08.05.1929
Neðri deild: 64. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í D-deild Alþingistíðinda. (3635)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Sigurður Eggerz:
Jeg vildi aðeins láta það álit mitt í ljós, að auðvitað er ekki hægt að breyta lögum með þál. En þessi till. segir ekki annað en það, að ef stj. framkvæmir það, sem í henni felst, þá lýsir þingið yfir því, að það geri ekki ábyrgð gildandi á hendur henni. Þetta hefir oft komið fyrir áður. Það stendur að vísu í stjskr., að ekki megi veita fje úr ríkissjóði nema í fjárlögum. En hvað eftir annað hefir það þó verið gert með þál., með þeim skilningi, að það yrði svo síðar tekið upp í fjáraukalög. En margfalt viðkunnanlegra hefði það verið að fara lagaleiðina. En því var þessi leið farin, að með því var von til, að eitthvað mundi nást fram í málinu. Og jeg held, að þeir, sem eitthvað þekkja til hinna lágu kjara embættismanna, muni varla geta talið það eftir, þó þáltill. verði samþ.