flest það, sem jeg vildi segja um brtt. hv. 3. landsk. (JÞ). Það er eiginlega aðeins fyrsta brtt., sem jeg er sannfærður um að sje til bóta. Það má vera, að hinar sjeu það að sumu leyti líka, en jeg er enn ekki sannfærður um það.

Um nafnið get jeg sagt það, að það hefir ekki tekist enn, þrátt fyrir mikla leit víðsvegar á landinu, að finna annað betra nafn en „gagnfræðaskóli“. Gagnfræðaskólarnir eru nú þriggja bekkja skólar, og hafa orðið sjerstaklega undirbúningsskólar undir mentaskólana, og það hefir komist inn í vitund manna alment, að það ættu gagnfræðaskólar að vera. En upphaflega hafa þessir skólar, t. d. Flensborg, sem fyrst var tveggja bekkja skóli og síðar bætti við sig þriðja bekknum, verið almennir undirbúningsskólar undir lífið, án tillits til sjerstaks framhaldsnáms.

Jeg sje ekki að ástæða sje til að vera óánægður með nöfnin á þessum prófum.

Um skólanefndirnar er jeg á sömu skoðun og áður, að rjettara sje að hafa sjerstaka skólanefnd fyrir þessa skóla. Hjer er um talsverðan mun að ræða, á þessum skólum og barnafræðslunni. Hjer koma til greina að ýmsu leyti önnur viðfangsefni, öðruvísi mentaðir kennarar o. s. frv. Þar sem ætlast er til, að nefndirnar vinni kauplaust, er heldur ekki um neitt fjárhagsatriði að ræða.

Jeg er hv. 6. landsk. sammála um það, hver sem undirbýr þetta mál undir næsta þing, að rjettast sje að skifta frv.

Nú hefir þessi hv. deild slegið föstum vissum línuni í þessu máli, og er því hjer eftir hægra að vinna að því á þann hátt, sem vakir fyrir hv. 3. landsk. o. fl.