03.04.1929
Neðri deild: 35. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í D-deild Alþingistíðinda. (3590)
41. mál, aukin landhelgisgæsla
Hákon Kristófersson:
Jeg hjelt satt að segja, að þessi sjálfsagða brtt. yrði ekki til þess að koma slíkum ágreiningi af stað. Hv. frsm. andæfði brtt. minni, en þó hóflega, eins og hans er vandi. Hann sagði, að ríkisstjórnin myndi halda uppi gæslu á þessum svæðum, eins og hún hefði gert nú um langan tíma. En mjer er spurn: Hvaða vorleysi er hjá hv. frsm. um þetta atriði, ef Faxaflói á í hlut? Þar er þó aðstaðan ólíkt betri en víða annarsstaðar á miðum kringum landið.
Það liggur í hlutarins eðli, að aðstaðan við landhelgisgæsluna hjer á innanverðum Faxaflóa er miklu betri en annarsstaðar hvað stærri skipin snertir. Þau eru hjer langoftast á ferðinni og hafa því ágæta aðstöðu til þess að hafa hendur í hári veiðiþjófanna. Hv. frsm. sagði, að landhelgisgæslan á Vestfjörðum væri eiginlega orðin að „praksis“. Þetta er ekki rjett, og er alls ekki við því að búast, að svo sje. Gæslan er að vísu í dágóðu lagi, en á sunnanverðum Breiðafirði mun vera ábótavant, en annarsstaðar ekki. Árlega koma þó umkvartanir út af yfirgangi innlendra og útlendra togara á þessum slóðum og um það, að eftirlitsbáturinn sje ekki altaf við hendina. Hver getur efast um, að gæslan sje ekki best einmitt á Faxaflóa, þegar stóru skipin. eru þar altaf öðruhverju? Jeg get ekkert skilið í þessum efa hjá hv. frsm. og hv. n. Að líkja brtt. minni við breyt. á vegalögunum, verð jeg að taka einungis sem gaman, því að auðvitað nær það ekki nokkurri átt.
Hv. frsm. hafði eftir mjer þau ummæli, og gerði það rjettilega, að mjer þætti gaman að heyra hv. þm. mæla á móti brtt. minni. Jeg vil nú taka aftur þessi ummæli mín, því að þau voru vanhugsuð, og segja þá í staðinn, að jeg aumka þá hv. þm., sem greiða atkv. á móti henni.
Þá vil jeg snúa mjer að hv. 4. þm. Reykv., sem mælti á móti brtt. minni. Hann sagðist hafa komið til mín og beðið mig um að taka hana aftur, og mun það rjett vera. Úr því hann er nú farinn að draga einkasamtal okkar inn í umr., þá vil jeg geta þess, að jeg spurði hann um leið, hvort einn hv. þm. gæti verið þektur fyrir að fara fram á þetta með svona miklu blygðunarleysi. Þessi hv. þm. fór svo að lýsa yfir kunnugleika sínum á Vestfjörðum, og hefi jeg aldrei efast um, að hann sje þar kunnugur, en jeg mun þó sennilega vera þar eins kunnugur, ef ekki kunnugri. Hann taldi, að strandgæsla væri ekki nauðsynleg þar nema mánuðina ágúst–október, svo að hann veit þá ekkert um, hvað þarna gerist og um þá brýnu nauðsyn, sem er á aukinni gæslu mánuðina maí–júlí. Hv. þm. var að tala um einhver ummæli, sem hann hefði um þetta mál frá Patreksfirði og Arnarfirði. Það getur verið, að hann hafi þau frá Patreksfirði, en alls ekki frá Arnarfirði. Vill hann eða getur hann látið mig heyra ummæli Arnfirðinga um, að þar þurfi ekki landhelgisgæslu nema mánuðina ágúst–október? Ef svo er ekki, þá verð jeg að álíta þetta hugarburð einan hjá hv. þm. og algerlega úr lausu lofti gripið, og komi hann ekki með ummælin nú eða við 3. umr. þessa máls, þá verð jeg að álíta hann ósannindamann að þeim. (SÁÓ: Þetta er misskilningur). Það er ekki misskilningur, en jeg tel hv. þm. sómameiri, ef hann vill ganga frá því og taka það aftur.
Þá kem jeg að Breiðafirði og þar sagði hv. 4. þm. Reykv., að aðallega væri um að ræða ólafsvíkurmiðin. Þetta er að nokkru leyti rjett, en þó ekki nema hálfur sannleikur. Hv. þm. veit, að togarar toga inni á Höskuldseyjarflóa og inni á Bjarneyjarmiðum. Þetta veit hv. þm., en hann vill með andstöðu sinni drepa niður sjálfsagt og sanngjarnt mál. (MG: Er víst, að hann viti það?). Jeg vil ætla það. Að minsta kosti ætti maður, sem svo oft hefir fundið til sinna ágætu sjómenskuhæfileika, að vita, að togarar eru oft á veiðum á norðanverðum Breiðafirði. (SÁÓ: Ætli botninn sje ekki nokkuð slæmur hjá þeim þar?). Það er eftir því, hvað hv. þm. kallar slæman botn. Ef hann álítur sandbotn ekki slæman, þá geta þeir togað alveg upp við landsteina á Breiðafirði. Hv. þm. taldi, að jeg hefði komið fram með mína brtt. til þess að bregða fæti fyrir þáltill. hans, og er það sagt af lítilli sanngirni. Brtt. mín ber það með sjer, að sá er ekki tilgangurinn, þar sem henni er skift í tvo stafliði, a og b, og kann þetta því að stafa af ókunnugleika, eða ef til vill öðru, sem jeg vil ekki nefna. Hv. þm. vill ekki styðja till. mína af ósanngirni, og ef hann og hans fylgismenn fella a- liðinn, þá mega þeir fyrir mjer drepa sitt eigið afkvæmi. Hv. þm. vill láta líta svo út, að brýnni þörf sje á aukinni strandgæslu við Faxaflóa en annarsstaðar, en það stafar af því, að þar finnur hann best, hvar skórinn kreppir. Í minni brtt. er gert ráð fyrir sömu strandgæslu við Faxaflóa og í þáltill., sem hjer liggur fyrir, svo að hv. þm. getur ekki sjeð sjer fært að mæla á móti henni af þeim ástæðum.
Annars ætla jeg að láta þennan hv. þm. um sínar skoðanir á málinu. Jeg hefi nú talað tvisvar og býst ekki við að gera það oftar. Það væri þá aðeins til þess að bera af mjer sakir, en hvorki hv. 4. þm. Reykv. nje aðrir geta borið á mig neinar sakir í þessu máli nema gegn betri vitund, þar sem jeg hefi aðeins borið fram till. þess efnis, að svipað gangi yfir Vestfirði og aðra staði á landinu hvað landhelgisgæslu snertir. Mun jeg því úr þessu láta umr. hlutlausar og láta kylfu ráða kasti um úrslit málsins. Jeg sje líka, að hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) er að biðja um orðið, og vænti jeg mjer stuðnings úr þeirri átt og að hann taki af mjer ómak, þar sem þessi hv. þm. hefir altaf borið aukna landhelgisgæslu mjög fyrir brjósti, eftir því, er hann sjálfur segir.