22.03.1929
Neðri deild: 29. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (3575)

41. mál, aukin landhelgisgæsla

Sigurjón Á. Ólafsson:

Jeg vil þakka hv. þm. Borgf. góðar undirtektir í þessu máli. Jeg vissi ekki gerla, hvað hann átti við, þegar hann sagði, að tímabilið frá 1. ágúst til 1. nóv. væri ekki heppilegt. Hygg þó, að hv. þm. hafi ekki meint, að gæslu væri engin þörf á þessu tímabili. (PO: Nei). Reykvíkingum er afarnauðsynlegt, að eftirlit sje haft á smábátamiðunum þennan tíma. En hvað nál. snertir, þá skal jeg taka það fram, að þegar frsm. samdi það, mun jeg hafa ráðið því, að tímatakmörkin voru sett, og hafði jeg það þá ekki í huga, að útlendir togarar væru að snöltra hjer inni á grunnmiðum á öðrum tímum árs. Og jeg er hv. þm. sammála um, að eigi síður þurfi gæslu um netaveiðatímann.

Hvað snertir það atriði, að báturinn sje látinn hafa jafnframt á hendi björgunar- og hjálparstarfsemi, þá skal jeg taka það fram af minni hálfu, að jeg er því öldungis samþykkur, og er það af mínum hvötum inn í nál. komið. Það hefði mátt jafnvel vera tekið fram um það í till., en sú hlið starfsemi gæslunnar var ekki rædd fyr en eftir að till. var samin. Það er ómótmælanlegt, að þótt brýn þörf sje gæslu landhelginnar, þá er ekki síður þörf á, að gerðar sjeu af hálfu hins opinbera einhverjar ráðstafanir til þess að halda uppi hjálpar- og björgunarstarfsemi jafnframt.