08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (3630)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg veit ekki betur en sú skipan, er gerð var á útreikningi dýrtíðaruppbótarinnar 1919, hafi verið gerð beint að óskum embættismanna sjálfra. Þeir geta því sjálfum sjer um kent, ef þeir þykjast hafa farið illa út úr því, en hafa ekkert upp á þingið að klaga. Þeir fengu það, sem þeir óskuðu.
Hv. 1. þm. Reykv. er það skýrari í máli en hv. 2. þm. Reykv., að hann álítur, að í till. felist heimild til stj. B. Í. að greiða þessi viðbótarlaun. En nú hefir Búnaðarþing gert ákvarðanir um fjárhag fjelagsins og þar ákveðið, hve mikið skuli greiða starfsmönnum. Út fyrir það getur stj. fjelagsins trauðla farið. Er þá fólgin í till. aukafjárveiting til B. Í. til að greiða starfsmönnum sínum þessa launaviðbót? Er fólgin viðbótarfjárveiting í till. til allra stofnana, sem þurfa að greiða starfsmönnum sínum dýrtíðaruppbót? Jeg álít það vera hv. d. alveg ósamboðið að hespa þetta af án þess að gera sjer grein fyrir svona stórum vafaatriðum.