08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (3633)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Út af ummælum hv. 1. þm. Skagf. um afstöðu ráðherranna til till., þá vil jeg geta þess, að hæstv. fjmrh. greiddi atkv. gegn henni í Ed. En hvað stj. borgar út, þegar meiri hl. þings óskar þess, er alt annað mál. — Ekki sagði jeg heldur, að till. væri ólögleg, heldur væri jeg í vafa um það, hvort hún gæti heitið lögleg. Jeg treysti mjer ekki til að greiða atkv. með henni, og það því fremur, sem meiri hl. leggur frá að gefa upplýsingar í málinu.