06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (3617)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Út af fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv. viðvíkjandi frv. því, sem hann bar fram, er það að segja, að hv. þm. hefir þegar heyrt svör tveggja nefndarmanna, og jeg held, að það hafi enginn í nefndinni lagt til að samþ. frv. hv. þm. Að vísu virtist hv. 2. þm. G.-K. vera því að mörgu leyti fylgjandi og sagði, þegar þetta nál. var samþ., að hann vildi gjarnan meiri hækkun; en till. um það mun hv. þm. ekki hafa gert, og mun ástæðan hafa verið sú, að nm. allir munu hafa ætlast til þess af stj., að hún tæki launamálið í heild sinni til yfirvegunar, og því ekki talið rjett að gera nýtt skipulag í þessu máli nú á þessu þingi. Jeg fyrir mitt leyti verð að segja það, að þótt jeg unni starfsmönnum hins opinbera betri kjara, öllum undantekningarlaust, þá myndi jeg vilja láta breyta embættaskipuninni á ýmsum sviðum meira en lítið, jafnframt því sem launakjörin væru endurskoðuð og bætt. Jeg veit, að víða hagar svo til, að vinnutími hinna ýmsu embættismanna er ákaflega misjafn, sumir hafa mjög hægt, stuttan reglulegan vinnutíma í embættum, en aftur mikil aukastörf, vel launuð, eins og t. d. í stjórnarráðinu og við háskólann, en svo eru aftur aðrir, sem hafa langan vinnutíma og mikil aukastörf við embætti eða sýslan sína, án þess að fá nokkrar aukatekjur fyrir. Jeg hygg, að jafnframt því, sem launakjörin sjálf væru tekin til yfirvegunar, ætti og að hugsa um það, hvernig hægt væri að spara á embættaskipuninni sjálfri, t. d. með því að auka störf sumra, en minka aftur störf þeirra, sem ofhlaðnir eru. Sjerstaklega ber að aðgæta það, að lægst launuðu starfsmennirnir eru yfirleitt þeir, sem lengstan vinnutímann hafa og engar aukatekjur, en hinir aftur, sem betri hafa launin, standa einnig betur að vígi að þessu leyti. Þetta er ójöfnuður, sem á að afnema.
Þá sagði hv. þm., að uppbótin væri lítilfjörleg. Það er sjálfsagt satt, en það fer þó nokkuð eftir því, hvaða mælir er tekinn, t. d. ef þeir, sem kalla má, að hafi meðaltekjur, fá 200–300 krónur í uppbót, þá munar mann þó um það. Ef menn geta borgað tekjuskatt sinn með upphæðinni, sem þeir fá, eða fengið sjer einn fatnað fyrir hana, þá er ekki hægt að neita því, að það sje þó betra en ekki neitt, að minsta kosti er það þó sjöfalt meira en hv. þm. vildi hækka ellistyrkinn um og flokksmenn hans í deildinni. Og veruleg hækkun mundi það vera talin af borgurunum, ef í hlut ætti verkafólk.
Þá vildi jeg segja fáein orð um fyrirspurn eða öllu heldur staðhæfingu hv. þm. V.-Húnv. um, að það sje rangt að reikna með því, að hækkunin muni ekki nema meiru en 100000 kr. Jeg get ekki annað um þetta sagt en það, sem annar flm. till. sagði mjer, að þetta væri sett eftir útreikningi Gísla Ísleifssonar skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu, en hann ætti að geta farið allra manna næst um þessi atriði.