08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í D-deild Alþingistíðinda. (3632)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Magnús Guðmundsson:
Jeg get tekið undir það, að það er alls ekki unt að breyta lögum með þál., en einmitt þess vegna spurðist hv. 1. þm. Reykv. fyrir um það, hvort stj. ætlaði að nota þessa heimild. Hann vissi, að hún gat neitað að gera það. Hæstv. fjmrh. svaraði spurningunni játandi; hann ætlaði að nota heimildina. En síðan rís hæstv. forsrh. upp og lýsir þetta ólöglegt. Og það þýðir þá, að hæstv. fjmrh. ætlar að gera það, sem er ólöglegt. Jeg lít svo á, að ef þingið samþ. þessa till., sje það yfirlýsing þingsins um, að stj. sje vítalaus, þó hún borgi uppbótina. Jeg mun því greiða atkv. með henni, en læt stj. sjálfráða um, hvort hún notar heimildina eða notar ekki.
Hvað það snertir, að hjer sje um viðbótarfjárveiting til Búnaðarfjelags Íslands að ræða, þá skil jeg það ekki svo. Ef Búnaðarfjelagið vill nota heimildina, þá verður það að vera á þess kostnað. Þetta er engin þvingun; Búnaðarfjelagið ræður hvort það beitir heimildinni eða ekki; en beiti það henni, er það á þess kostnað.
Mjer heyrðist hv. 1. þm. N.-M. krefjast forsetaúrskurðar um lögmæti till. Jeg skil ekki, að það verði vandræði að kveða upp þann úrskurð, því þetta hefir svo oft komið fyrir áður, víst eitthvað á hverju þingi og oft á stríðsárunum.