21.03.1929
Efri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (3553)
79. mál, vatnsveita á Hvammstanga
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg held, að hjer sje nú ekki um svo mikið smámál að ræða. Að minsta kosti virtist mjer hæstv. stj. ekki líta svo á, því hún virtist vera æði-„nervös“ yfir þessu máli. Hæstv. atvmrh. taldi nú upp öll þau „autoritet“, sem hann gat hugsað sjer viðvíkjandi þessu máli, og vildi fá umsögn þeirra. (Forsrh.: Einhvers þeirra að minsta kosti). Hann taldi upp lækni, hreppsnefnd, sýslunefnd, þingmálafund o. fl. Nú vill svo vel til, að jeg hefi umsögn frá einu þessara „autoriteta“, sem sje hjeraðslækni. Jeg skal með leyfi hæstv. forseta lesa umsögn hans, þótt jeg viti ekki, hvernig mjer tekst það, því það er á henni hálfgerð „recepta“-skrift. Hún hljóðar þá þannig:
„Að gefnu tilefni vottast viðvíkjandi vatnsbólum og neysluvatni á Hvammstanga:
Nokkur hluti þorpsbúa hjer á engan kost á nothæfu drykkjarvatni. Aðeins aðgang að svonefndri „Syðri-Hvammsá“ og kjallarabrunnum með algerlega ónothæfu vatni, sjerstaklega þegar tekið er tillit til taugaveikisfaraldurs, er gekk hjer fyrir nokkrum árum. Má fullyrða, að brunnar þessir sjeu ekki öruggir gagnvart taugaveikissýkingarhættu.
Hvammstanga, 2. febr. 1929.
J. Sveinsson, hjeraðslæknir“.
Hjer er þá eitt af þeim „autoritetum“, sem hæstv. atvmrh. var að lýsa eftir. Ennþá var eitt, sem hæstv. forsrh. var að höggva eftir, og það var, að jeg hefði gengið fram fyrir skjöldu í þessu máli. En jeg vil láta hæstv. ráðh. vita, að jeg tel mig þm. þessa kjördæmis eins og reyndar allra annara á þessu landi, því jeg mun sem landsk. þm. hafa fengið atkv. úr öllum kjördæmum landsins. En auk þess talaði jeg við hv. þm. V.-Húnv. og hv. þm. A.-Húnv. um þetta áður en jeg bar það fram. Höfðu þeir ekkert á móti því, og taldi hv. síðarnefndur þm. þessa leið vel færa. Jeg hefi þá nefnt „autoritet“, sem hæstv. forsrh. ætti að taka gilt. Annars hjelt jeg satt að segja, að hæstv. ráðh. væri ekki eins trúaður á „autoritetin“ eins og orð hans báru vitni um. Annars virtist mjer ræða hæstv. ráðh. bera keim af glensi. Hæstv. ráðh. talaði um, að það mætti gera þetta, er starfsmennirnir ættu þarna leið um. En jeg ætlast til, að þetta verði gert á þessu ári, og það án tillits til þess, hvort menn þessir verða að leggja krók á leið sína eða ekki.
Þá virtist mjer hv. 6. landsk. vera nokkuð „nervös“ yfir þessu. Hann vildi ekki raska friði ríkisstj. með slíku smámáli, sem hann taldi þetta vera. En jeg veit nú alls ekki, hvort það getur kallast smámál, að 200 manns eigi við svo slæmt neysluvatn að búa, að þeir að áliti læknis geti drukkið dauðann í hverjum vatnsdropa, er þeir láta inn fyrir sínar varir. Það er einmitt ekkert smámál, enda þótt tilkostnaðarlítið ætti að vera fyrir ríkið að láta rannsaka þetta. Enda er algengt, að ríkið tekur að sjer slíkar rannsóknir fyrir hjeruð. Hv. 6. landsk. vill láta fella þessa till. Hann um það. En jeg held, að það væri lítill sómi fyrir þingið að fella svo þarft mál, sem kostar ríkið jafnlítið. Mjer finst anda kalt til þessa hjeraðs, ef þessi rannsókn fæst ekki. Og sýni rannsóknin, að þetta kostar ekki mikið, er það til að koma skriði á málið og getur leitt til framkvæmda í því.