22.03.1929
Neðri deild: 29. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (3580)

41. mál, aukin landhelgisgæsla

Hannes Jónsson:

Mjer þykir vænt um að heyra, að þessar ráðstafanir um aukna landhelgisgæslu hjer á Faxaflóa eiga ekki að verða til þess að draga úr gæslunni á Húnaflóa, en mjer þykir hinsvegar hálfþunt fyrir okkur að þurfa að lifa í voninni um aukna landhelgisgæslu hjá okkur, þegar farið er að auka hana annarsstaðar. Annars er jeg ekki viss um, að það sje nokkursstaðar öllu brýnni nauðsyn á aukinni landhelgisgæslu en einmitt á Húnaflóa, og jeg held, að allir, sem kunnugir eru á heim slóðum, hljóti að finna til þess, hversu mjög henni hefir verið ábótavant þar, og jeg get vel búist við, að svo verði framvegis, því að jeg geri ráð fyrir, að tveimur strandvarnarskipum muni ganga fullerfitt að fullnægja allri gæslunni. (JJós: Skipin verða fjögur). Mjer er sama; þau munu hafa fullnóg að starfa, og eigi að hafa sjerstakt skip við gæslu hjer, þá tel jeg engu síður þörf á að hafa sjerstakt skip við gæslu á Húnaflóa, því að gæslan mun síst vera verri hjer en þar.