06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (3611)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Starfsmenn ríkisins hafa lengi kvartað yfir launum sínum, og jeg hygg, að það sjeu flestir sammála um, að launin sjeu yfirleitt of lág. En af ýmsum ástæðum hefir það nú farið þannig, að stj. og þing hefir ekki viljað ráðast í að breyta laununum, að minsta kosti ekki fyrri en komin væri meiri festa á verðlagið í landinu og launakerfi starfsmanna ríkisins yrði endurskoðað í heild. Þó hygg jeg, að ranglætið hafi ekki áður verið eins augljóst í þessu efni eins og það er nú. Dýrtíðarvísitala hagstofunnar, sem uppbótin hefir verið reiknuð eftir, er of lág í hlutfalli við búreikningavísitöluna, sem sýnir, hvað lífsnauðsynjar kosta raunverulega. Við samanburð kemur það í ljós, að eftir dýrtíðarvísitölunni lækkar uppbótin um 6%, en eftir búreikningavísitölunni ætti hún ekki að lækka nema um 1%. Dýrtíðin er því raunverulega hin sama og í fyrra. Þessar ástæður voru bornar fram til stuðnings þessari till. í Ed. Í öðru lagi má skoða flutning þessarar till. sem byrjun þess, að launaspursmálið verði tekið til rækilegrar athugunar í heild sinni. Ekkert loforð hefir enn komið frá stj. um, að launalöggjöfin verði endurskoðuð. En fjhn. þessarar d. vonast fastlega eftir því, að sú endurskoðun verði framkvæmd sem fyrst. — Samtímis því, að þessi till. var flutt í Ed., kom fram í Nd. frv. um hækkun dýrtíðaruppbótar á launum starfsmanna ríkisins. Fjhn. þessarar d. hefir af ýmsum ástæðum eigi þótt rjett að afgr. það mál, af því líka, að hún hefir ekki búist við, að það yrði látið ganga fram á þessu þingi. Ýmsir nm. voru því fráhverfir, meðal annars vegna þess, að þar er gert ráð fyrir breyttri aðferð um útreikning á uppbótinni og því slegið fastri nýrri leið í launamálinu. En þessi till. er bygð á sama grundvelli og áður hefir verið reiknað eftir, aðeins eins árs nokkru frekari uppbót ákveðin, og með henni er engu slegið föstu um breytt form á uppbótinni í framtíðinni.
Það er talið, að hækkun á útgjöldum ríkissjóðs vegna þessarar till., ef hún verður samþ., nemi um 100 þús. kr., og getur það ekki talist mikið fje á 12 milj. kr. fjárlögum. N. vonast til, að þessi till. verði samþ., í trausti þess, að hæstv. stj. láti athuga launalöggjöfina yfirleitt og leggja fram till. til breyt. á henni fyrir næsta þing.