09.04.1929
Neðri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (35)
14. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Landbn. ber fram brtt. á þskj. 299. Brtt. eru aðallega við kaflann um bústofnslánadeild og snerta bara tvö atriði. Fyrra atriðið er um það, að veita megi lán úr bústofnslánadeild til kaupa á jarðyrkjuverkfærum. Þessi till. hefir komið fram áður frá hendi n. hjer í hv. d. Hún var borin fram við 2. umr. um frv. til laga um sveitabanka. Jeg þykist því ekki þurfa að fara frekar út í hana.
Hitt atriðið, sem n. hefir tekið til meðferðar, er um veð í búfje. Hv. d. feldi, eins og menn muna, þá tillögu, sem n. flutti um þetta efni við 2. umr. Eru því ákvæði frv. um þetta óbreytt, en n. verður að líta svo á, að þessi ákvæði frv. í 3. málsgrein 45. greinar geti ekki staðið óbreytt og hefir því leyft sjer að flytja aftur brtt. sama efnis. í þessari málsgr. er svo ákveðið, að ekkert lán megi veita úr bústofnslánadeild gegn veði í búfje, nema lántakandi sje meðlimur í fóðurbirgðafjelagi, sem bankastjórnin tekur gilt. Jafnframt þessu getur bankastjórnin sett það að skilyrði fyrir lánveitingu, að fjelagar, allir fyrir einn og einn fyrir alla, ábyrgist bústofnslánadeild það tjón, er hún kann að verða fyrir vegna fóðurskorts. Það er þá fyrst og fremst um þetta að segja, að ef ákvæðið er látið standa, er ekki hægt að sjá annað en að aðgangur að lánsfje sje mjög takmarkaður, því að fóðurbirgðafjelög munu ekki vera fleiri en 7 á öllu landinu. Hvort samþ. þessa ákvæðis yrði til að fjölga fóðurbirgðafjelögunum, skal jeg ekki um segja, en jeg verð þó að álíta, að ekki sjeu miklar líkur til þess, meðal annars vegna þessa ákvæðis um sameiginlega ábyrgð í slíkum fjelagsskap, sem hægt er að krefjast. Hinsvegar má búfjáreign enn heita svo ótrygg, að n. sýnist ófært að heimila að veita bústofnslán eingöngu gegn veði í búfje, án þess að viðbótartrygging sje fyrir hendi. Þess vegna leggur n. til, að þessari 3. málsgr. sje breytt þannig, að ekkert lán megi veita gegn veði í búfje, öðru en kúm, nema eigandi fjárins setji auk þess hreppsábyrgð sem viðbótartryggingu, eða aðra tryggingu, sem bankastjórn tekur gilda. Þessi tillaga er óneitanlega töluvert lík þeirri, sem feld var við 2. umr., en hún fer þó ekki fram á alveg það sama, og auk þess er orðalagið á annan veg, svo að jeg vona, að hæstv. forseti vísi henni ekki frá sem áður fallinni. Aftur á móti er sú brtt., að 5. málsgr. 45. gr. falli burt, beinlínis það sama, sem búið var að fella við 2. umr., en þar sem hún er bara afleiðing af fyrri till. og því leiðrjetting á frv., ef hin till. verður samþ., þá getur það ekki komið í bága við þingsköp, þó að hún verði borin undir atkv. Allir sjá, að ef 1. og 2. liður brtt. við 45. gr. verða samþ., þá hefir síðasta málsgr. greinarinnar ekkert að þýða.
Tvær síðustu brtt. n. eru þess efnis, að tryggja það, að ef lán er tekið til verkfærakaupa, verði því varið til þess innan 12 mánaða frá lántöku, og ennfremur, að aftan við 47. gr. bætist ákvæði um sömu sektarákvæði við misnotkun á lánum til verkfærakaupa eins og segir í greininni.
Þá hygg jeg, að jeg þurfi ekki að taka fleira fram um brtt.